Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 52
21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR4
„Ég er að dúlla í þessu á kvöldin,“
segir Kristján brosandi þegar
hann er heimsóttur í skúrinn
heima. Erindið er að forvitnast
um tómstundaiðju hans, smíði á
svonefndum kjötgálga sem hann
hefur þróað. Hann kveðst hafa
heyrt af slíku þarfaþingi úti á
Spáni og fengið þá flugu í höfuðið
að útbúa eitt slíkt. „Ég var að
hjálpa einhentum manni þegar ég
smíðaði fyrsta gálgann. Sá hafði
misst hægri höndina í umferðar-
slysi og tjáði mér að hann ætti í
mestu erfið leikum með að skera
heilsteikt lambalæri með annarri
hendi. Það er þó hans uppáhalds-
matur,“ segir Kristján, sem starf-
ar sem umsjónarmaður fasteigna
hjá Samtökum líknarfélaga.
Síðan kveðst Kristján hafa
gert fleiri gálga, fundið enn betri
lausnir og fullkomnari útfærslur
og gefið vinum og kunningjum
afraksturinn. „Ég merki brettin
með nöfnum eða sumarbústaða-
heitum og geri þannig gjöfina
enn persónulegri. Svo hef ég líka
almennar áletranir eins og Gjörið
þið svo vel og fleira í þeim dúr,“
segir hann. Nú er hann kominn í
gírinn og fús til að smíða kjötgálga
fyrir Pétur og Pál. „Ég hef gaman
af þessari iðju,“ segir hann. „Því
áhaldið svínvirkar.“
gun@frettabladid.is
Persónulegur hlutur sem
nostrað hefur verið við
Kristján Sveinsson smiður er handlaginn og hugmyndaríkur náungi sem hefur hannað sérstakt búsáhald.
Það er skurðarbretti sem heldur heilum lambalærum í föstum skorðum. Hann kallar það kjötgálga.
Kristján með gálgann sem auðveldar allan niðurskurð á kjöti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Trúbadorarnir Unnur Arn-
dísardóttir, eða Uni eins og
hún kallar sig, og Jón Tryggvi
Unnarsson hafa stillt saman
strengi sína og æft upp jóla-
söngva og lög af nýútgefnum
sólóplötum þeirra beggja.
„Þetta er einlægt og fallegt efni
sem skapar fallega og skemmti-
lega jólastemningu við hvaða til-
efni sem er,“ segir Uni þegar hún
er spurð út í dagskrána sem þau
Jón Tryggvi hafa æft. Hún nefn-
ir lög eins og Nóttin var sú ágæt
ein, White Christmas og Bráðum
koma blessuð jólin sem séu á list-
anum. „Já, við verðum á rólegu
nótunum frekar en hitt, þannig
að fólk má ekki búast við okkur
í banastuði,“ tekur Jón Tryggvi
undir. „Reynum að hafa þetta
eins notalegt og hægt er.“
Uni og Jón Tryggvi spila á gít-
ara undir söngnum og eru bæði
að gefa út sínar fyrstu sólóplötur
um þessar mundir – þó ekki með
jólalögum. Uni segir þau hafa
verið að spila saman allt þetta ár
en hún fór líka um landið í sumar
í söngferðalag með kventrúba-
dorum sem kalla sig Trúbatrix-
urnar.
Þá sem vantar lifandi tónlist
fyrir jólahlaðborð, litlu jól eða
annað tilefni geta haft samband
við Uni í síma 696-5867 eða Jón
Tryggva í síma 770-2156. - gun
Verða á rólegum
jólanótum
Unnur og Jón Tryggvi syngja saman á hverjum degi og eru því vel undirbúin fyrir
aðventuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skoðaðu matseðilinn okkar · www.castello.is · sími: 577 3333
Í tilefni 2 ára afmæli Castellos
40% afsláttur af sóttum pizzum
tilboð gildir ekki í sal