Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 12
12 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Óska eftir að kaupa
íslensk-ensku námskeið
Óska eftir að kaupa íslensk-ensku Lingapon námskeið. En ég tel nær fullvíst að
aðeins eitt íslenskt – ensku Lingapon námskeið hafi komið út á Íslandi. Kennslubókin
var innbundin kilja en bæði hærri og breiðari en venjuleg kilja.
Eigir þú námskeiðið þá borga ég glaður 40.000 kr fyrir námskeiðið.
Viljir þú ekki selja getum við samið um greiðslu fyrir afnot af bókinni.
Sími. 865-7013
E
N
N
E
M
M
/
SÍ
A
/
N
M
39
89
8
Óskabrunnur barnanna sló í gegn
þegar þær Skoppa og Skrítla
vígðu hann í Borgarleikhúsinu í
gær. Vígslan var hluti af Alþjóð-
legri athafnaviku og gerðu börn-
in, sem voru á aldrinum fjögurra
til sjö ára úr þremur skólum á
höfuðborgarsvæðinu, verkefni
tengd því hvað þau vilji verða
þegar þau verða stór.
Óskabrunnurinn er þannig gerð-
ur að börnin ganga inn í hann og
hengja óskir sínar í klemmur á
hann innanverðan. Að því loknu
settust þau umhverfis brunninn,
lokuðu augunum og hugsuðu um
óskirnar.
Nokkur barnanna vildu verða
veiðimenn, læknar, lögreglumenn
og einn drengur vildi verða for-
seti Bandaríkjanna. Börnin sungu
nokkur lög með þeim Skoppu og
Skrítlu en fengu síðan í heimsókn
nokkra einstaklinga sem kynntu
störf sín fyrir börnunum. Þar á
meðal var lögregluþjónn, hjúkr-
unarfræðingur, slökkviliðsmenn,
vörustjóri hjá stoðtækjafyrirtæk-
inu Össuri og fjölmiðlakonan Eva
María Jónsdóttir. Hundur sem
hundasnyrtir mætti með á vígsluna
vakti óskipta athygli barnanna.
- jab
ÓSKIR HENGDAR UPP Um hundrað óskir bættust við þær þrjátíu þúsund sem
Skoppa og Skrítla hafa safnað víða um heim í nokkur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Rúmlega hundrað börn vígðu óskabrunn Skoppu og Skrítlu í Borgarleikhúsinu:
Einn vildi verða forseti BNA
ATHAFNAVIKA: Samráðsfundur um umhverfisvænar áherslur í atvinnu- og menningarlífi
Lokahátíð Alþjóðlegu athafnavik-
unnar sem halda átti á morgun
hefur verið frestað fram í næstu
viku. Kynna átti niðurstöður í
hugmyndasamkeppninni Snilldar-
lausnir – Marel á lokahátíðinni.
Þátttakendur í keppninni áttu
að auka virði herðatrés, gera upp-
töku af virðisaukningu þess og
senda á netsíðu keppninnar í síð-
asta lagi á hádegi 15. nóvember.
Mörg myndbönd hafa borist
og mun dómnefndin fara í gegn-
um þau og meta á morgun. Minni
viðburðir verða víða um land en
úrslit hugmyndasamkeppninnar
kynnt í vikunni, að sögn aðstand-
enda Athafnavikunnar. - jab
Lokahátíð Athafnaviku frestað:
Úrslit Snilldarlausna í næstu viku
„Orkuverið er skemmtilegur vett-
vangur til að koma saman tveim-
ur heimum, hönnuðum með hug-
myndirnar og fólkið sem kann að
virkja þær,“ segir Jóhanna Dýrunn
Jónsdóttir, markaðsstjóri Athafna-
vikunnar, um Orkuverið sem hald-
ið verður á Háskólatorgi á milli
klukkan 15 og 17 í dag.
Orkuverið er eins konar hrað-
stefnumót þar sem hönnuðir fá
möguleika á að kynnast og tengj-
ast viðskiptafræðingum,
verkfræðingum,
markaðsfræðing-
um eða öðrum með
rekstrarreynslu.
Fyrirkomulag
er með þeim
hætti að þátt-
takendur setj-
ast tveir saman
í fimm mínút-
ur og spjalla saman.
Að fimm mínútum
liðnum þurfa þeir
báðir að skipta
um sæti.
Þetta hefur verið gert nokkrum
sinnum á árinu og minnist Jórunn
þess að sautján manns hafi tekið
þátt á síðasta stefnumótafundi.
Hún minnist þess að vöruhönn-
uðurinn Siggi Anton hafi verið einn
þeirra sem hafi náð góðum árangri
á stefnumótafundi Orkuversins.
Á eitt þeirra kom hann með hug-
mynd að veggljósinu Lucio og
hitti þar viðskiptafræðinginn
Guðbjörgu Jóhannsdóttur.
Að Orkuverinu standa Inn-
ovit, Klak, Félag viðskipta-
og hagfræðinga og Hönn-
unarmiðstöð Íslands.
Þeir sem áhuga hafa
á að taka þátt verða
að mæta með kynn-
ingu á sjálfum sér
þar sem fram kemur
menntun, fyrri
rey nsl a og
áhugasvið.
- jab
Hugmyndaríkir hönnuðir og markaðsfólk hittist:
Vörur öðlast líf
í Háskólanum
SIGGI ANTON
OG GUÐBJÖRG