Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 50
„Íslensku jólasveinarnir eru bara
svo skemmtilegir og svo miklu
meiri persónuleikar en þessi rauði,
breski,“ segir Brian, sem sjálfur
er frá Bretlandi, og brosir. Hann
er nú að gefa út bókina Jólasvein-
arnir 13; hefur áður gefið út bók
um jólasveinana en segir þessa
ekki vera framhald. „Það er hægt
að nálgast íslensku jólasveinana á
svo margan hátt, en þessi er fyrir
alla aldurshópa og er bæði skrif-
uð á íslensku og ensku,“ segir höf-
undurinn, sem er handviss um
að útrás jólasveinanna hefjist nú
fyrir alvöru.
Jólasveinar Pilkingtons eru
afskaplega kátir og ljóst að krepp-
an hefur ekkert farið illa með þá.
„Nei, nei, þeir þurftu ekki einu
sinni að borga leigu í hellunum
í fjöllunum. Þeir eru líka góðir
bræður þótt þeir hafi stundum
gaman af því að ýta í nefið hver
á öðrum en það er allt í lagi enda
ekkert sárt.“ Brian segir að það sé
sérstaklega skemmtilegt að lesa
þessa bók fyrir börn enda hafi
hann haft þau sérstaklega í huga
þegar hann skrifaði bókina, og þá á
hann við börn á öllum aldri. „Í bók-
inni er tekinn fyrir hver og einn
einasti jólasveinn, sagt frá sögu
hans og skapgerð, hvenær hann
kemur til byggða og hvað honum
finnst gott. Það síðastnefnda gæti
verið gott fyrir börn að vita og
lauma svolitlu af því í skóinn til
þess að freista
þ e s s a ð
blíðka
jóla-
sveininn í þeirri von að
fá meira í skóinn.“ Í þessari
lærdómsbók er líka enn eitt
skemmtilegt en í henni geta
börn og fullorðnir lært að stafa
GLEÐILEG JÓL með fingrastaf-
rófi.
En hver skyldi vera uppáhalds-
jólasveinn Brians? „Ég get ekki
svarað því,“ segir hann eftir langa
umhugsun, „Mér finnst þeir allir
svo frábærir, Ég held að ég sé bara
að breytast í jólasvein!“
unnur@frettabladid.is
Er að breytast í jólasvein
Brian Pilkington, teiknari og rithöfundur, er einlægur aðdáandi íslensku jólasveinanna og getur ekki gert
upp á milli þeirra. Hann gefur út nýja bók um þá bræður fyrir jólin auk annarrar sem fjallar um tröll.
Brian finnst íslensku jóla-
sveinarnir búa yfir miklum
persónuleika.
Bókakápa hinnar nýju bókar
Brians. Hann teiknar einnig
myndir við aðra nýja bók sem
kallast Tröllagleði en þar er textinn
eftir Steinar Berg.
Jólasveinar Brians Pilkington eru kátir karlar og láta kreppuna lítið á sig fá.
JÓLAGESTIR BJÖRGVINS er nafn á
mynd- og hljómdiski sem gefinn hefur verið
út. Um er að ræða upptökur af jólatónleikum
Björgvins Halldórssonar 2008.
Á upplestrarkvöldinu sunnudaginn 22. nóvember verður boðið upp á kynningu og
lestur úr nýjum bókum í bland við notalega tónlist. Ragna Sigurðardóttir mun lesa úr
skáldsögu sinni Hið fullkomna landslag, Inga Dóra Björnsdóttir kynnir ævisögu Ásu
Guðmundsdóttur Wright – Kona þriggja eyja, Jónína Leósdóttir les úr bók sinni Ég &
þú og Einar Már Guðmundsson kynnir Hvítu bókina sína. Þá les Silja Aðalsteinsdóttir
úr skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karlsvagninum, og sérlegur leynigestur
mun taka að sér að lesa upp úr nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar, Svörtuloftum.
Kynnir á upplestrarkvöldunum er tónlistarmaðurinn Svavar Knútur. Dagskráin hefst
klukkan 20 og er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
Leynigestur les Svörtuloft Arnalds
LJÁÐU MÉR EYRA KALLAST UPPLESTRARKVÖLD Á KAFFIHÚSINU ROSENBERG VIÐ
KLAPPARSTÍG SEM FORLAGIÐ EFNIR TIL Á SUNNUDAG.
Nýkomið mikið
úrval af kuldaskóm
og stígvélum.
Vandaðir dömuskór
úr leðri, flísfóðraðir
litir: brúnt og svart
stærðir: 36 - 42
Verð: 18.750.-
Flottir kuldaskór úr
leðri, loðfóðraðir.
litir: rautt og svart
stærðir: 36 - 42
Verð: 18.750.-
Þægilegir dömuskór
úr leðri, flísfóðraðir.
litir: brúnt og svart
Stærðir. 36 - 42
Verð: 17.500.-
Jólafötin komin
fyrir stráka.
Stærðir 0-14 ára
Laugavegi 87 • sími: 511-2004
Brúðargjöfi n í ár!
Dún og Fiður
Hlýjar jólagjafi r í ár
Dún i ur
Hafnarfjörður - jólafundur Hringsins
Jólafundur Kvenfélagsins Hringsins í Hafnarfi rði, verður
haldinn þann 1. desember kl. 18 í Fjörugarðinum.
Happdrætti og skemmtiatriði.
Miðasala verður n.k. mánudag milli kl. 5 og 7 í Firði
(við Kaffi Aroma). Verð kr. 5.000.
Stjórnin.
NETHYL 2, SÍMI 5870600, WWW.TOMSTUNDAHUSID.IS
FJARSTÝRÐIR BÍLAR
FYRIR ALLA
ALDURSHÓPA
Í ÚRVALI.