Vikan - 31.10.1963, Qupperneq 27
Stefánshellir
Það er hvorlti hátt til lofts, né vítt til veggja undir Hallmundarlirauni.
í Hallmundarhrauni er
einn víðáttumesti
hellir á Islandi, en nýlega
fundinn og flestum
ókunnur, Vikan hefur gert
_______ieiðangur til að________
kanna hellinn, og hér segir
frá því.
Leiðangursmenn
sýndu mikinn dugn
að, hetjuskap og
fórnfýsi og sumir
ollu jafnvel engum
vandræðum.
Hér fara virðuleg
nöfn þeirra og
embætti í förinni.
Kristján Magnússon, yfir-
ljósmyndari og öryggis-
málaráðherra.
Ragnar Lárusson, aðstoðar-
maður ljósmyndara,
teiknari og aðalsöguhetja.
Sigurður Hreiðar, aðal-
blaðamaður ferðarinnar og
hellnasérfræðingur.
stiganum og titringnum í röddinni, að ópið hafði
upphaflega verið sterkt og hátt, orðlaust hróp. £g
vissi strax að það var neyðaróp, því óttinn í hljómn-
um leyndi sér ekki. Og ég vissi hver hafði búið
það til, því það var aðeins um einn mann að ræða,
Ragnar Lárusson félaga minn, en við vorum þarna
staddir tveir einir í einhverjum óralöngum og krók-
óttum afkima Stefánshel!is, lengst undir yfirborði
jarðar.
Hann hafði skriðið á undan mér inn um þröngt
op efst uppi undir hellisloftinu, klöngrazt þar á
maganum yfir stórgrýti og kletta, troðið sér áfram
beint inn í myrkrið og óvissuna með eitt vasaljós
í höndunum, en ég beið á meðan fyrir utan, þang-
að til hann segði mér annaðhvort að koma, eða
bíða. Þegar hann hvarf mér sjónum og iljar hans
hurfu inn um opið, var ég rólegur og óhræddur,
því ég vissi að hann mundi koma aftur eftir smá-
stund, og við finna okkur leið út úr hellisgöng-
unum. Ég var líka með stórt og gott Ijós í höndun-
um, sem lýsti upp umhverfið, svo ég hafði ekkert
að óttast.
En svo kom hrópið.
Kristinn Michelsen, yfir-
umsjónarmaður tækja
og vísindalegur ráðunautur.
Þóroddur Thoroddsen, yfir-
verkfræðingur ferðar-
innar, vísindamaður og
bílstjóri.
Sigurður Karlsson, yfir-
rafvélavirki og leitarmaður.
G. K., sendill, aðstoðar-
maður blaðamanns, vara-
maður bílstjóra, tilrauna-
dýr og þykjast leiðangurs-
stjóri.
VIKAN 44. tbl. — 27