Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 44
2 matur
MATUR OG MEGIN
Unnur H. Jóhannsdóttir skrifar
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
VERSLUN SÆLKERANS
matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Alma Guðmundsdóttir, Níels Rúnar Gíslason, Vera Einarsdóttir og
Unnur H. Jóhannsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
Í Mai Thai fæst allt milli himins
og jarðar í austurlenska matar-
gerð. „Við erum hér með gott
úrval af kryddum, sósum og
núðlum,“ segir eigandinn Linda
Thieojanthuk, hress í bragði og
bætir við að nammigrísir ættu
einnig að finna eitt og annað við
sitt hæfi. Hrískökur, þarastangir
og -snakk og fleira gotterí nefnir
hún til sögunnar. „Svo erum við
með matreiðslubækur fyrir byrj-
endur og lengra komna.“ Gjafa-
vara frá framandi slóðum fæst
einnig í versluninni. Allt til alls
í borðhald: prjónar, skálar og
diskar; einnig sængurfatnaður,
myndir, bækur, postulín, styttur
og fleira frá Afríku, Kína, Víet-
nam og Taílandi.
Mai Thai við Hlemm
V eitingastaðurinn Brasilía var opnaður á Skólavörðustíg 14 í gær en þar er hægt að fá rétti
sem allir eru að einhverju eða öllu
leyti með brasilísku sniði. Staður-
inn er í eigu Þrastar Ottóssonar og
brasilísku systranna Silbene Dias Da
Conceicao og Marciu Dias, en Silbene er kona Þrastar.
Systurnar hafa sett saman matseðil með réttum víðs-
vegar frá Brasilíu. „Má þar nefna feijoada sem má kalla
þjóðarrétt Brasilíu, rabada og hamburger bagunca sem
eru hamborgarar af ýmsum gerðum. Einnig er hægt að
fá alls konar suðræna ávaxtadrykki og esfiha sem er
vinsæll smáréttur i Brasilíu en að auki verður íslensk-
ur fiskur matreiddur á brasilíska vegu,“ segir Þröstur,
sem tekur að sér að segja frá staðnum.
Þröstur kynntist Silbene fyrir þremur árum en það
var fyrir ári sem hann fékk þá hugmynd að opna brasil-
ískan veitingastað enda fannst honum vanta slíkan stað
í matsölustaðaflóruna á Íslandi. En hvað er einkenn-
andi fyrir brasilískan mat? „Maturinn er bragðmeiri
samanborið við íslenskan mat. Hann er þó ekki endi-
lega bragðsterkari þó það fari eftir svæðum. Þá er hrá-
efnið oft látið liggja lengi í kryddlegi og krefst hann oft
lengri eldamennsku en gengur og gerist. - ve
Krydd í tilveruna
Brasilía heitir nýr veitingastaður sem var opnaður á Skólavörðustíg í gær en hann
er kærkomin viðbót við þá veitingastaði sem fyrir eru í Reykjavíkurborg.
FYRIR TVO
2 kjúklingabringur
1 poki Rucola-salat
2 tómatar
1 dós maís
4 sveppir
kóríander eftir smekk
pestó
Kjúklingurinn látinn
liggja í kryddlegi að
eigin vali í hálfan til
einn sólarhring. Hann
síðan steiktur í olíu á
pönnu. Þegar kjúkling-
urinn er orðinn steiktur
í gegn er dálitlu vatn
hellt út á og lok sett á
pönnuna. Látið sjóða
í nokkrar mínútur eða
þar til kjúklingurinn er
orðinn meir. Rucola-
salat sett á disk. Niður-
skornum sveppum,
tómötum, maís, kórí-
ander og pestóslettum
dreift yfir. Kjúklinga-
strimlum raðað ofan á.
BRASILÍSKT KJÚKLINGASALAT
(Salada de frango com rucola) fyrir 2
Íslendingar eru áreiðanlega ekki þeir einu sem eiga sér bæði orðtæki og málshætti yfir mat og drykk. Það sýnir hversu mikils virði maturinn er mannkyninu. Matur er mannsins megin er gamall og gegn íslenskur
málsháttur en matur er oft kjarni góðrar gleði.
Sögurnar sem hafa flogið yfir mat eru ófáar og sumar hefðu aldrei verið
sagðar ef ekki væri fyrir matarboðið sem Sigga og Stína héldu eða Lárus
og Lilla. Maturinn á að vera í öndvegi en það að sitja og borða kallar fram
alls kyns tilfinningar, kitlandi hlátur, sykurhúðaða væmni, persónulegar
harmsögur eða svakalegt stuð.
Margur Íslendingurinn hefur líka ferðast með því að neyta rétta frá
öðrum löndum: eins og til Indlands, Taílands, Kína, Víetnam, Bandaríkj-
anna, Spánar, Ítalíu og annarra spennandi staða. Á móti eru sumir virki-
lega pólitískir og fóru til dæmis aldrei á bandaríska skyndibitastaðinn
McDonald’s meðan færi gafst, einfaldlega vegna þess að þeim líkaði ekki
utanríkismálastefna Bandaríkjanna. En það verður að taka fram að þeir
voru fáir. Ekki virðast utanríkismál Kína og annarra Asíulanda trufla
landann, enda yfirleitt fullt út úr dyrum á þeim stöðum sem selja mat frá
þessum heimshlutum. Ef taka ætti einn rétt umfram annan og veita fálka-
orðuna yrði ítalska pítsan fyrir valinu, svo miklu ástfóstri hafa Íslendingar
tekið við þessa böku. Silvio Berlusconi tæki að sjálfsögðu við fálkaorðunni
fyrir hönd Ítalíu og yrði þá líka gaman að sjá upp á hverju hann tæki í
myndatökunni með forseta Íslands.
Þá umgangast ekki allir mat með sama hætti. Fólk virðist ganga sundur
og saman hvað kílóin varðar. Hátt á vinsældalista nútímafólks skora til
dæmis matarkúrar frá ýmsum heimsálfum, sem ganga
jafnvel út á svelti eftir að hafa borðað yfir sig.
Sumir hafa tekið kúra eins og Atkins-kúr-
inn eða þann danska með trompi, mætt í
viðtöl til að sýna og sagt frá árangrin-
um en síðan fer engum sögum af því
hvort lífsstíllinn hafi haldið eða við-
komandi sprungið á kúrnum. Þá hafa
sumir reynt kúra sem eru bráðfyndn-
ir, eins og að borða eingöngu banana
eða hrísgrjón í margar vikur. Einhver
laug því til dæmis að hvítvínskúrinn
væri mjög árangursríkur. Það er mjög
trúlegt, enda lítur tilveran auðvitað
allt öðruvísi út eftir eins og tvö glös af
úrvals hvítvíni ...
FRÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Silbene og systir hennar
Marcia sjá um að töfra fram
brasilíska rétti en Þröstur
Ottósson, eiginmaður
Silbene, sér um reksturinn.
Nammi
namm!
A Aðal-réttur Hollt Hvunndags/til hátíðabrigða
Fugla-
kjöt
– fullt hús jólagjafa
og enn betri fréttir
Frábærar
Til þeirra þúsunda Íslendinga sem nota
Pro-Gastro8 við meltingarörðuleikum.
50% meira er af góðgerlum í hverju hylki sem þýðir
að sumir þurfa bara að taka inn 1 hylki á dag.
Pro-Gastro8 góðgerlanir vinna gegn erfiðri meltingu.
Pro-gastro8 fæst í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM
OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐANNA!