Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 94
66 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
„Með þessa galdrakarla, Davíð, Adda,
Guðna og Pétur, þarf maður að vera
ansi lélegur að klúðra þessu,“ segir
tónlistarmaðurinn Mugison um sína nýj-
ustu plötu. Þar er að finna níu gömul
lög eftir hann í nýjum útgáfum, þar á
meðal Murr Murr, I Want You og Go
Blind. Lögin spiluðu þeir félagar í
breyttum útgáfum á tónleikaferð
sinni um heiminn til að fylgja
eftir plötunni Mugiboogie. „Þetta
voru vel yfir hundrað tónleikar á
einhverju hálfu ári. Síðustu tvö ár
höfum við túrað dálítið mikið og mér
fannst svo gaman hvað lögin voru allt-
af að breytast, sem er kannski eðlilegt
þegar maður spilar svona mikið,“ segir
Mugison. „Ég ákvað að kýla á þetta og
skrásetja þetta, þannig að ég fór með
strákunum í stúdíó og pantaði pitsur
og bjór. Þetta var æðislegur dagur.“
Mugison er þessa dagana á tónleikaferð
um landið til að kynna nýju plötuna ásamt
gítargoðsögninni Björgvini Gíslasyni.
„Það hefur gengið mjög vel. Það er frá-
bært að fá að kynna Bjögga fyrir minni
kynslóð sem þekkir hann kannski ekki
nógu vel.“
Framundan hjá Mugison er að ljúka við
gerð nýs hljóðfæris, sem hann er einmitt
að prufukeyra á tónleikaferðinni. Á næsta
ári eru síðan væntanlegar tvær plötur frá
honum. Önnur þeirra er sungin á íslensku
en hin er tilraunakennd þar sem nýja
hljóðfærið kemur við sögu. - fb
Galdrakarlar spila breytt lög
MUGISON Tónlistarmaðurinn Mugison er á
tónleikaferð um landið til að kynna sína nýjustu
plötu.
Sigríður Halldóra Matthíasdóttir
l í kamsræktarþjá lfar i , eða
Sigga Dóra, er hvergi smeyk við
kreppuna heldur opnar í dag
400 fermetra líkamsræktar- og
heilsumiðstöð.
„Ég er alveg ósmeyk við þetta,“
segir Sigríður Halldóra Matthías-
dóttir líkamsræktarþjálfari, eða
Sigga Dóra, sem opnar í dag 400
fermetra líkamsræktar- og heilsu-
miðstöð á Stórhöfða 17. Sigga Dóra
er enginn nýgræðingur þegar
kemur að heilsurækt því hún hefur
kennt í Veggsporti og Varma í Mos-
fellsbæ um árabil, auk þess sem
hún heldur regulega lífsstílsnám-
skeið fyrir smærri hópa á Flór-
ída. „Nú er ég að láta drauminn
rætast og opna líkamsræktarstöð
með glæsilegri dekurstofu á efri
hæðinni. Þar verður meðal annars
gufubað, nuddarar og höfuðbeina-
og spjaldhryggsmeðferð. Sjálf verð
ég áfram með Líkama og sál nám-
skeið og svo verða allskyns nýjung-
ar, svo sem danskennsla, jóga og
jafnvel spákonur. Allt sem snýr að
heilsu og dekri,“ segir Sigga Dóra
sem var önnum kafin við að leggja
lokahönd á húsnæðið fyrir opn-
unina þegar blaðamaður náði tali
af henni. „Fasteignabransinn var
hérna til húsa árið 2007, en nú er
gaman að sjá þetta húsnæði vera
nota fyrir dekur og til að fá fólk til
að hugsa um heilsuna,“ bætir hún
við.
En er ekki erfitt að opna nýja
heilsuræktarstöð í kreppunni?
„Það hefur verið vaxandi aðsókn
í líkamsræktina hjá mér og mér
finnst fólk vera að sækja meira í
að fá líkamann og andlegu heilsuna
í lag. Ég er ekki fjárhagslega vel
stödd, en ég er svo heppin að ég hef
marga kúnna sem hafa verið hjá
mér til margra ára og þar á meðal
eru arkitekt, smiður, rafvirki og
pípari. Þeir lögðu fram sína vinnu
og hvöttu mig til að taka sénsinn,“
segir Sigga Dóra. - ag
Viðskiptavinirnir hjálpuðu
LÚXUS HEILSUMIÐSTÖÐ Sigga Dóra opnar 400 fermetra lúxus heilsumiðstöð á Stór-
höfða 17 milli klukkan 17 og 19 í dag. Þar verður boðið upp á fjölbreytta líkamsrækt
og dekur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hönnunarkeppni grunnskól-
anna fer fram á morgun.
Að sögn skipuleggjanda
keppninnar er þema keppn-
innar að þessu sinni endur-
vinnsla. 64 lið taka þátt.
„Það eru 64 lið sem keppa í ár,
alls staðar að af landinu,“ segir
Margrét H. Ægisdóttir, forstöðu-
maður Mekka og skipuleggandi
Stíls, hönnunarkeppni félags-
miðstöðva á Íslandi. Keppnin fer
fram í níunda sinn í Vetrargarð-
inum í Smáralind á morgun milli
klukkan 13 og 18. Þemað í ár er
endurvinnsla, en markmið Stíls
er að hvetja ungt fólk til listsköp-
unar og gefa því tækifæri til að
gefa sköpunargleðinni lausan
tauminn.
„Þau hanna flíkur, hár og förð-
un með þemað í huga. Ég veit
að margir eru búnir að vera að
vinna með dagblöð, gúmmíslöng-
ur, gamlar sokkabuxur, kertavax,
mjólkurfernur og kóktappa svo
eitthvað sé nefnt,“ útskýrir Mar-
grét og segir mikinn undirbún-
ing fara í keppnina. „Keppendur
þurfa að skila inn vinnumöppu
þar sem þeir fara í gegnum ferl-
ið og hvernig hugmyndin þróað-
ist, en þeir fá 15.000 krónur frá
félagsmiðstöðvunum sem þau
mega eyða í hönnunina og þurfa
að skila inn nótum fyrir því,“
segir hún. „Alls standa 67 fyr-
irtæki á bak við okkur og verð-
launin eru rosalega glæsileg.
Fyrstu verðlaun eru veitt fyrir
„heildarlúkk“, síðan veitum við
sér verðlaun fyrir hár, förðun,
hönnun og vinnumöppuna og svo
eru veitt heiðursverðlaun Sorpu í
ár,“ útskýrir Margrét. Dómnefnd-
ina skipa meðal annars tónlistar-
maðurinn Haffi Haff, Aðalheiður
Birgisdóttir, hönnuður í Nikita,
og starfsfólk frá hárgreiðslu-
stofunni Solid. Aðspurð segist
Margrét búast við góðri mæt-
ingu á keppnina. „Í fyrra mættu
um 2.000 manns svo ég býst við
troðfullum Vetrargarði í dag.“ - ag
Hanna út frá grænni hugsun
STÍLL 2009 Hönnunarkeppnin Stíll fer fram í Smáralind í dag milli klukkan 13 og 18 og býst Margrét við troðfullum Vetrargarði.
> ENGINN TÍMI FYRIR KYNLÍF
Desperate Housewives-leikkonan Eva
Longoria Parker segist hafa lítinn tíma
fyrir kynlíf. Longoria, sem er gift körfu-
boltakappanum Tony Parker, segir þau
einungis hafa tíma til að njóta ásta um
helgar þegar hún flýgur til Texas þar
sem Parker spilar með San Antonio
Spurs. Leikkonan, sem er 34 ára,
eyðir miklum tíma í upptökur í
Hollywood auk þess sem hún
rekur sitt eigið framleiðslufyrirtæki
og veitingastað.
NÆSTU TÓNLEIKAR:
21 nóv. Akureyri Græni Hatturinn
22. nóv. Hrísey Brekka
25. nóv. Mosfellsbær Sundlaugin í
kvosinni
26. nóv. Borgarnes Landnámssetrið
27. nóv. Reykjavík Batterí
Upplestrarkvöld Forlagsins á Rosenberg
á Klapparstíg, sunnudagskvöldið
22. NÓVEMBER KL. 20
Kynnir: Svavar Knútur
LJÁÐU MÉR EYRA!
Ragna Sigurðardóttir / Hið fullkomna landslag
Inga Dóra Björnsdóttir / Kona þriggja eyja
Arnaldur Indriðason / Svörtuloft (leynigestur les)
Jónína Leósdóttir / Ég & þú
Einar Már Guðmundsson / Hvíta bókin
Kristín Marja Baldursdóttir / Karlsvagninn (Silja Aðalsteinsdóttir les)
Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir
N1 Deildin
KONUR
Laugardagur
Mýrinni
Digranesi
Stjarnan - Víkingur
HK- KA/Þór
14:00
14:00
2009 - 2010
KARLAR
Mýrinni Stjarnan - FH 16:00