Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 88
60 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
ath kl. 17.
Í dag verða tónleikar þar sem flutt
verður tónlist eftir Fr. Conti, J. J.
Fux og A. Caldara, en þeir voru allir
hirðtónskáld hjá Karli VI sem var
uppi 1685-1740. Fram koma söngvar-
arnir Bergþór Pálsson, Hlín Péturs-
dóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Þór-
unn Guðmundsdóttir og 11 manna
kammersveit. Umsjón með tónleik-
um hefur Kjartan Óskarsson og er
aðgangur ókeypis.
Nýtt verk eftir Þóru Marteins-
dóttur verður flutt á tónleikum
Kórs Langholtskirkju á morgun kl.
17. Á morgun er dagur heilagrar
Sesselíu, verndara tónlistarinnar
í kaþólskum sið. Verk Þóru sem
frumflutt verður samdi hún fyrir
kórinn nú í haust með styrk frá
Musica Nova. Verkið heitir „Ave
maris stella“ eða á íslensku „Heill
þér hafsins stjarna.“
Kór Langholtskirkju, Tritonus kór-
inn í Danmörku og kammerkórinn
Skýrák frá Færeyjum voru í þriggja
ára samstarfi frá árinu 2002-2004.
Kórarnir hittust árlega, fyrst hér
á Íslandi árið 2002, í Danmörku
2003 og Færeyjum 2004. Ný verk voru samin
fyrir kórana á hverju ári og síðasta árið voru svo
öll verkin flutt í Færeyjum.
Á tónleikunum munu flest þessara
verka hljóma. Þau eru eftir John
Høybye, stjórnanda Tritonus;
„Magnificat,“ „Nunc dimittis“ og
„Lift up your Heads,“ Kára Bæk
stjórnanda Skýrák; „Elisabeth
song“ og íslensku tónskáldin Báru
Grímsdóttur; „Psalmus 47“ og
Hildigunni Rúnarsdóttur; „Psalmus
150.“ Auk þessara verka flytur kór-
inn „Ég vil vegsama Drottin“ sem
Árni Harðarson samdi fyrir Kór og
Graduale-kór Langholtskirkju árið
1997, „Ég byrja reisu mín“ í útsetn-
ingu Smára Ólasonar, Kvöldvers
eftir Tryggva M. Baldvinsson og
„Hver sem að reisir hæga byggð“
eftir Báru Grímsdóttur.
Tónleikarnir hefjast sem fyrr sagði á morgun
kl. 17.
Heill þér hafsins stjarna
Leiklist ★★★
Rautt brennur fyrir
eftir Heiðar Sumarliðason
Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Tónlist: Frank Hall og Magnús
Helgi Kristjánsson. Lýsing: Björn
Bergsteinn
Það er margt vel gert í verki Heið-
ars Sumarliðasonar sem frum-
flutt var á fimmtudag á Nýja sviði
Borgarleikhússins. Jafnvel þótt
persónurnar renni eftir einum
teini í verkinu og líti ekki mikið
til hliðanna: tveir karlmenn, tvær
konur, tvö hjónabönd sem bæði
eru feig.
Ljósmóðir sem stundað hefur
marglæti, eins og það var kallað
til forna, með aðstoð Netsins, býr
með heldur komplexeruðum strák.
Hún stýrir, hann er lítilþægur en
undir blundar ofsakennt kvenhat-
ur. Hinum megin er lítilsigld sál,
stúlka sem þráir öryggi umfram
annað, hún er barnshafandi með
karlmanni sem gengur upp í
frumstæðri dýrkun karlmennsku
í sinni öfgakenndustu mynd en
sá er frá hendi skapara síns með
latt sæði, nánast ófrjór, sem leiðir
hann líka í ofbeldisfulla kynlífs-
leiki - utan heimilis. Brautirnar
eru dæmdar til að skerast.
Í nánast tómu sviðsrými eru
borð og tveir stólar og sófi en í
baksýn eru útlínur af herbergja-
skipan sem bakveggur. Fjórir
míkrafónar koma við sögu og sam-
skipti á Netinu rakin á bakveggn-
um. Þetta er snoturlega sviðsett
verk, fallegt í einfaldleika sínum,
trixið með útlínur dregnar þráð-
um á bakvegginn er sniðugt.
En allir hafa sinn djöful að
draga: Raddgæði Dóru Jóhanns-
dóttur verða henni til trafala á
ferlinum en hún hefur persónuleg-
an þokka sem naut sín vel í laus-
lætissögum Benidorm. Jörundur
verður nokkra hríð að losna úr
sjónvarpshlutverki sínu og ætti
leikhússtjórinn að setja hann
alfarið hlutverk næstu misseri
sem eru alls ólík því.
Sveinn Ólafsson er sannfærandi
í sinni takmörkuðu rullu, raun-
ar reyndist Þorbjörg Helga Þor-
gilsdóttir gera mest úr sínu litla
efni.
Sagan er sem sagt svolítið rýr
og yfirlýsingar höfundar í leik-
skrá um góða ætlan og áhuga
standa ekki undir því sem á svið-
inu sést. Það er í samtíma okkar
rík þörf fyrir speglun okkar tíma .
Einkenni á mörgum verkum yngri
höfunda að þráður í persónusköp-
un er rýr og átökin þröng: stjórn-
semi á kynlífi, ofbeldisfullt kynlíf
með ókunnugum, barinn karlmað-
ur og hrædd kvensál eru hér í
boði. Er einhver áhugi á víðu sam-
félagslegu samhengi?
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Einfalt byrjandaverk í
snoturri sviðsetningu
Einföld uppskrift í boði
> Ekki missa af
Cecilíu-óratoríu Áskels
Mássonar við texta Thors
Vilhjálmssonar sem verða í
Hallgrímskirkju í dag kl. 16.
Mótettukór Hallgrímskirkju
flytur ásamt fjölda hljóðfæra-
leikara. Einstakur viðburður.
Þeir sem ekki eiga heiman-
gengt geta heyrt beina útsend-
ingu frá tónleikunum á rás 1
Ríkisútvarpsins.
TÓNLIST Þóra Marteinsdóttir
tónskáld
Sigurjón Jóhannsson, leikmynda-
teiknari og myndlistarmaður,
opnar í dag sýningu á nýjum
klippimyndum og vatnslitamynd-
um í sýningarsal Gallerís Foldar
við Rauðarárstíg. Sigurjón bland-
ar þar saman fornum minnum frá
upphafsárum sínum á Siglufirði
síldaráranna og fyrstu skrefa
sinna í poplistinni sem hann tók
upp eftir örlagaríka heimsókn
þeirra Hreins Friðfinnssonar til
London þar sem þeir kynntust
ármönnum breska poppsins. Nú
rekast samtímaleg minni úr aug-
lýsingamyndum okkar daga á við
eftirsjá í mildum vatnslitaminn-
um frá síldarárunum í þorpinu.
Sigurjón á að baki fjölbreyttan
feril sem myndlistarmaður ögr-
andi í tökum og efnum í fyrstu
áður en hann tók til starfa í leik-
húsinu þar sem hann átti sér
langan starfsferil með viðkomu
í kvikmyndum. Hann er enn að
en hefur einkum einbeitt sér að
fígúratífum minnum.
Hann var einn af fjórum stofn-
endum SÚM-hópsins 1965 og
sýndi með honum fram til 1971
og aftur á Kjarvalsstöðum 1989.
Verk hans eru í eigu fjölmargra
fyrirtækja og stofnana, auk
safna.
Sýningin er opin til 6. desem-
ber.
Aftur í klippimyndir
MYNDLIST Eitt verka Sigurjóns á sýning-
unni í Fold.
Á morgun verður viðamikil
kynningardagskrá í Gerðu-
bergi á verkum kvenna og
hafa þær valið sér gamal-
kunnugt og umdeilt heiti á
skáldskap og fordóma sem
yfirskrift: Kellíngabækur.
Á dagskránni er upplestur úr verk-
um eftir konur af ýmsum toga,
skáldsögum, ljóðabókum, ævisög-
um, barnabókum og fræðiritum.
Dagskráin fer fram í Gerðubergi
frá kl. 13-17. Háskólanemar hafa
umsjón með „Kellíngunni á kassan-
um“ þar sem höfundar stíga á stokk
og lesa upp úr glænýjum bókum.
Barnabókahöfundar lesa upp úr
verkum sínum á bókasafninu og þar
er jafnframt sýning á bókum þeirra
kvenna sem hlotið hafa Fjöruverð-
launin, bókmenntaverðlaun kvenna,
síðustu árin. Höfundar og forleggj-
arar kynna og selja bækur sínar
á sérstöku tilboðsverði í anddyri
hússins.
Í G-sal á neðri hæð verður útvarp-
að beint leikriti Jónínu Leósdóttur,
Faraldri, og hefst það kl. 14. Klukk-
an 14.30 leiðir Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir gesti um sýninguna
Óreiðu, sem sett var upp í tilefni af
Ritþingi Kristínar Marju Baldurs-
dóttur hinn 31. okt síðastliðinn. Það
er Góugleði- og Fjöruverðlaunahóp-
urinn sem stendur að þessari kven-
legu bókakynningu í samstarfi við
Gerðuberg. Og nærri eru ekki bara
ávextir kvenna heldur líka verkfæri
sem þeim eru oft tæk.
Í Gerðubergi verður opnuð sýning
á morgun er líður á daginn: kl. 17
verður opnuð sýning Sigurðar Árna-
sonar og Þórarins Eldjárns á eldhús-
áhöldum í Safnarahorni Gerðubergs.
Á opnuninni flytur Valgeir Guðjóns-
son eigin lög við ljóð Þórarins.
Þeir Sigurður og Þórarinn hafa
frá bernsku verið félagar eftir að
hafa alist upp á háskólalóðinni.
Fáum er aftur á móti kunnugt um
keppni þeirra í söfnun á eldhús-
áhöldum. Þeir hafa nú sameinað
krafta sína og sýna áhöldin undir
yfirskriftinni Um eldhúsáhöld eru
áhöld. Sum áhöldin á sýningunni eru
kunnugleg og til á flestum heimilum
en önnur eru framandi og erfitt að
ímynda sér notagildi þeirra. Skanka-
skaft, eggjaklippur, maíshefill og
bananahylki eru meðal þess sem
fyrir augu ber. Áhöldin eru annars
vegar sýnd í lokuðum sýningarskáp-
um og hins vegar hangandi í óróa
yfir eldhúsborði sem prýðir sýning-
una. Eldhúsáhöldum eru einnig gerð
skil í texta á vegg. Dæmi um heiti
sem þar koma fram eru; afskeri,
alskeri, aðskeri, úrskeri, ískeri,
fráskeri, viðskeri, hjáskeri og flag-
ari, merjari, berjari, slítari, tætari,
þeytari.
Í bókinni Eins og vax eftir Þór-
arin Eldjárn frá árinu 2002 er smá-
sagan Ómerkingurinn. Sagan fjallar
um safnara sem safnar eldhúsáhöld-
um. Söguna samdi Þórarinn og
færði vini sínum Sigurði að gjöf í
tilefni stórafmælis. Í sögunni segir
frá áráttu safnarans og sérstöku
áhaldi sem nefnt er ómerkingurinn
sem reynist þegar til kemur vera
stórmerk brauðmylsnuskafa. Mylsn-
usköfuna er að finna á sýningunni
enda er hún merkilegt áhald á veit-
ingastöðum í Evrópu. Yfirbragð sýn-
ingarinnar er fágað og svolítið fynd-
ið, enda húmorinn ekki langt undan
þegar ónytsamleg eldhúsáhöld eru
annars vegar. Sýningarstjóri er Þór-
unn Elísabet Sveinsdóttir, myndlist-
armaður og búningahönnuður.
pbb@frettablaðið.is
Bækur og tæki kvenna
BÓKMENNTIRSteinunn Sigurðardóttir skáldkona er ein þeirra sem troða upp á dag-
skránni Kellíngabækur í gerðubergi á morgun. FRETTABLAÐIÐ/HARIÁrsfundur
2009
Stjórn Listaháskóla Íslands
Listaháskólans
Listaháskóli Íslands boðar til ársfundar
miðvikudaginn 25. nóvember kl.16:30.
Fundurinn verður haldinn í tónlistarsal skólans
við Sölvhólsgötu, gengið inn frá horni
Skúlagötu og Klapparstígs.
Á fundinum kynna stjórnendur skólans starfsemi
hans og rekstur. Fyrirspurnir og umræður.
Fundurinn er öllum opinn.