Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 32
V
ið erum í gleðiham,“ segir
Svava Johansen, forstjóri
tískuvöruverslanakeðj-
unnar NTC. Á sama tíma
og fjöldi fyrirtækja stend-
ur höllum fæti opnaði
Svava ásamt manni sínum fyrstu versl-
unina undir merkjum Gallerís Sautján í
Smáralind í fyrradag.
Hún sagðist þreytt eftir stanslausa
vinnu og svefnlausar nætur til að opna
verslunina á réttum tíma. Á sama tíma
var hún glöð og þakklát en 2.300 gestir
voru viðstaddir opnunina.
Verslunin er sex hundruð fermetrar
að flatarmáli auk hundrað fermetra skó-
verslunar undir merkjum Focus, sem
sömuleiðis er hluti af NTC-keðjunni.
„Það er alltaf spennandi að opna nýja
verslun,“ segir Svava og bendir á að
þessi nýja sé ólík öðrum að því leyti að
verðflokkar eru dreifðari, dýrari vörur
innan um ódýrari. Gæðin séu ætíð hin
sömu.
Í Smáralind var NTC með fyrir fjór-
ar verslanir undir ýmsum merkjum auk
tvö hundruð fermetra rýmis í Deben-
hams. Nýja verslunin er jafnframt sú
tuttugasta, sem NTC opnar á Íslandi.
Með tvö hundruð í vinnu
Hjá NTC starfa í kringum 180 manns
að jafnaði og er gert ráð fyrir að á bil-
inu fimmtán til tuttugu starfsmenn
bætist við í nýju verslunina í komandi
jólavertíð.
Það hljómar vissulega einkennilega að
opna nýja verslun í því efnahagsástandi
sem nú ríkir hér. Svava segir mikilvægt
að halda hjólunum gangandi þrátt fyrir
þrengingarnar. „Þetta er eins og hvert
annað verkefni. Mér finnst gaman að
slíku. Svo er alltaf spennandi að synda
á móti öldurótinu,“ bendir hún á.
Svava segir mikilvægt að muna eftir
fyrri niðursveiflum í efnahags- og
atvinnulífinu þegar illa árar. Öðruvísi
verði ekki komist í gegnum kreppuna.
„Maður finnur óneitanlega fyrir
nostalgíu,“ segir hún. „Ég hef verið í
Svava syndir á móti öldurótinu
NTC er stórhuga við erfiðar aðstæður og hefur opnað tuttugustu verslunina. Svava Johansen forstjóri segir í samtali við Jón
Aðalstein Bergsveinsson mikilvægt að láta neikvæða umræðu ekki hafa áhrif á sig. Hún segir erlenda birgja sýna íslenskum
fyrirtækjum skilning og veiti þeim sem þeir hafi átt góð tengsl við í gegnum tíðina betri greiðsluskilmála en áður.
NÝJA VERSLUNIN Svava Johansen segir að þótt ýmislegt hafi farið miður í efnahags- og viðskiptalífinu sé mikilvægt að horfa fram á veginn. „Við komumst í gegnum þetta öll saman ef við erum nógu jákvæð,” segir hún.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
þessu lengi og man eftir tveimur djúp-
um sveiflum þótt þær hafi ekki verið
jafn djúpar og þessi. Árið 1992 var mjög
erfitt. Það endurtók sig árin 2001 og
2002. Það er nauðsynlegt að rifja upp
hvernig maður tók á málunum þá og
setja sig í sama gír. Auðvitað er þetta
mjög sérstakt. En það er hollt að hafa
farið í gegnum svona þrengingar áður.
Mikilvægasta atriðið er að vinna sig
eins hratt út úr þessu og maður getur í
stað þess að hjakka í því sama. Það gerir
ástandið aðeins erfiðara.“
Gengishrun litar bókhaldið
Þrátt fyrir stórhuga framkvæmdir sýn-
ist fjárhagsstaða NTC óburðug sam-
kvæmt síðasta ársreikningi félagsins.
Reikningurinn dregur upp skýra mynd
af hruninu sem hér hefur orðið.
Tískuvörukeðjan tapaði 434 millj-
ónum króna í fyrra samanborið við
rúmar 89 milljóna hagnað árið á undan.
Þrátt fyrir það hækka flestir tekjulið-
ir og jókst rekstrarhagnaður um tæp
fimmtán prósent milli ára.
Neikvæðustu liðirnir í bókhaldinu
eru stóraukin fjármagnsgjöld, sem juk-
ust um rúm þúsund prósent á milli ára
við gengishrun krónunnar. Það kemur
illa við félög á borð við NTC en tæp níu-
tíu prósent skulda félagsins, einn millj-
arður króna, eru erlend myntkörfulán.
Í ársreikningi félagsins við lok síð-
asta árs kemur fram að skuldir nemi
829 milljónum króna umfram peninga-
legar eignir og sé bókfært eigið fé nei-
kvætt um 319 milljónir króna. Þá er
eiginfjárhlutfall neikvætt um 23,2 pró-
sent samanborið við sextán prósent
jákvætt hlutfall í lok árs 2007. Endur-
skoðandi segir því vafa leika á framtíð-
arrekstrarhæfi NTC og séu forsendur
áframhaldandi rekstrar þær að félag-
inu takist að standa við skuldbindingar
sínar.
Stærstur hluti myntkörfulána NTC
er á gjalddaga á þessu og næsta ári
samkvæmt ársreikningi. Þau voru
að mestu tekin árið 2005, í kjölfar
skilnaðar hennar og Bolla Kristinsson-
ar en Svava keypti hans hluta rekstr-
arins. „Bankarnir lögðu þetta til.
Auðvitað tekur maður sjálfur ákvörð-
unina á endanum og því ekki hægt að
kenna öðrum um. En það var mun hag-
kvæmara á árunum 2005 til 2008 að
taka svona lán þegar gengi krónunn-
ar var hvað sterkast,“ segir Svava og
bætir við að lánið sé skammtímalán
að hámarki til tuttugu ára með veði í
veltufjármunum (vörum og kröfum).
Það er framlengt tvisvar á ári.
Svövu segist sér leiðast að vasast sé
í ársreikningum fyrirtækja í fínum
málum. Afborganir lána séu ekki
áhyggjuefni hjá NTC enda félagið í
skilum með allt sitt. Þá hafi viðskipta-
banki fyrirtækisins aldrei gert athuga-
semdir við stöðuna. „Umræðan er orðin
svo ljót og útbreidd langt út fyrir sviðið
og margt sett undir sama hatt. Þar er
bakari hengdur fyrir smið,“ segir hún.
„Ársreikningur okkar er barn síns
tíma. Við höfum ekki fjárfest í hluta-
bréfum og ekki verið í útrás. Staðreynd-
in er sú að við höfum náð hagræðingu í
innkaupum. Við eigum langa viðskipta-
sögu og erum í heilbrigðum og rótgrón-
um rekstri, sem stendur vel undir sér.
Fyrirtæki erlendis hafa sýnt því skiln-
ing hvernig komið er fyrir Íslending-
um. „Þegar maður hefur verið í rekstri
í kringum tuttugu ár þá þekkja erlend-
ir birgjar mann og eru viljugri til að
hjálpa til þegar illa árar eins og núna,
sérstaklega þeim sem eru í skilum. Við
höfum því fengið betri greiðsluskilmála
erlendis en áður,“ segir hún.
Ekki sogast í neikvæðnina
Svava segir að þótt aðstæður séu erf-
iðar nú megi ekki horfa einungis á það
sem miður hefur farið. „Við vitum að
margt er að og óþarfi að fegra það. En
vissir þættir eru í lagi og mikilvægt
að benda á það. Við komumst í gegn-
um þetta öll saman ef við erum nógu
jákvæð og látum ástandið ekki ná
okkur. En við megum ekki láta ástandið
ná tökum á okkur. Þá er hætt við að við
sogumst inn í það. Ef það gerist höfum
við enga orku til að vinna okkur upp úr
þessu,“ segir Svava Johansen.
Við kom-
umst í gegn-
um þetta
öll saman
ef við erum
nógu jákvæð
og látum
ástandið
ekki ná okk-
ur. En við
megum ekki
láta ástandið
ná tökum á
okkur.
NÝJA VERSLUNIN Verslun Gallerís Sautján er tuttugasta verslun NTC á Íslandi að meðtaldri
deild innan Debenhams. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í rúm þrjátíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR32