Vikan


Vikan - 04.12.1969, Síða 39

Vikan - 04.12.1969, Síða 39
Hin spennandi framhaldssaga eftir Elisabeth Ogilvie - 5. hluti óvörum, hafði Rees látið útbúa sérstaka rafmagnslokun á járn- hliðunum fyrir neðan húsið, sem stjórnað var úr húsinu. Tim átti að fá að ýta á hnappinn og opna hliðið fyrir Roberts, þegar hann færi. — Ég hringi frá Somerset, áð- ur en ég kem heim, sagði Ro- berts. — Þá vitið þið, hvenær þið megið eiga von á hringingu frá mér, svo að þið getið opnað hliðið fyrir mig. — Þá fæ ég kannski að ýta á hnappinn aftur, Roberts, sagði Tim litli fullur tilhlökkunar. Hann stóð á tröppunum og veif- aði Roberts, þar til bíllinn var kominn úr augsýn. Þegar hann var farinn, fannst mér ég í fyrsta skipti vera frjáls á heimilinu. I fyrsta skipti vor- um við þrjú ein á Bellwood. Að vísu var Rees í vinnuherbergi sínu í steinhúsinu og kannski mundi hann ekki láta sjá sig. En samt var ég mér sterklega með- vitandi um nærveru hans. — Jæja, hvað eigum við nú að gera, sagði Tim litli. Við gátum ekki komið okkur saman um, hvað við ættum að taka okkur fyrir hendur og hvernig við ættum að drepa tíman|n. Tim vildi lætra fleiri bókstafi og kom með bók til mín. En veðrið var gott og auk þess vildi ég gera Rees til geðs og ekki íþyngja Tim litla með of miklu námi, eins og hann hafði fyrirskipað. — Við skulum heldur fara út og safna könglum, lagði ég til. — Já, eins og þú gerðir, þeg- ar þú varst lítil. Það er skemmti- legt. Við vorum góða stund úti að leika okkur, allt þar til tími var kominn til að fá sér miðdegis- kaffi. Við stóðum í eldhúsinu, þegar bjallan hringdi. Gestakomur voru sjaldgæfar á Bellwood, svo að við hrukkum bæði við. Skær hljómurinn í bjöllunni hljómaði eins og neyðaróp og virtist aldrei ætla að þagna. — Það er einhver við hliðið, sem vill komast inn, sagði Tim litli og rauk að hnappnum og ætlaði að þrýsta á hann, svo að hliðið opnaðist. — Nei, Tim, láttu hnappinn vera, sagði ég harkalega. Hring- ingin þagnaði í sömu svifum, rétt eins og hinn ókunni gestur hefði heyrt það sem ég sagði. - Við vitum ekki hver þetta er, sagði ég í ögn blíðari tón. Ég var komin með ákafan hjartslátt og óttinn heltók mig, þessi einkennilegi, nístandi ótti, sem ég varð gripin, þegar ég var ein að ráfa í skóginum um dag- inn og ég stóð fyrir framan stein- húsið. Tim leit á mig döprum vonaraugum og átti sýnilega erf- itt með að standast þá freistingu að þrýsta á hnappinn og opna fyrir þeim sem stæði við járn- hliðið, hver svo sem það nú væri. — Kannski er það Roberts, sagði hann. — Nei, það getur ekki verið hann. Hann kemur ekki aftur fyrr en í kvöld. Og auk þess sagðist hann mundu hringja og láta okkur vita hvenær hann kæmi. Hverri hugsuninni á fætur annarri laust niður í huga minn. Hvers vegna hafði Rees ekki líka sett upp símasamband milli hliðsins og hússins, svo að mað- ur gæti talað við þá, sem vildu koma inn og vitað hverjir það væru, áður en maður opnaði? En hver sem svo stóð nú þarna við hliðið að þessu sinni, þá virt- ist hann hafa gefizt upp við að komast inn og farið sína leið. Kannski hafði þetta bara verið einhver sölumaður; einhver, sem vildi selja okkur ísskáp eða eitthvað þessháttar. Þá tók bjallan að hringja aftur, jafn hvellt og óvænt sem fyrr. — Við förum út, sagði ég, lét í snatri glas með ávaxtasaft og kaffibollann minn á bakka. Við urðum að ganga löturhægt eins og ævinlega vegna spelkanna á fótum Tims litla. Það var eins og við ætluðum aldrei að komast svo langt, að við heyrðum ekki stöðugt í bjöllunni. Jafnvel þeg- ar við vorum komin langt út á grasflötina, heyrðum við enn í henni. f mínum eyrum hljómaði hún eins og áskorun eða hættu- merki. Enginn hafði komið óvænt til Bellwood síðan Faraday-hjónin komu sælla minninga. Kannski var það þessvegna, sem nafnið Stephen skaut upp kollinum í huga mér aftur og aftur. Allt í einu rann upp fyrir mér ljós. Eða réttara væri að segja, að ég hefði fengið einskonar vitrun: Var ekki hugsanlegt, að það væri Stephen sem hringdi svo ákaft bjöllunni? Að hann væri loksins kominn í leitirnar, risinn upp frá dauðum? Ég fann hvernig kaldur sviti spratt fram á enninu á mér. — Tim, geturðu setið hér graf- kyrr á meðan ég fer og segi pabba þínum, að það sé verið að hringja bjöllunni stöðugt? Hann leit alvarlegur á mig. — Lofarðu mér því? Þú verð- ur að vera grafkyrr og fara ekki eitt einasta fet á meðan ég er í burtu. Já, auðvitað lofa ég því. — Drekktu saftina þína. En þú mátt ekki gera neitt annað. — Má ég anda? Eg leit reiðilega til hans. Þetta var ekki í fyrsta skiptið. sem Tim var galvaskur og svolítið ósvíf- inn. — Já, auðvitað máttu anda, sagði ég og gat ekki varist því að brosa ofurlítið, þótt mér liði svo sannarlega ekki vel. — Ég kem aftur að vörmu spori. Ég hljóp í hendingskasti áleið- is til steinhússins. Mér sortnaði fyrir augum, þegar ég kom í skóginn. Þar var svo dimmt og viðbrigðin mikil að koma beint úr glaðasólskini. Fyrst sá ég allt sem í móðu, en loksins þegar augun höfðu vanizt dimmunni, fann ég stíginn sem lá að steinhúsinu og hljóp eftir hon- um. Þegar ég kom að steinhús- inu, sá ég að gluggarnir voru opnir fyrir innan járnrimlana og hávært samtal barst út um þá. Ég var lafmóð eftir hlaupin, en greindi samt strax rödd Rees. Ég heyrði engin orðaskil, en þó varð ég strax vör við svolítið, sem vakti undrun mína og skelf- ingu: Ég heyrði rödd annars manns og hún var hás og niður- bæld, eins og hann næði ekki andanum. Ég get ekki lýst með orðum skelfingu minni, en samt var eins og það kæmi mér ekki á óvart innst inni. þótt ég heyrði raddir tveggja manna. Mér leið eins og í martröð, og undir slík- um kringumstæðum má búast við öllu. Ég barði krepptum hnef- unum á hurðina og öskraði eins hátt og ég gat: — Rees! Rees! Inni heyrðist hurð lokað og eitthvað var fiutt úr stað með nokkru braki. Skyldi það hafa verið stóll? Þegar nokkur stund hafði liðið, voru útidyrnar opn- aðar. Rees kom út og lokaði vandlega á eftir sér. Það var eins og hann vildi varna því eftir beztu getu, að ég kæmist inn í húsið. Augnaráð hans var svo skelfilegt, að ég gat ekki með nokkru móti mætt því. — Hvað er um að vera, sagði hann. — Hefur eitthvað komið fyrir Tim? — Nei... Tugnan var svo þurr í munni mínum, að ég gat ekki komið upp einu einasta orði. Hann var frávita af bræði. var hið eina sem mér datt í hug. Hann var náfölur af reiði og augun kolsvört og ásakandi. — Bjallan við járnhliðið, gat ég loks stunið upp. — Það er einhver sem hringir og hringir í sífellu. Ég hörfaði ofurlítið aftur á bak. Mig langaði til að taka til fótanna, flýja frá öllu saman, leggjast í grasið og gráta af ör- væntingu og skömm. Það var eins og ég hefði gerzt sek um einhverja óhæfu? Hvað hafði ég svosem gert? En ég reyndi að harka af mér. — Það getur verið, að þessi ókunni maður eigi brýnt erindi við okkur, stamaði ég. — Það getur ekki verið neitt, sem skiptir máli, sagði hann. Varir hans voru enn hvítar og það var eins og hann gæti hvorki hreyft legg né lið. — Það eina sem skiptir máli er, að það má alls ekki skilja Tim eftir einan, ■— ekki í eina einustu mínútu. Hann gekk niður tröppurnar, sem lágu upp að steinhúsinu. — Það má ALDREI skilja hann eftir einan. Geturðu ómögulega skilið það? Að svo mæltu tók hann til fótanna. Ég elti hann og hróp- aði: — Hann lofaði að sitja graf- kyrr, á meðan ég skryppi hingað. — Hvers virði er loforð svona lítils drengs. Ó, guð minn góð- ur .... Ég reyndi að skilja reiði hans og örvæntingu, þótt ég ætti ekki auðvelt með það. Auðvitað sat Tim litli á sama stað og ég hafði skilið við hann. Það var óhætt að treysta honum í svona litlu tilviki. Það vissi ég betur en nokkur annar. Rees rann reiðin heldur. Hann iðraðist bersýnilega frumhlaups síns og vildi nú reyna að bera í bætifláka fyrir sjálfan sig. — Auðvitað þekkir þú son minn betur en ég sjálfur geri, sagði hann. — Fyrirgefðu mér, Carol. Mér er naumast sjálfrátt, þegar um velferð Tims er að ræða. — Þetta voru ekki nema nokkrar mínútur, sem Tim var einn. Ég hélt kannski, að eitt- hvað slys hefði gerzt hér í ná- grenninu. Það gat verið, að ein- hver lægi slasaður hérna á veg- inum fyrir neðan okkur. Það var varla einleikið, hvað hringt var oft og ákaft. — Carol, Carol! Farðu nú ekki að gera neinn harmleik úr þessu. En þú verður að skilja, að mér brá. Ég fékk nánast taugaáfall. Þetta bar svo bráðan að. Og ég var í kyrrð og næði við vinnu mína og var niðursokkinn í henni. Nú var hann aftur orðinn eins og hann átti að sér að vera. Aug- un voru blá og kyrr og viðmótið hlýlegt. — Þetta hefur áreiðanlega verið einhver frekur og bjart- sýnn sölumaður, sannaðu til. Næst skaltu taka bjölluna úr sambandi. Ég skal sýna þér hvernig það er gert. Allir, sem eitthvert erindi eiga við okkur, geta hringt áður og boðað komu sína með svolitlum fyrirvara. Við gengum til Tims litla. Rees settist niður hjá honum, en ég fór og sótti kaffi handa okk- ur. Ég var að vísu dauðþreytt, en samt ánægð yfir því, að Rees skyldi ekki vera mér reiður leng- ur. Framhald í næsta blaði. VIKAN-JÓLABLAÐ 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.