Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 5
Í dag tekur nýr banki, Arion banki, til starfa þar sem áður var Nýi Kaupþing
banki. Samhliða endurskipulagningu bankans hafa starfsmenn mótað nýjar
áherslur og nýja framtíðarsýn. Okkur er ljóst að traust almennings á bönkum
er í lágmarki og við ætlum að leggja okkur fram við að vinna aftur það traust
sem hefur glatast.
Við ætlum að byggja upp öflugan banka. Við ætlum að standa fyrir ábyrga
verðmætasköpun, vinna með og fyrir fólkið í landinu og setja kraft í uppbygg-
ingu og velferð íslensks efnahagslífs. Með fagmennsku, framsækni, ábyrgð
og umhyggju að leiðarljósi setjum við viðskiptavininn í fyrsta sæti.
Merkið:
Merki Arion banka byggir á ævafornu munstri sem nefnist áttablaðarós
og hefur lengi verið algengt í íslenskum hannyrðum. Áttablaðarósin
minnir um margt á frostrós, en í rósinni felst einnig átta arma stjarna,
grunnform áttavitans. Merkið bendir til íslenskrar menningar, staðhátta,
náttúru og veðurfars.
Nafnið:
Nafnið Arion kemur úr grísku. Sagt er frá söngvaskáldinu Arion í fornum þjóðsögum
frá Grikklandi. Hæfileikar hans gerðu hann ríkan og björguðu einnig lífi hans. Arion lenti
í höndum sjóræningja, sem vörpuðu honum fyrir borð, en höfrungar sem höfðu heillast
af tónlist hans báru hann á bakinu í heimahöfn. Arion er því afar táknríkt nafn og vísar
til listfengis, þrautseigju, samvinnu og endurkomu.
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is
Nýr
banki lítur
dagsins ljós
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
05
2