Fréttablaðið - 21.11.2009, Blaðsíða 98
70 21. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Tónlist ★★★
Tíu fingur og tær
Ívar Bjarklind
Lágstemmdur ástaróður
Tíu fingur og tær er önnur sólóplata Ívars
Bjarklind, sem hér á árum áður gat sér gott
orð sem knattspyrnumaður. Hann fékk til liðs
við sig atvinnumenn úr fótbolta og handbolta
til að aðstoða sig við fjármögnunina, enda er
hálfgerður atvinnumannabragur á útkom-
unni. Hljóðfæraleikurinn er vandaður og Ívar
leggur sál sína á borðið í textunum þar sem
ástin og vandamálin sem henni geta tengst
er umfjöllunarefnið. Platan er lágstemmd og
á hugljúfu nótunum rétt eins og sú fyrri. Hún
er tilvalin til að skella á fóninn þegar maður
á stund á milli stríða í amstri dagsins og vill slaka á yfir þægilegu poppi.
Stundum er útkoman einum of áreynslulaus og dauf en yfirhöfuð gengur
platan vel upp og er góð til síns brúks.
Freyr Bjarnason
Niðurstaða: Hugljúf plata með þægilegu poppi sem er góð til síns brúks.
Katie Holmes og Tom Cruise fögnuðu
þriggja ára brúðkaupsafmæli sínu á
miðvikudaginn og í tilefni dagsins
voru forsíður slúðurblaðanna undir-
lagðar sögusögnum um hversu óham-
ingjusöm Holmes er. Gamla sagan um
að Holmes hafi skrifað undir einhvers
konar samning sem renni út von bráð-
ar fékk byr undir báða vængi auk þess
sem hún er sögð einmana og sorg-
mædd.
Eitt tímaritið segir frá útlitsdýrk-
un Cruise sem eyðir víst miklum tíma
fyrir framan spegilinn auk þess sem
Suri litla fær víst að haga sér eins
og sér sýnist. „Tom leyfir Suri að
gera hvað sem er, þau hafa þurft að
skipta um panel á veggjunum þrisvar
því hún teiknar á veggina,“ segir í
tímaritsgreininni.
Einmana Katie
ÓHAMINGJUSÖM Katie Holmes er
sögð vera agalega óhamingjusöm og
einmana.
„Ég á afskaplega tryggan og góðan lesendahóp,“ segir Óttar Sveins-
son sem hefur gefið út sína sextándu Útkalls-bók.
Bækurnar hafa selst í rúmlega 120 þúsund eintökum, enda hafa
þær allar komist á metsölulista. „Það eru margir sem hafa spjallað
við mig sem segja að þeir lesi kannski ekki mikið en þeir lesi þetta.
Það er kannski með okkur Íslendinga að við viljum lesa um reynslu
og tilfinningar okkar sjálfra því við þekkjum alltaf einhvern í bók-
unum,“ segir Óttar. „Yfirleitt eru það konurnar sem kaupa þetta
fyrir mennina en þær lesa þetta ekki síður margar hverjar. Ég fæ
jafnvel sterkustu viðbrögðin frá konunum.“
Nýja bókin heitir Útkall við Látrabjarg og fjallar um fimmtán
Breta sem strönduðu við Látrabjarg árið 1947 á tog-
aranum Dhoon. Íslenskir bændur tóku þá til sinna
ráða og komu þeim til bjargar þrátt fyrir afar
erfiðar aðstæður. „Þarna eru menn að berjast
upp á líf og dauða í þrjá sólarhringa. Þessi björg-
un er með algjörum eindæmum og nútímamenn
myndu segja að þessir fátæku bændur séu ofur-
hugar,“ segir Óttar. „Þetta gerðist tveimur vikum
fyrir jól í mesta skammdegismyrkrinu og það sem
gerir þessa björgun erfiða er að strandstaðurinn er
á stað þar sem var ekki hægt að bjarga mönnunum
nema á háfjöru. Þeir höfðu bara nokkra klukkutíma til
að forða mönnunum upp á bjarg,“ segir hann. - fb
Útkall við Látrabjarg
ÓTTAR SVEINSSON Óttar Sveinsson hefur gefið út sína
sextándu Útkalls-bók sem heitir Útkall við Látrabjarg.
Það var margt um manninn á opnun nýrrar
Gallerí Sautján verslunar í Smáralind
á fimmtudag. Gestir og gangandi virt-
ust kunna vel að meta þessa viðbót við
NTC keðjuna, en í versluninni fæst bæði
fatnaður fyrir dömur og herra. - ag
Opnunarteiti í Sautján
Það ríkti keppnisandi
á Íslenska barnum á
fimmtudagskvöldið þar
sem Íslandsmeistaramót í
sviðakjammaáti fór fram.
Hreiðar Jósteinsson bar
sigur úr býtum og borðaði
rúmlega sex sviðakjamma.
„Eyþór Mar Halldórsson yfirkokk-
ur kom með þessa hugmynd þegar
við vorum að reyna að finna eitt-
hvað þjóðlegt til að halda á fimmtu-
dögum,“ segir Gísli Valur Waage,
rekstrarstjóri á Íslenska barnum,
um fyrsta Íslandsmeistaramótið í
sviðakjammaáti sem fór þar fram á
fimmtudagskvöld. „Það voru fjögur
forkeppnikvöld og sigurvegararnir
kepptu á úrslitakvöldinu. Í þremur
keppnum voru eingöngu strákar og
svo var ein stelpukeppni, en sú sem
sigraði í henni þorði ekki í strákana
í úrslitunum,“ útskýrir Gísli.
Hreiðar Jósteinsson fór með sigur
af hólmi í keppninni í gær. „Hreiðar
borðaði líka mest í forkeppninni, en
þá slátraði hann sex hausum. Í gær
borðaði hann sex og var hann kom-
inn á sjöunda kjammann á meðan
sumir voru enn þá á fyrsta,“ segir
Gísli. „Að launum fékk hann hótel-
gistingu og þriggja rétta máltíð á
Silfri, en sigurvegarar í forkeppnum
fengu tíu bjóra bjórkort frá okkur og
óvissuferð á Íslenska barinn, svona
villibráðarveislu,“ bætir hann við.
- ag
ÍSLANDSMEISTARAMÓT
Í SVIÐAKJAMMAÁTI
Svava Johansen, framkvæmdastjóri NTC, og Björn Sveinbjörns-
son voru ánægð á opnuninni í Smáralind.
Ásgerður Sigurvinsdóttir og
Björn Leifsson, eigandi World
Class, voru meðal gesta í
nýrri verslun Sautján.
Fjöldi fólks lagði leið sína í nýja verslun Sautján í Smáralind á
fimmtudaginn og nýtti sér sérstakan opnunarafslátt.
Ágústa Valsdóttir, Gulli Helga útvarpsmaður, Áslaug Einarsdótt-
ir og Einar Bárðarson, umboðsmaður og framkvæmdastjóri
Kanans FM 91.9, létu sig ekki vanta á opnun Sautján.
Jakob Frímann Magnússon
Stuðmaður mætti ásamt
dóttur sinni Jarúnu Júlíu.
ÞJÓÐLEG KEPPNI Keppendur lögðu sig
alla fram við að hesthúsa sem flesta
sviðakjamma.
SVIÐAKJAMMAR Hreiðar Jósteinsson, Hafsteinn Elvar Hafsteinsson, Guðmundur
Björnsson og Bæring Jón Guðmundsson kepptu til sigurs á fimmtudagskvöld.
SIGURSÆLL Hreiðar
Jósteinsson sigraði
í sviðakjamma-
átkeppninni á
Íslenska barnum og
borðaði rúmlega
sex sviðakjamma.