Vikan


Vikan - 31.10.1963, Page 27

Vikan - 31.10.1963, Page 27
Stefánshellir Það er hvorlti hátt til lofts, né vítt til veggja undir Hallmundarlirauni. í Hallmundarhrauni er einn víðáttumesti hellir á Islandi, en nýlega fundinn og flestum ókunnur, Vikan hefur gert _______ieiðangur til að________ kanna hellinn, og hér segir frá því. Leiðangursmenn sýndu mikinn dugn að, hetjuskap og fórnfýsi og sumir ollu jafnvel engum vandræðum. Hér fara virðuleg nöfn þeirra og embætti í förinni. Kristján Magnússon, yfir- ljósmyndari og öryggis- málaráðherra. Ragnar Lárusson, aðstoðar- maður ljósmyndara, teiknari og aðalsöguhetja. Sigurður Hreiðar, aðal- blaðamaður ferðarinnar og hellnasérfræðingur. stiganum og titringnum í röddinni, að ópið hafði upphaflega verið sterkt og hátt, orðlaust hróp. £g vissi strax að það var neyðaróp, því óttinn í hljómn- um leyndi sér ekki. Og ég vissi hver hafði búið það til, því það var aðeins um einn mann að ræða, Ragnar Lárusson félaga minn, en við vorum þarna staddir tveir einir í einhverjum óralöngum og krók- óttum afkima Stefánshel!is, lengst undir yfirborði jarðar. Hann hafði skriðið á undan mér inn um þröngt op efst uppi undir hellisloftinu, klöngrazt þar á maganum yfir stórgrýti og kletta, troðið sér áfram beint inn í myrkrið og óvissuna með eitt vasaljós í höndunum, en ég beið á meðan fyrir utan, þang- að til hann segði mér annaðhvort að koma, eða bíða. Þegar hann hvarf mér sjónum og iljar hans hurfu inn um opið, var ég rólegur og óhræddur, því ég vissi að hann mundi koma aftur eftir smá- stund, og við finna okkur leið út úr hellisgöng- unum. Ég var líka með stórt og gott Ijós í höndun- um, sem lýsti upp umhverfið, svo ég hafði ekkert að óttast. En svo kom hrópið. Kristinn Michelsen, yfir- umsjónarmaður tækja og vísindalegur ráðunautur. Þóroddur Thoroddsen, yfir- verkfræðingur ferðar- innar, vísindamaður og bílstjóri. Sigurður Karlsson, yfir- rafvélavirki og leitarmaður. G. K., sendill, aðstoðar- maður blaðamanns, vara- maður bílstjóra, tilrauna- dýr og þykjast leiðangurs- stjóri. VIKAN 44. tbl. — 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.