Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 6
6 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Hin rómaða þakkargjörðarveisla Hótel Cabin
verður haldin dagana 26. og 27. nóvember.
Í hádeginu 26. og 27. nóvember
Fimmtudagskvöldið 26. nóvember
og föstudagskvöldið 27. nóvember
Verð einungis: 2.550 kr. í hádeginu
3.250 kr. á kvöldin
Léttir djasstónar verða leiknir yfir borðhaldi
á föstudagskvöldið.
Borðapantanir í síma 511 6030
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgartilboð
4.395,-
3.495,-
ALÞINGI Samtals 37.400 störf eru
hjá hinu opinbera; átján þúsund
hjá ríkinu og 19.400 hjá sveitar-
félögum. Störfunum hefur fjölgað
um um það bil
þrjátíu prósent
á níu árum.
Þetta kemur
fram í svari fjár-
málaráðherra
við fyrirspurn
Þorgerðar K.
Gunnarsdóttur,
varaformanns
Sjálfstæðis-
flokksins.
Spurðist hún
fyrir um hve
margir starfs-
menn væru hjá
ríki og sveitar-
félögum og hver
þróunin hefði
verið síðastliðin
tíu ár.
Í svari ráð-
herra kemur
fram að ekki
liggi fyrir upp-
lýsingar um fjölda starfsmanna,
aðeins fjölda starfa. Eru upplýs-
ingar um fjölda stöðugilda hjá rík-
inu fengnar úr launavinnslukerfi
ríkisins.
Af tölunum má sjá að frá árinu
2000 hefur stöðugildum hjá hinu
opinbera fjölgað um 8.700, um
4.000 hjá ríkinu og 4.700 hjá
sveitarfélögunum.
Í tvígang á tímabilinu fjölg-
aði stöðugildum hjá ríkinu stór-
um, í fyrra sinnið árið 2001
þegar Borgarspítalinn sameinað-
ist Landspítalanum og aftur árið
2006 þegar stöðugildi innan heil-
brigðisstofnana fluttust í miðlægt
launakerfi ríkisins.
Eins og áður sagði eru stöðugildi
hjá ríki og sveit nú um þriðjungi
fleiri en árið 2000. Hefur þeim
fjölgað um 3,6 prósent að meðal-
tali á ári hjá sveitarfélögum og
um 3,2 prósent hjá ríkinu. Sé tillit
tekið til ofangreindra kerfisbreyt-
inga nemur fjölgunin hjá ríkinu 2,1
prósenti.
Rúmlega 165 þúsund manns
voru starfandi á fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs. Lætur því nærri að
um tuttugu prósent allra starfa séu
hjá hinu opinbera: ríki eða sveitar-
félögum. bjorn@frettabladid.is
Opinberum störfum
fjölgaði um þriðjung
Á tæpum áratug fjölgaði stöðugildum hjá ríki og sveitarfélögum um næstum
níu þúsund. Átján þúsund stöðugildi eru hjá ríkinu og 19.400 hjá sveitarfélögum.
Lætur nærri að rúmlega tuttugu prósent starfa í landinu séu hjá hinu opinbera.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
ÞORGERÐUR K.
GUNNARDSÓTTIR
Á LANDSPÍTALANUM Sameining Borgarspítala og Landspítala 2001 og færsla stöðu-
gilda innan heilbrigðisstofnana í miðlægt launakerfi ríkisins 2006 hefur sín áhrif á
tölur um störf hjá ríki og borg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FJÖLDI STÖÐUGILDA HJÁ RÍKI OG SVEITARFÉLÖGUM
Tölurnar miðast við apríl ár hvert
Ár Ríki Sveitarf. Samtals
2000 14.000 14.700 28.700
2002 15.400 15.700 31.100
2004 15.900 17.400 33.300
2006 17.300 18.200 35.500
2008 18.300 18.900 37.200
2009 18.000 19.400 37.400
2001 1.300 störf færast frá Reykjavík til ríkisins með sameiningu Borgarspítala og
Landspítala.
2006 Launaafgreiðsla heilbrigðisstofnana færist til ríkisins, þar með 1.500 stöðu-
gildi.
STJÓRNSÝSLA Fjármálaráðuneytið vinnur nú að því
að endurskoða nefndarsetu Baldurs Guðlaugssonar,
fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Baldur sætir nú rann-
sókn sérstaks saksóknara vegna meintra innherja-
viðskipta hans með bréf í Landsbankanum.
Endurskoðunin tengist ekki rannsókn sérstaks
saksóknara, að sögn Elíasar Jóns Guðjónssonar,
upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. „Þetta er bara
gert í kjölfar þess að menn hætta störfum, þá
er farið yfir setu þeirra í nefndum fyrir hönd
ráðuneytisins,“ segir Elías.
Taka þurfi saman í hvaða nefndum hann situr og
hvort ástæða sé til að skipta honum út. Elías segir
að hafi Baldur verið skipaður í nefnd vegna þess
að hann var ráðuneytisstjóri segi það sig nokkurn
veginn sjálft að hann muni víkja úr henni.
Elías segist ekki hafa upplýsingar á reiðum
höndum um það í hvaða nefndum Baldur situr,
verið sé að taka það saman. Hann hafi heldur ekki
upplýsingar um laun Baldurs
fyrir nefndarsetu. „En hann
fær væntanlega eitthvað
fyrir þessa nefndarsetu. Ég
geri ráð fyrir því,“ segir
Elías.
Á vef fjármálaráðu-
neytisins má sjá að Baldur
gegni formennsku í þremur
nefndum: ríkisreikningsnefnd,
samstarfsnefnd um opinberar
framkvæmdir og stjórn söfnunar-
sjóðs lífeyrisréttinda. - sh
Fjármálaráðuneytið skoðar hvort Baldur Guðlaugsson skuli sitja áfram í nefnum:
Nefndarseta Baldurs endurskoðuð
MENNTAMÁL Nokkrir nemendur í
skólum í Mosfellsbæ voru í gær
sendir heim fyrir að stríða og
atast í rauðhærðum samnemend-
um sínum. Í gær var svokallaður
„kick a ginger day“, sem útleggst
sem „sparka-í-rauðhærða dagur-
inn“, hefð sem hefur orðið vinsæl
eftir að tæpt var á henni í teikni-
myndaþáttunum South Park.
Tveir nemendur voru send-
ir heim úr Varmárskóla og heim-
ildir herma að um átta nemendur
hafi verið sendir heim úr Lága-
fellsskóla.
Efemía Gísladóttir, annar skóla-
stjóra Lágafellsskóla, vildi ekkert
tjá sig um málið þegar Fréttablað-
ið náði tali af henni í gær. „Ég
ætla ekki að gefa neitt komment í
blöðin,“ sagði hún.
Þeir nemendur sem sendir voru
munu flestir hafa gerst sekir um
lítilsháttar ofbeldisverk. Engum
varð sérstaklega meint af, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Ekki hafa borist fregnir af því að
þessa vandamáls hafi gætt annars
staðar. Samtökin Heimili og skóli
lýstu áhyggjum sínum af deginum
og hvöttu skólastjórnendur til að
vekja athygli foreldra og nemenda
á því að slík hegðun yrði ekki liðin.
- sh
Hópur nemenda í Mosfellsbæ ataðist í rauðhærðum og var rekinn heim:
Heim fyrir að stríða rauðhærðum
ÚR LÁGAFELLSSKÓLA Skólastjóri Lága-
fellsskóla vill ekkert tjá sig um málið.
BALDUR GUÐLAUGSSON Sér-
stakur saksóknari hefur fryst
yfir 100 milljónir í hans
eigu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
forseti Palestínustjórnar, hefur
fallist á að forseta- og þingkosn-
ingum, sem halda átti í janúar,
verði frestað.
Kjörstjórn Palestínumanna
lagði í síðustu viku til að kosn-
ingunum yrði frestað, eftir að
Hamas-hreyfingin sagðist ætla
að sniðganga þær. Kjörstjórnin
segist nú ætla að taka ákvörðun
í desember um nýjan kjördag.
Abbas lýsti því yfir fyrr í
mánuðinum að hann væri hætt-
ur við að bjóða sig fram til ann-
ars kjörtímabils. Hart var lagt
að honum að hætta við að hætta.
- gb
Forseti Palestínustjórnar:
Fellst á frestun
kosninganna
Hafa afleiðingar hrunsins verið
skárri en þú bjóst við fyrir ári?
Já 31,5
Nei 68,5
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hljómar Arion, nýtt nafn Nýja-
Kaupþings, vel í þínum eyrum?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN