Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Blaðsíða 70
við Landssamband
iðnaðarmanna
undirbúið tímamælingar
í greininni.
Landssambandið hefur
haft umsjón með
verkinu en ráðinn var
sérstakur starfsmaður
til að sinna
tímamælingunum, sem
hófust 1. september.
Þegar niðurstöður
mælinganna liggja fyrir
er ætlunin að
hárgreiðslustofur geti
notað þær sem
viðmiðun við
verðútreikning.
- Verðtaxti
tannsmíða-
verkstæða
Landssamband
iðnaðarmanna
aðstoðaði Samband
íslenskra
tannsmíðaverkstæða
við að gera úttekt á
verðtaxta sambandsins.
Gerðar voru
tímamælingará
verkstæðunum og
stuðst var við
niðurstöður þeirra og
niðurstöður
sambærilegra athugana
í Svíþjóð við að útbúa
grunn að nýjum
útsölutaxta.
Kostnaðarlíkan
Landssambands
iðnaðarmanna var
notað við útreikninga,
sem hafa verið kynntir
fyrir Tryggingastofnun
ríkisins.
- Könnuná
útistandandi
viðskiptakröfum
í ágúst 1988 gerði
Landssamband
iðnaðarmanna könnun
á útistandandi
viðskiptakröfum í
nokkrum iðngreinum
sem þjónusta
sjávarútveg. í
könnuninni tóku þátt
fyrirtæki með um 19%
alls mannafla í þessum
greinum
(veiðarfæragerð,
málmiðnaður,
skipaiðnaður).
Könnunin leiddi í Ijós að
um mitt ár 1988 voru
útistandandi
viðskiptakröfur um 1,8
milljarður króna og
höfðu aukist um 240
milljónir króna, eða
15% frá því í árslok
1987. Jafnframt kom
fram að vanskil höfðu
aukist um 55% frá
árslokum 1987 eða úr
842 millj.kr. í 1,3 milljarð
um mitt ár 1988.
- Stefnumörkunar-
átak í málmiðnaði
„MÁLMUR-92“
Félag
málmiðnaðarfyrirtækja
hefur ásamt
Landssambandinu og
iðnaðarráðuneytinu
unnið frá því á sl. vetri
að stefnumörkun fyrir
félagið og
Landssambandið í
málefnum
málmiðnaðarins.
Ákveðið var að setja á
laggirnar sérstakt
átaksverkefni
„MÁLMUR-92“ og var
Gylfi Aðalsteinsson
hagfræðingur ráðinn
verkefnisstjóri. Mun
verkefnið auk
stefnumörkunar-
þáttarins beinast að því
að lagfæra ýmsa þætti í
rekstri fyrirtækja í
greininni.
- Framleiðslu-
ábyrgðatrygging
Fyrirtæki i útflutningi
þurfa gjainan á
svokallaðri
framleiðsluábyrgðar-
tryggingu að halda.
Landssambandið aflaði
upplýsinga og
hagstæðs tilboðs frá
bresku tryggingafélagi í
slíka tryggingu á s.l. ári.
Fékkst við það dýrmæt
reynsla og þekking,
sem þegar hefur nýst
vel.
ÞJÓNUSTA VID
FYRIRTÆKIOG
FÉLAGSMENN
Landssambandið veitir
ekki einvörðungu
aðildarfélögum sínum
þjónustu. Starfsmenn
Landssambandins fylgjast
með og veita upplýsingar
um löggjöf og önnur
skilyrði til iðnrekstrar og