Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 42
42 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
MEIRI TÍMI
Þ að er mjög margt gott við kreppuna. Fólk er farið að hugsa mun betur um sjálft sig. Maður finnur það í líkamsræktinni, fólk virðist hafa meiri tíma og mætir
betur. Það snýst ekki allt um vinnu og pen-
inga lengur. Fólk er farið að leita inn á við og
rækta vina- og fjölskylduböndin. Fólk talar
meira saman. Fólk notar líka eigin hugmynda-
auðgi meira og listin blómstrar. Mér sýnist
vera betri mæting á viðburði og fólk almennt
fara meira út en áður. Sjálf fékk ég mér
labrador-hund af því ég hafði loksins tíma til
að sinna gæludýri.“
Unnur Pálmarsdóttir,
gæðastjóri í Sporthúsinu.
AÐ SÆTTA SIG VIÐ UPPRUNANN
E itt af jákvæðum eftirmálum banka-hrunsins er að ekki hefur enn verið reist verslunarmiðstöð á
horni Laugavegs og Klappar-
stígs. Í staðinn mun rísa þar lítill
jólamarkaður í desember sem
ég er spenntur að skoða. Hótelið
sem átti að rísa við hlið Tónlistar-
hússins hefur sem betur fer ekki
risið enn og það er hætt við
flutninginn á húsunum við Ing-
ólfstorg, einnig með tilheyrandi
hóteli. Það er eins og miðbærinn
sé að rísa úr öskunni líkt og
fuglinn Fönix, því um allt hafa
sprottið upp litlir súpustaðir og
Eymundsson hefur tekið við fyrrum húsnæði SPRON og er orðið nýtt bókmenntahjarta miðborgar-
innar þar sem hægt er að lepja kaffi og skoða mannlífið í 360 gráður út um glugga bóksölunnar.
Það er jákvætt að kannski erum við loksins búin að sætta okkur við uppruna okkar og skilja að við
séum lítið samfélag með litlar kröfur um glerhallir og glannaskap. Kórónan á jákvæðum eftirmálum
endurreisnarinnar er svo tilvonandi endurkoma fiskabúrsins í Vesturbæjarlaug.“
Gunnlaugur Egilsson dansari.
HEIÐMÖRK ER PARADÍS
Þ að jákvæða við kreppuna er að maður er gjörsamlega búinn að missa áhuga á að sanka að sér hlutum og kaupa einskis nýta hluti sem aftur kemur sér ef til vill illa fyrir kaupmenn. Því má
segja að þessi tilhneiging til að eignast nýja glossið
í hvert sinn frá Mac sé búin að víkja fyrir öðrum
merkilegri gildum og á þetta við um bækur, föt og
annað enda er hætt að flytja inn sumar vörur og
því sjálfgert að vera án þeirra. Nú þegar bensínverð
hefur hækkað og dýrara að ferðast um landið, er
gaman að sjá allan þann fjölda sem leggur leið sín
í Heiðmörk um helgar enda paradís fyrir okkur sem
búum á Reykjavíkursvæðinu. Ég veit þó ekki hvort
fólk er búið að þjappa sér betur saman almennt.
Mér sýnist umferðarmenningunni hraka stöðugt og
vona að það endurspegli ekki sálarheill eða siðferði þjóðarinnar.“
Ragnheiður Elín Clausen, nemi og fyrrverandi þula.
MINNI EINKAÞOTUUMFERÐ
E itt mjög gott við kreppuna er að nú meikar retro-tískan á götunum loks einhvern sens og er hætt að vera til-gerðarleg. Partíin og matarboðin eru orðin lengri og betri því það er ódýr-
ara að djamma heima. Einkaþotuumferðin
hefur minnkað en gnýrinn í miðbænum gat
orðið þreytandi seinnipartinn þegar fólk
var að tínast heim úr vinnu frá meginlandi
Evrópu. Sennilega eiga líka eftir að koma
góðar kvikmyndir út úr kreppunni. Myndir
sem eru gerðar fyrir lítinn pening og byggja á
góðum handritum. Það eru bestu myndirnar
jafnt í góðæri sem hallæri. Og það er almennt
meiri samkennd á meðal fólks. Það hefur
líka alltaf farið Íslendingum ágætlega að vera
undir og eiga við ofurefli að etja. Þá gerast oft
óvæntir og fallegir hlutir.“
Huldar Breiðfjörð rithöfundur.
ÍSHOKKÍ ER SNILLD
Hvað er gott
í kreppunni?
Í meira en ár erum við búin að vera djúpt sokkin í kreppu. Á
sama tíma hefur margt jákvætt, gott og skemmtilegt gerst og
breyst til batnaðar. Tíu Íslendingar lögðu hausinn í bleyti,
reyndu að rífa sig upp úr barlóminum og fundu út hvað þeim
finnst gott í kreppunni.
GOTT VATN,
FLOTT LANDSLAG
Þ að eina sem er jákvætt er að við eigum enn þá gott vatn og flott landslag, þótt við séum reyndar alveg á milljón að eyðileggja
það eins og við getum. Svo eigum
við virkilega góða listamenn á öllum
sviðum. Öll list í landinu er jákvæð.
Annars er erfitt að vera jákvæður
þegar maður hlustar á fréttir. Allt
virðist vera á niðurleið. Það er
svakalegt að menn rústi efnahag og
orðspor heillar þjóðar og fái svo bara
að ganga í burtu eða kaupa gömlu
fyrirtækin aftur fyrir slikk.“
Valdís Óskarsdóttir leikstjóri.
BÓNUS STÆKKAÐI
M aður sér að fólk er miklu meira að spá í innlenda framleiðslu og við í hljómsveitinni sáum að við yrðum að klára plötuna. Það vaknaði miklu meiri metnaður hjá okkur
til að kynna plötuna í útlöndum og það er margt
að gerast varðandi það. Svo byrjaði ég í skóla, fór
í sálfræði í Háskóla Íslands, en hefði nú svo sem
gert það hvort sem var. Annars á ég engan pening
og eyði eiginlega engu nema í Bónus. Ég versla
yfirleitt í Bónus á Laugavegi og þar er búið að
stækka og bæta. Þess vegna er það líklega bara
það jákvæðasta sem hefur gerst í kreppunni!“
Lilja Kristín Jónsdóttir, söngkona í Bloodgroup.
M ér finnst mjög jákvætt að McDonald‘s sé farinn. Ég held að Íslendingar eigi eftir að grennast gífurlega. Annars finnst mér það frá-
bærasta og jákvæðasta á landinu í dag að
hér sé stundað íshokkí. Það er algjör snilld.
Ég gerðist nýlega markvörður hjá B-liði
Skautafélags Reykjavíkur. Kílóin svoleiðis
hrynja af manni enda er þetta ein erfiðasta
staðan í hópíþróttum.“
Bjarni „töframaður“ Baldvinsson.
MIÐBÆRINN LIFNAR VIÐ Í KREPPUNNI
Nýir veitingastaðir, kaffihús og verslanir hafa
sprottið upp á Laugaveginum og nágrenni.