Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 67
Sítrónuerta Tómasar kitlar bragðlaukana og er svo lík sólinni á litinn!
Tómas LeFrakkarnir skála í góðu rauðvíni enda mörgu að fagna. Stéphane ætlar að kynna Íslendingum desertvín, Tómas hefur
leikið í fyrstu íslensku jólamyndinni og Dominique hefur í nógu að snúast með vínskólann sinn fram að jólum.
Hellið rjómanum þá út í og bland-
ið vel saman við rjómaostinn. Hitið
aðeins aftur þangað til þykknar.
Takið af hellunni.
STEIKTIR SELLERÍRÓTARTEN-
INGAR
Skrælið vandlega sellerírótina og
skerið hana í smáteninga. Steik-
ið í blöndu af vel heitu smjöri og
ólívuolíu þangað til teningarn-
ir eru orðnir vel brúnir og mjúkir.
Saltið og piprið.
RJÓMALÖGUÐ SOÐSÓSA MEÐ
KIRSUBERJUM
Dominique vill helst búa til soð-
sósu frá grunni og gerir það þegar
hún kemst í fuglabein. En það
má vel nota anda- og gæsasósu-
grunninn frá Hafmeyjunni og fara
eftir leiðbeiningum (annars bæta
rjóma og einni msk. af rjómaosti
í soðsósuna). Notið þrjár til fjórar
msk. kirsuberjasósu (Den gamle
Fabrik) og tvær msk. rétt áður en
sósan er borin fram. Setjið eitt
kirsuber og nokkra dropa af kirsu-
berjasósu á diskinn til að skreyta.
SÍTRÓNUTERTA
TERTUBOTN
250 g hveiti
125 g smjör
salt
vatn
Setjið hveiti, smjör, salt og vatn
í skál og hnoðið. Setjið deigið í
grunna skál og látið hluta af því
ná út fyrir brúnina. Stingið í deigið
með gaffli og bakið það í ofni við
meðalhita eða þar til það hefur
tekið þokkalegan lit.
FYLLING
2 stk. egg
1 stk. eggjarauða
100 g sykur
50 g smjör
rifinn sítrónubörkur
safi úr tveimur úr sítrónum.
Hrærið saman tveimur eggjum og
eggjarauðu. Blandið hinu hráefn-
inu saman við og hitið á vægum
hita í potti þar til blandan hitnar.
Athugið að hún má ekki sjóða.
Hellið yfir tertubotninnn. Setjið
botn í fimm mínútur í ofn við um
það bil 210 gráðu hita.
Undir þetta tekur Stéphane en
hann á og rekur fyrirtækið Vín-
ekruna. „Ég flyt inn frönsk vín
sem hafa sterkan uppruna og með
áherslu á lífrænt ræktuð vín. Í
Frakklandi eru vín svo eðlilegur
hluti af matarmenningunni og hér-
lendis hefur það verið að breytast
í þá átt að Íslendingar eru farnir
að njóta meira léttvíns með mat.
Vín ætti aldrei að vera án matar.
Nú þegar styttist til jóla set ég
áherslu á styrktu vínin eða desert-
vín, Rivesaltes, Muscat de Rives-
altes og fleira, sem henta bæði
með forréttum og eftirréttum.
Íslendingar eru mjög áhugasam-
ir og það er ánægjulegt að kynna
fyrir þeim ný vín og samsetning-
ar.”
Tómas Lemarquis, sem leikur
í kvikmyndinni Desember, ætlar
að eyða jólunum í París í Frakk-
landi. „Ég skil jólin hérna eftir í
fyrstu íslensku jólamyndinni þar
sem ég leik aðra aðalpersónuna,“
segir hann og brosir. „Ég er mjög
ánægður með þessa mynd og hún
kemur fólki í jólaskap.“ Hann segir
samt að myndin sé ekki eingöngu
gamanmynd. „Þetta er fjölskyldu-
mynd en hún fjallar líka um alvöru
lífsins, djúpar tilfinningar en líka
sæta tíma. Athygli blaðamanns
beinist nú að kökunni sem Tómas
heldur á. „Þetta er sítrónuterta,
uppskriftin er búin að vera lengi
í fjölskyldunni. Ég man bara eftir
henni síðan ég var barn og hún er
búin að vera í uppáhaldi síðan,“
segir hann brosandi. - uhj
Girnileg gæsalifur.