Vikan - 04.12.1969, Blaðsíða 7
málið er að í rúminu er hún stór-
kostleg, en utan þess finnst mér
hún hálf-leiðinleg. Auðvitað
skapar þetta heldur leiðinlega
stemningu, og ég veit ekki hvað
ég á að gera. Hvað finnst þér?
B. R.
Hvað finnst mér? Hættu við
hana. Maðurinn lifir ekki í rúm-
inu cinu alla tíð.
Reykingar
Herra Póstur!
Nú eru tvö ár síðan ég hætti
að reykja, vegna þess að mér
fannst það vera slæmt fyrir mig.
Eg geri heldur lítið til þess að
fá fólk til að hætta að reykja,
en ég geri ekkert til þess að fá
fólk til þess. Og nú langar mig
til að spyrja:
Er ég dónalegur ef ég geng
ekki með eld(spýtur) á mér til
að gefa stúlkum, sem gætu verið
í fylgd minni, eld? Og setjum
sem svo að ég sé einhvers stað-
ar með stúlku, sem reykir og
verður sígarettulaus, er það þá
í mínum verkahring að sjá um
að útvega henni annan pakka? .
Mér finnst það einhvern veg-
inn vera að ýta undir þennan
ósóma, ef ég fer að kaupa síga-
rettur handa öðrum.
Magnús V.
Þó persónulegar skoðanir þínar
á reykingum séu til staðar og
þú standir fast á þeim, breytir
það engu um þá staðreynd, að
þú átt að vera herramaður við
öll möguleg tækifæri. Fólk verð-
ur að fá að ráða sjálft hvort það
reykir eða ekki, og það er í þín-
um verkahring að sjá um að
kvenfólk í kringum þig fái eld
og eins er það þitt hlutverk
að útvega dömunni þinni annan
sígarettupakka. Hitt er annað
mál að þú gætir á auðveldan
hátt, og þó lítt áberandi, reynt
að fá fólk til að hætta þessum
„ósóma“.
við þá í klukkutíma. Þegar ég
kom heim var' ég alltaf að hugsa
um þá og ætlaði aldrei að geta
sofnað. Þegar ég hlusta á „Oh,
Darling" koma tár í augun á
mér. Tvíburabróðirinn sem ég
er hrifin af er ekki alveg fastur
en hinn bróðirinn er alveg fast-
ur. Og að lokum langar mig að
spyrja þig hvað sexý rödd er.
S í Kópavogi.
Eftir öllum só.larmerkjum að
dæma, er ekki nema um eitt að
ræða: Þú ert innilega ástfangin
— og það jafnvel í báðum pilt-
unum. En það er lítið sem ég get
ráðlagt þér nema það að þið
skuluð alveg hætta að hugsa um
þennan sem er „alveg fastur“ og
hinn virðist Iíka vera nokkuð
vonlaus — þar sem hann er jú
„ekki alveg fastur“. Annars ættu
þeir sjálfir að geta gefið þér all-
ar upplýsingar um tilgang og
þýðingu ástar ykkar.
Sexý rödd myndi vera sú rödd
sem er full kynþokka: Hás, lág
og tælandi — eða þá eitthvað
allt annað. Alls kyns raddir geta
verið sexý.
Skriftin er ágæt og hringdu
bara í þá aftur.
Utanríkispólití
íslendinga
Ágæti Póstur!
Oft hef ég hneykslast á utan-
ríkispólitík okkar en aldrei sem
nú. Ástæðan fyrir því er sú, að
nýlega var enn á ný tekin fyrir
hjá Sameinuðu þjóðunum tillaga
um inngang Kína í samtökin. Öll
Norðurlöndin greiddu atkvæði
með tillögunni, nema fsland. —
Hvernig í ósköpunum stendur á
því? Er ekki alltaf verið að tala
um, af ráðamönnum þessa sökkv-
andi lands, að við eigum að
standa með frændþjóðum okk-
ar? Eða er ekki ástæðan sú að
við þorum ekki að ganga í ber-
högg við þrælahaldara okkar,
Bandaríkin? Mér finnst tími til
kominn, að þessi leppstjórn USA
hér á landi fari að leggja upp
laupana og hætta þessu skamm-
arlega brölti. f sögubókunum
stendur að við séum sjálfstæð
þjóð —- það sýnir sig!
Blessaður.
Common Sense.
Plöntu-tvíburar
Kæri Póstur!
Þannig er mál með vexti að
ég og vinkona mín erum hrifnar
af tvíburabræðrum (sitt hvor-
um) sem eru í hljómsveit. Við
förum stundum á böll þar sem
þeir spila en ég má ekki fara
niður í bæ á kvöldin. Eg fór á
ball. með vinkonu minni, þar
sem þeir voru að spila og ég
hef ekki getað gleymt þeim síð-
an. Eitt kvöldið vorum við (ég
og vinkona mín) að passa og þá
hringdum við í þá og töluðum
Pósturinn hefur AIIS ENGU við
þetta að bæta, en kannske ein-
liver annar hafi það — og dæm-
in eru fleiri.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
TILVALINN TIL JÖLAGJAFA
I. Guðmundsson í Co. hf.
Strákurinn, sem ég ar me8,
gaf mér minnsta kveikjara sam
ég Hef sóð — svo lítinn a8 ég fæ
varla nógu litla stelna í hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti f siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lót róa fyrr,
kveikjarann e8a strákinn.
Ég er alltaf aS kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
meS ýmsum hætti.
En eld þarf ég a8 hafa.
Mllady gas kvelkjari
Einkaumboð:
Comet gas kveikjari
'U gefenda RONSON kveikjara: ÁfylHngin tekur
sekúndur, og endist svo mánuðum skiftir. Og |j|||\|Si ll\l
veikiarinn. — Hann eetur enzt aö eilifu. ■ ■ —
Adonis gas kveikjari
Empress gas kveikjari
VIKAN-JÓLABLAÐ 7