Vikan - 17.10.1968, Síða 37
Það jafnast
ekkert
á við
Lark."
IARK
FILTER CIGARETTES
MADE 1N U. S. A
Laik filterinn
ei þrefaldur.
RICHLY REWARDING
UNCOMMONLY SMOOTH
Reynið Lark, vinsælustu nýju amerisku sigarettuna
dyrabjallan hringdi, og hún
hreyfði sig ekki fyrr en hún var
búin að hringja nokkrum sinn-
um og að síðustu þrjár hringing-
ar í röð. Var það, mögulegt? Svo
reis hún á fætur og gekk fram
að dyrunum.
— Opnaðu Jane. Ég veit að þú
ert þarna inni.
Áður en hún tók um hurðar-
húninn, var hann búinn að
grípa í hann utan frá.
Þegar hún sá andlit hans í
dyragættinni fór hún að hlæja.
— Ó Johnny ........
Hann lokaði dyrunum á eftir
sér og gekk inn í herbergið.
— Hvað er svona hlægilegt?
spurði hann.
— Ekkert. Bara að þetta er
allt svo sjálfu sér líkt. Við höf-
um sannarlega ekki tekið
stakkaskiptum. Síður en svo. Við
elskumst, við förum að rífast, og
svo hleypur þú burt. Bang! Svo
fer ég að gráta, og þú kemur
aftur. Finnst þér þetta ekki
hlægilegt?
— Ekki beint hlægilegt. En
líklega óhjákvæmilegt. Hann
sneri sér við og mætti augum
hennar. Svolítið hikandi, fannst
henni, — óöruggur. Við erum
bæði alveg ómöguleg saman.
— Óhjákvæmilegt? skaut Jane
inn í.
Það leit út fyrir að hann væri
að brjóta heilann ura þetta. Svo
sagði hann, með alvörusvip:
— Já, óhjákvæmilegt.
— Hvað eigum við þá að gera?
Ég meina, hvað gerir fólk, sem
er eins og við?
— Ég veit það ekki, Jane.
Hann sló út höndunum, eins og
í vonleysi. — En maður verður
að vona að maður vitkist með
tímanum því ég veit að
þetta er, það erum við tvö
Jane gekk til hans, snerti kinn
hans létt með vörunum.
— Við? Já en við getum ekki
búið saman. Ekki eins og er, að
minnsta kosti
Allt í einu lifnaði yfir honum.
— Viitu það í raun og veru?
Að við búum sitt í hvoru lagi?
Hún kinnkaði kolli.
— Þú varst svo mikið á móti
því áður.
— Ég hefi kannski breytzt,
þegar allt kemur til alls. Ég sá
þetta, þegar þú stóðzt fyrir utan
dyrnar.
— Hvað þá? Hvað sáztu?
— Að við getum ekki búið
saman. Ekki ennþá Það
verður allt of kjánalegt að þú
þjótir í burt og skellir hurðum
í hvert sinn sem ég verð reið.
Ég meina að það væri miklu ein-
íaldara em þú segir „Iiæ, nú
fiýti ég mér heim.“ Er það ekki?
Hann var nokkuð tregur til
að skilja hvað hún átti við, en
svo færðist bros yfir þreytulegt
andiitið. Hann þreif til hennar
og þrýsti henni að sér.
— 'Ó, Jane .......
Ungt fólk ...
Framhald af bls. 9.
þægilegu afsökun, að hugsjónin
sé löngu komin úr tízku.
Málsvarar lyginnar gylla mik-
ið og oft hið vestræna frelsi. En
það er bara einn af „frösunum“,
sem búnir eru til úr hinum
,,nýju“ bókstöfum lyginnar,
volgum úr vélinni. Því pening-
arnir hafa gert frelsið að lygi.
Dæmin eru lifandi: Fólk, sem
syndir í hafi blekkingarinnar,
blindað af peningaglýjunni. Það
heldur að frelsið sé ljóminn af
gullinu. Æðsta tákn hins vest-
ræna frelsis er dósakók. Og helzt
í gylltum dósum!
Það er svo skrýtið, að það er
ekki hægt að setja hugsjónir í
gaffalbitadósir eða pakka þeim
með úldinni skreið fyrir Afríku-
markað. Það er líka andkanna-
legt, að það er ekki hægt að
flytja inn hugsjónir í kökubotn-
um. Þær eru heldur ekki háðar
heimsmarkaðsverði á síldarlýsi.
Þess vegna hefur hugsjónin átt
erfitt uppdráttar á íslandi.
En ker lyganna tekur að fyll-
ast. Lygamaskínan fer að stirðna.
Þjóðskipulag blekkingarinnar
mun falla. Það fellur á sinni eig-
in lygi: lygi peninganna.
Þegar lygin er fyrir róða, verð-
ur byggt nýtt þjóðskipulag, þjóð-
skipulag sannleikans. Þar verður
írelsið ekki lygi. Tjald blekk-
inganna, peningaglýjan, verður
dregið frá augum manna. Þessi
gamla sjálfslygi, að hugsjónin sé
komin úr tízku, verður álitin
blekking ein. Þá mun ríkja hið.
sanna þjóðskipulag, skipulag al-
þýðunnar, hið frjálsa skipulag
sósíalismans.
Paradís á jörðu
Framhald af bls. 11.
hann leiðangri sínum um allt-
saman, helvíti, hreinsunareld og
himnaríki. Sjálf heilög þrenning
birtist honum sem þrefaldur
geislabaugur, og geislaði einn
baugurinn útfrá öðrum og varð
ekki í sundur greint, en kring-
um þessa náðarsól himnanna
stigu hersveitir þeirra eilífan
hringdans. Þótti Dante mikið til
koma, sem von var að líta tákn
þess guðdómlega kærleiks, sem
honum skildist að væri hreyfi-
afl allra hluta:
Mér andagiftin brást með öllu
hér;
en eins og hjól, sem snýst á
hveli förnu,
svo upptendraði ósk og vilja
í mér
4i. tw. VIKAN 37