Vikan


Vikan - 04.12.1969, Page 5

Vikan - 04.12.1969, Page 5
ÍSLENZKUR JÖLASVEINN Ólafur Magnússon frá Mosfelli er líklega sá íslendingur, sem oft- ast hefur leikið jólasvein. Um langt skeið lék hann Kertasníki fyrir Flugfélag íslands og ferðaðist þá um allt land og alla leið til Kaup- mannahafnar. Á þessari mynd sjáum við Ólaf í gervi jólasveins með lítinn snáða, sem er allsendis óhræddur. ENGIR PENINGAR - Það er ekki óalgengt, að menn gifti sig um jólin. Vonandi hafa þó ekki allir verið jafn óheppn- ir og maður nokkur, sem gisti á hóteli í Milano á jólanótt, sem var jafnframt brúðkaupsnóttin. Þegar hann var að greiða reikn- inginn daginn eftir, kom í ljós, að hann vantaði hundrað krónur upp á. Hótelstjórinn brást reiður við: — Engir peningar, engin brúð- ur, sagði hann ákveðinn. — Hún Jólin eru hátíð barnanna. Já, kaupmenn eru náttúr- lega börn í vissum skiln- ingi. V j • vísur vikunnar Tæpt er lánið tíðum enn tæmist fé úr sjóðum illir draumar angra menn yzt á norðurslóðum. Erlendis er allt í hönk eymd og kjaralækkun, jafnvel drottning Breta er blönk og biður um launahækkun. En hversu mjög sem veröld villt velgir oss í geði, ekkert fái um eilífð spillt okkar jólagleði. ENGIN BRUÐUR verður lokuð inni, þar til pen- ingarnir verða borgaðir. Vesalings nýbakaði eiginmað- urinn varð að fara alla leið heim í þorpið sitt í Norður-Ítalíu, fá þar lánaðar hundrað krónur hjá fjölskyldu sinni og hraða sér síðan aftur til sinnar innilokuðu ektakvinnu. Hann var þó svo vitur að hafa lögregluþjón sér til verndar og hótelstjórinn var dæmdur til fangelsisvistar. ☆ AÐ VEIÐA SNJÓKORN .... Ekki er hægt að spá um það enn, hvort þessi jól verða hvít eða rauð, en samt kynni ein- hverjum að þykja fróðleikur í því að vita, að það er orðin heil vísindagrein að athuga snjókorn- in. Einn Ameríkumaður eyddi allri ævi sinni í þetta og skráði 50.000 tegundir snjókorna. Þeg- ar fór að snjóa, hljóp hann út með svarta tusku, veiddi á hana snjókorn og hljóp inn til sín. Síðan skoðaði hann snjókornið í smásjá og teiknaði mynd af því. Athuga verður vel úr hvern- ig skýi kornið er. Snjókorn úr lágskýjum eru oft hinar fegurstu rósir, en korn úr háskýjum eru það sjaldnar. Það er sagt, að menn sem stunda þessa vísinda- grein, verði að vera grandheið- arlegir. Það er auðvelt að teikna fallega mynd og segja, að hún sé af snjókorni, „sem ég veiddi í bylnum mikla hér um árið.“ DROTTNINGIN FÆR ÖTAL JÓLAGJAFIR SEM HÚN MÁ EKKI ÞIGGJA Um hver jól fær Englands- drottning heilu vagnhlössin af jólakortum og jólagjöfum. Þess- ar jólasendingar eru frá alls kon- ar fólki, bæði af háum stigum og lágum. Nú vill þannig til, að það er alger regla í konungs- höllinni, að drottningin má að- eins þiggja gjafir frá þeim, sem hún þekkir persónulega. Hvað skyldi þá vera gert við allar þær þúsundir gjafa, sem berast frá ókunnum þegnum? Allan desembermánuð er fjöldi manna, sem vinnur við að opna alla pakkana til drottningarinnar og senda sendanda þakkarkort. Að því búnu eru gjafirnar sendar barnaheimilum, sjúkrahúsum og öðrum hjálparstofnunum. Það eru ótrúlegustu hlutir, sem fólk finnur upp á að senda drottn- ingunni í jólagjöf. Fyrir nokkr- um árum fékk hún til dæmis sex brjóstsykurstengur, að sjálf- sögðu af beztu og dýrustu teg- und. Öðru sinni fékk hún pakka, sem einungis hafði að geyma einn ósköp venjulegan stein. — Sendandinn var útflytjandi og hann kvaðst vona, að þetta litla brot af Labrador-fjalli mætti hvíla í friði á Windsor-jörð. ☆ VIKAN-JÓLABLAÐ 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.