Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 21. nóvember 2009 3
Kötturinn hennar Önnu Ingólfs-
dóttur er enginn venjulegur kött-
ur. Hann heitir Rökkvi og kemur
eiganda sínum sífellt á óvart með
hegðun sinni og atferli. „Ég á svo
margar sögur af honum Rökkva,“
segir Anna Ingólfsdóttir, sem við-
urkennir að hún fyrirgefi honum
næstum allt. „Það vita flestir sem
eiga gæludýr að það ríkir nánast
skilyrðislaus ást á milli mann-
eskju og skepnu,“ segir Anna
og brosir. „Rökkvi er vissulega
stundum óvenjulegur og gerir
óvenjulega hluti. Hann borðar
til dæmis ekki gæðafæðu eins og
ferskan soðinn fisk eða kjúkling
en hins vegar finnst honum ullar-
sokkar og hárteygjur bragðgóðar.
Það fer hins vegar ekki vel í mag-
ann á honum og eitt sinn, eftir að
greyið hafði ælt og ælt, þurfti ég
að fara með hann til dýralæknis
sem sagði að hann þyrfti bara að
vera á sjúkrafæði eftir allt þetta
át.“
Anna segir að Rökkvi sé mjög
barngóður og mikil félagsvera
þrátt fyrir að vera með ýmsa
áráttu hvað varðar mat og fleira.
„Ég átti svo margar sögu af
kisunni minni og fólk hafði svo
gaman af þeim að ég ákvað eftir
nokkra hvatningu að semja bók
og gefa út. Bókin heitur Mjall-
hvítur en það er nafnið sem ég
vildi upphaflega gefa kettinum,
sem er bröndóttur, en dætrum
mínum fannst það ómögulegt.
Bókin er byggð á ævi Rökkva
en Mjallhvítur er heimilisköttur
eins og hann og lendir í ýmsum
ævintýrum og sumum meiri en
Rökkvi. Hann er fremur óhepp-
inn, til dæmis missir hann fót
í bílslysi og haltrar eftir það á
þremur. Það er þó ekki langt
þar til Mjallhvítur er farinn að
hlaupa á öllum þremur og veiðir
bæði dána og lifandi fugla eins
og ekkert sé og kemur með bráð-
lifandi mýs inn í hús til að leika
sér að.“ Anna segir að Rökkvi sé
þó engin bókaæta, svo að varla
myndi hann éta hálfgerða ævi-
sögu sína. „En hann liggur stund-
um á henni eins og ormur á gulli,“
segir hún og hlær.
unnur@frettabladid.is
Ævintýri hins þrífætta Mjallhvíts
Mjallhvítur er saga um ævintýralegan þrífættan kött sem fúlsar við nýsoðnum fiski en kýs heldur hárteygjur og ullarsokka. Anna Ingólfsdóttir
skrifar bókina um Mjallhvítan og byggir hana á bröndótta heimiliskettinum sínum, Rökkva.
Rökkvi, köttur Önnu, var á útstáelsi
þegar ljósmyndara bar að garði og varð
því Mjallhvítur að vera á mynd í staðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Starfsemi Ljóðaunnenda á Austur-
landi verður kynnt í stuttu máli
við upphaf bókakynningarinnar
sem fram fer í Bókabúð Máls og
menningar á Laugavegi 18.
Í kjölfarið verða kynntar þrjár
bækur og lesið upp úr þeim. Sú
fyrsta heitir Geislaþytur og er úrval
úr sögum og ljóðum eftir Gunnar
Valdimarsson, fyrrverandi bónda
í Teigi í Vopnafirði. Önnur ljóða-
bókin er Og lífsfljótið streymir eftir
Oddnýju Sv. Björgvins. Bókin er
óður til náttúrunnar og höfund-
ur birtir auk ljóðanna ljósmyndir
sínar úr íslenskri náttúru.
Þriðja bókin sem lesið verður
úr er Bréf til næturinnar – ástar-
saga, ljóðabók eftir Kristínu Jóns-
dóttur, bónda á Hlíð í Lóni.
Lesið upp úr ljóða-
bókum á Laugavegi
FÉLAG LJÓÐAUNNENDA Á AUSTUR-
LANDI STENDUR FYRIR BÓKA-
KYNNINGU Í BÓKABÚÐ MÁLS OG
MENNINGAR Í DAG KLUKKAN 16.
Náttúra Austurlands kemur mikið
við sögu í ljóðabókunum.
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
íslen
sk fr
amle
iðsla
Boston-lux NICE
man-8356 3+1+1
Roma boston-lux
Tungusófar
Sófasett
Stakir sófar
Hornsófar
íslen
sk fr
amle
iðsla
íslen
sk fr
amle
iðsla
íslen
sk fr
amle
iðsla
Bonn
149.900 k
r
verð áð
ur 399.9
00 kr
P-8185
íslen
sk fr
amle
iðsla
299.900 k
r
íslen
sk fr
amle
iðsla
verð áð
ur 469.0
00 kr
man-87-leður bogasófi
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
MAXIWELL II NUDDARINN
• LÍTILL OG ÞÆGILEGUR
• HÆGT AÐ NOTA Á ALLAN LÍKAMANN
• LOSAR UM VÖÐVABÓLGU OG HARÐSPERRUR
• ENDURNÆRIR HÁLS, AXLIR, BAK OG FÆTUR
• STERKUR OG ENDINGARGÓÐUR
• TVEGGJA ÁRA VERKSMIÐJUÁBYRGÐ
LOGY EHF - BERJARIMA 6 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI. 661 2280
WWW.LOGY.IS