Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 84
56 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Innilegar þakkir færum við þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
Svölu Árnadóttur
Ekrusmára 1, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til þeirra sem komu að umönnun og
veittu aðstoð í veikindum hennar.
Björn Pálsson
Margrét Erla Björnsdóttir Sverrir Guðmundsson
Björn Fannar Björnsson
Sandra Dögg Björnsdóttir Hafþór Davíð Þórarinsson
Bjarki Rúnar Sverrisson og Björn Þór Sverrisson.
Bróðir okkar,
séra Ásgeir Ingibergsson
lést að morgni 18. nóvember á sjúkrahúsi í Edmonton,
Kanada. Útförin hefur farið fram.
Systkini hins látna.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs sonar okkar,
bróður, mágs og frænda,
Hauks Jóhannssonar
Sólheimum 1, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Víðihlíð fyrir hlýja og
góða umönnun.
Jóhann Hauksson Sigríður Hermanns
Friðrik Jóhannsson Eygló Björnsdóttir
Sólveig Jóhannsdóttir Sushant Sinha
Ásta Jóhannsdóttir
Guðrún Jóhannsdóttir Guðmundur Njálsson
og systkinabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Sighvatsdóttir
frá Ási, Vestmannaeyjum,
Strikinu 10, Garðabæ,
lést á Landspítalanum, sunnudaginn 15. nóvember.
Jarðsungið verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ
fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 13.00.
Þeim sem vija minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Friðrik E. Ólafsson
Erna Friðriksdóttir Stefán Halldórsson
Ólafur Friðriksson Þuríður Guðjónsdóttir
Sighvatur Friðriksson Hjördís Hjálmarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Herdís Steinsdóttir
Akurgerði 44, Reykjavík,
lést á öldrunardeild Landspítalans í Fossvogi föstudag-
inn 13. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 23. nóvember kl. 13.00.
Lóa Gerður Baldursdóttir Örn Ingólfsson
Jón Birgir Baldursson Þórunn Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður og afa,
Kjartans I. Jónssonar
Sóleyjarima 15.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Ámundadóttir
Árni Hrafnsson Birna Guðjónsdóttir
Jóhann Berg Kjartansson Lotte Munch
Margrét Björk Kjartansdóttir Stefán H. Birkisson
og afabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðleif Helgadóttir
áður til heimilis að Byggðarholti 29,
Mosfellsbæ,
lést að Hrafnistu,Víðinesi hinn 18. nóvember.
Fyrir hönd aðstandenda:
Hallgrímur Greipsson Eli Paulsen
Kristján Greipsson Borghildur Ragnarsdóttir
Guðbjörg Greipsdóttir
Pálína Lórenz
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Jóns Sveinssonar
Grjótaseli 12, Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við þeim sem önnuðust hann
í veikindum hans á Dagvist Vitatorgs og hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ, Vesturbæ. Þökkum alla þá hlýju
og elsku sem hann naut hjá ykkur. Einnig kærar þakkir
til félagsins Bergmáls sem bauð okkur til vikudvalar
tvö sumur í röð að Sólheimum í Grímsnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Anna Jóna Ingólfsdóttir
Ingólfur Jónsson Ragna Halldórsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
Böðvar Jónsson, bóndi á
Gautlöndum
lést hinn 14. nóvember á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga. Útförin fer fram frá Skútustaðakirkju,
Mývatnssveit sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.00.
Ásgeir, Jóhann, Jón Gauti, Sigurður Guðni og Björn.
„Við getum lofað því að dagskráin
verður fjölbreytt. Hefðbundin karla-
kórslög, Jóns Múla syrpa, popp og svo
eitthvað hátíðlegt í lokin,“ segir Hörður
Jóhannesson, formaður Lögreglukórs
Reykjavíkur, um tónleikana í Laugar-
neskirkju í dag klukkan 16. Þar verð-
ur þess minnst að sjötíu og fimm ár
eru liðin frá stofnun kórsins. „Þetta
er elsti félagsskapur lögreglunnar
hér á landi, að því er við best vitum.
Kórinn var stofnaður 1934 en stéttar-
félag lögreglumanna ekki fyrr en ári
síðar, segir Hörður. „Eftir því sem við
komumst næst var einhver gamall að
hætta í löggunni og félagar hans stóðu
upp og tóku nokkur lög. Það lukkaðist
svo vel að þeir ákváðu að halda áfram
að syngja saman og upp úr því varð
kórinn til.“
Hann segir kórinn hafa þróast og
breyst með tímanum en þó konur
hafi gert sig gildandi í löggæslunni
hafi hann þó ekki breyst í blandaðan
kór. „Hann hefur heldur ekki stækk-
að þó fjölgað hafi verulega í röðum
lögreglunnar. Það voru held ég 35 sem
skrifuðu undir stofnfundargerð í upp-
hafi og samt voru ekki nema milli 40 og
50 manns í lögreglunni. Enn eru bara
um 30 manns í kórnum þó um 300 starf-
andi lögreglumenn séu á höfuðborgar-
svæðinu eftir sameiningu liðanna í
Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði
2007. En það er mikil aldursbreidd í
okkar röðum. Þar eru ungir menn sem
enn eru nemendur Lögregluskólans og
sá elsti fór á eftirlaun fyrir nokkrum
árum. Hinir eru þar á milli.“
Hörður segir Lögreglukórinn fjöl-
hæfan og lýkur lofsorði á söngstjór-
ann til tuttugu ára, Guðlaug Viktors-
son. „Guðlaugur er mjög metnaðarfull-
ur og drífandi. Ásamt karlakórslögum
fáum við að spreyta okkur á dægurlög-
um og popplögum í bland. Líka kirkju-
legri tónlist, bæði íslenskri og erlendri,
því auk þess að koma fram á tónleik-
um, bæði einir og með öðrum, syngj-
um við reglulega við jarðarfarir lög-
reglumanna. Svo förum við á kóramót
erlendis því við tökum þátt í samstarfi
norrænna lögreglukóra sem hafa hald-
ið mót á fjögurra ára fresti frá 1950,“
segir Hörður og minnist slíkra móta hér
á landi 1966, 1988 og 2004. „Við vorum
á móti á Álandseyjum 2008 sem Finn-
ar héldu og næsta mót er í Danmörku
2013,“ segir hann. „Þá verður danski
kórinn 100 ára svo eflaust verður mikið
um dýrðir.“
Lögreglukórinn hefur gefið út tvo
diska á einum áratug, 1999 og svo 2005
og þó sá síðari hafi verið gefinn út í
5000 eintökum er hann ófáanlegur í dag
en Hörður upplýsir að verið sé að leggja
drög að nýjum diski á næsta ári. Kór-
inn söng í upphafsatriði Mýrarinnar og
jók þar með enn hróður sinn því myndin
hefur verið sýnd um víða veröld.
Hljóðfæraleikarar á tónleikunum
í Laugarneskirkju í dag eru Gunnar
Gunnarsson á píanó, Tómas R. Einars-
son á bassa, Ómar Guðjónsson á gítar
og Scott McLemore á slagverk. „Þetta
er einvalalið og efnisskráin er fjöl-
breytt,“ segir Hörður sannfærandi og
tekur fram að tónleikarnir séu opnir
öllum meðan húsrúm leyfi en aðgangs-
eyrir sé fimmtán hundruð krónur.
gun@frettabladid.is
LÖGREGLUKÓR REYKJAVÍKUR: HELDUR TÓNLEIKA Í TILEFNI 75 ÁRA AFMÆLIS
Elsti félagsskapur lögreglunnar
LÖGREGLUKÓRINN Efnisskráin á tónleikunum í dag verður fjölbreytt, hefðbundin karlakórslög í bland við létta tónlist við undirleik færustu hljóð-
færaleikara. MYND/ÚR EINKASAFNI