Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 80
52 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Hvort er þér hugleiknara, mynd-
listin eða tónlistin? Ég er í sam-
búð í músíkinni en er einhleypur í
myndlistinni. Hvort tveggja hefur
sína kosti og galla en ég geri þetta
þó bæði með bros á vör.
Hvenær varstu hamingjusam-
astur? Þegar mamma kom og tók
mig í fangið og huggaði mig eftir
að ég hafði pissað á mig í strætó sjö
ára gamall. Var einn, var svo mikið
mál og vissi ekkert hvað ég átti að
gera þannig að ég pissaði í buxurn-
ar og á gömlu grænu leðursætin.
Hef aldrei verið jafn lítill í mér á
ævinni. Mamma gerði mig aftur að
hamingjusömum litlum strák.
Þú ert nýkominn frá Ítalíu og
sýnir meðal annars notaða síg-
arettupakka? Er einhver Ragnar
Kjartansson í þessu hjá þér? Alls
ekki. Ítalía og sígarettur hafa ekk-
ert með Ragga að gera.
Hvaðan sækir þú mestan inn-
blástur og hvaðan kemur þín fagur-
fræði? Stundum meðtekur maður
eitthvað og vinnur úr því og stund-
um meðtekur maður ekkert og þá
kemur ekkert. Þannig að svarið er
ekkert endilega rómantíkin sem er
kannski falin í því að horfa á sólina
setjast bakvið fjöllin á Suður-Ítalíu
heldur alveg eins að japla á brauð-
sneið með osti á morgnana. Þannig
að innblásturinn kemur alls staðar
frá, verð ég að segja. Fagurfræðin?
Fagurfræðin kemur með tíð, tíma
og manndómi.
Viðfangsefni í verkum þínum eru
frekar ögrandi. Endurspegla þau líf
þitt að einhverju leyti?
Já, ég myndi segja það að ein-
hverju leyti og þá sérstaklega það
sem ég hef verið að bralla í mynd-
listinni undanfarin tvö ár. Þessi
sýning sem ég er að fara að opna
í Listasafni ASÍ á laugardag er
eiginlega unnin alfarið út frá dag-
bókarfærslum mínum þar sem
kannski margt misjafnt er í poka-
horninu. En þó að sýningin sé ein-
læg og virkilega opin fyrir fólk til
þess að líta inn í hausinn á mér, þá
hef ég sem betur fer húmor fyrir
sjálfum mér og vinn ákveðið með
það dæmi. Þannig að það er ágæt-
is „balance“ á sýningunni á milli
hversdagsleikans og næturlífsins
og svo sambandið og það sem ger-
ist á milli þessara tveggja póla. En
já, upphaflega vildi ég vinna með
einhvern einn einstakling sem gæti
verið Jón Jónsson niðri í bæ og gera
heila sýningu um hann en ákvað
svo bara að vinna með mig. Þannig
að, já, þessi sýning fjallar um mig,
þar sem ég ákvað að vinna með ein-
hverjum gaur sem ég þekki rosa-
lega vel og einnig einhverjum sem
ég veit að ég get ekki losnað við eða
hent í burtu svo auðveldlega.
Hvaða íslensku listamenn hafa
haft mest áhrif á þig? Það eru svo
margir góðir hérna en svona algerir
uppáhalds og þeir sem ég get allt-
af huggað mig við að eru betri en
flestir eru kannski Sigurður og
Kristján Guðmundssynir.
Hvað táknar nafnið á sýning-
unni – saxófónn eða kontór? Saxó-
fónn getur verið jafn leiðinlegur og
sannleikurinn.
Hvar myndir þú búa ef þú mættir
alfarið ráða? Ég er nú bara frekar
ánægður með að búa í Reykjavík
þessa stundina en gæti alveg hugs-
að mér að búa í Barcelona eða NY.
Nú hefur þú spilað með Kimono
og spilar núna með Seabear. Hvað
er á döfinni í tónlistinni á næst-
unni? Það er bara fullt að fara að
gerast þar. Við í Seabear vorum
að klára nýju plötuna okkar, We
Built a Fire, sem kemur út í febrú-
ar á næsta ári og við munum fylgja
henni eftir út um allar trissur
næstu mánuði, bæði í Bandaríkj-
unum og Evrópu. Þannig að stuttu
eftir áramót hefst hálfs árs flökku-
líf með hljóðfærum og vinum. Og
það verður enginn saxófónn með
í þeirri för. Hann pípir í tollinum
og svo er hann kominn á bannlista
Evrópusambandsins. Og hver segir
síðan að Evrópusambandið sé ekki
að gera ágætis hluti?
Nú hefur þinni kynslóð lista-
manna verið lýst sem krútt.
Blundar krútt í þér? Ég skil ekki
alveg krútt-stimpilinn. Er það lið
sem fær hugmyndir og býr síðan
eitthvað til úr hugmyndum sínum?
Ef það er svarið skal ég glaður falla
inn í þann hóp.
Hver er uppáhaldskvikmyndin
þín og af hverju? Vá, man ekki. Var
að horfa aftur á Apocalypse Now
með vinum mínum eftir margra
ára hlé og hún kemst alveg nálægt
því. Af hverju? Af því að það eru
allir svo töff og kreisí í henni.
En uppáhaldsbókin? Flestar bæk-
urnar með Sjón, Paul Auster og
Murakami finnst mér rosa góðar.
Svo get ég lesið bækurnar hans
Halldórs Laxness, áður en hann
varð gú-gú, aftur og aftur.
Hvers konar tónlist hlustar þú
mest á sjálfur og hverjar eru nýj-
ustu uppgötvanir þínar? Ég hlusta
á alls konar músík og ef mér finnst
músíkin góð hlusta ég aftur á hana
og þá skiptir litlu máli þótt lagið
sé teknó eða psychobilly. En svona
eitthvað sem er í miklu uppáhaldi
akkúrat núna get ég nefnt Íslend-
ingana í The Go-Go Darkness og
The Third Sound og svo útlending-
ana í The XX og The Middle East.
Einnig var ég að grafa upp gamlan
eitís-þrumara með hljómsveitinni
Mr. Mister sem er æðisleg bomba
sem mun taka þátt í opnuninni með
mér í ASÍ.
Hvaða íslenska örnefni finnst þér
fallegast? Vestmannaeyjar.
Yfir hverju hefurðu mestar
áhyggjur í augnablikinu? Akkúr-
at núna hef ég mestar áhyggjur af
pabba gamla sem er smá veikur en
hann kemst yfir það, jaxlinn. Hef
enga trú á öðru.
Hvaða frasa ofnotar þú? Hæ og
kannski bæ.
Frægasti ættinginn þinn? Sá í
Tröllatungu-ættbókinni hennar
mömmu fyrir nokkrum árum að
Páll Óskar er frændi minn. Ég er
mikið stoltur af því og enn fremur
rosa stoltur af stóra frænda.
Blómstrar listin í kreppunni?
List blómstrar alltaf og þrífst bæði
á góðum og vondum tímum.
Saxófónn getur verið jafn
leiðinlegur og sannleikurinn
Halldór Ragnarsson myndlistarmaður opnar sína fyrstu sýningu í Listasafni ASÍ í dag en hann er einnig bassaleikari hljóm-
sveitarinnar Seabear. Anna Margrét Björnsson tók hann í þriðju gráðu yfirheyrslu.
FAGURFRÆÐIN KEMUR MEÐ TÍÐ, TÍMA OG MANNDÓMI Halldór Ragnarsson opnar í dag sýninguna Saxófónn eða kontór. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐ HÖFUM EKKERT AÐ SEGJA Eitt verka
Halldórs á ASÍ.
London ferðir
11.-13. desember
05.-07. febrúar
12.-14. mars
Verð á mann í tvíbýli:
56.900 kr.
Innifalið: flug með flugvallarsköttum
og öðrum gjöldum ásamt gistingu
með morgunverði.
Expressferðir hafa kappkostað að gefa öllum sínum farþegum tækifæri á
að heimsækja London á viðráðanlegu verði og gista á góðu 3* hóteli Royal
National sem er vel staðsett í hjarta borgarinnar. Þetta er upplagt fyrir hópa
og stofnanir, sem og einstaklinga, sem vilja fara í ódýra helgarferð. Hvort
sem þú ætlar að versla, fara í leikhús, út að borða, hitta vini eða njóta lífsins
þá er London rétti áfangastaðurinn.
Heimsborgin kallar
Nánari upplýsingar á www.expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Borgarferðir