Vikan - 04.12.1969, Qupperneq 68
íslenzku NORMA sokkabuxurnar
30 DENIER með skrefbót
VANDAÐAR - STERKAR
Útsöluverð aðeins kr. 139,00
Kr Þorvaldsson & Co. Heildverzlun
Grettisgötu 6 Símar 24730 — 24478
UíðarUljur á
loft ou veoai
EIK
GULLÁLMUR
ASKUR
CAVIANA
LERKI
BEYKI
FURA
OREGON PINE
TEAK
VALHNOTA
MANSONIA
HARDVIDARSAtAK sf.
Þórsgötu 13
Sími 11931 & 13670.
__________________
urs kristnidómsins yfir heiðnum
goðum.
Við fyllum hóp þann úr hús-
um og hreysum, sem safnast
saman undir hárri kirkjuhvelf-
ingunni þessa miðnæturstund.
Þarna eru efnaðir Tlaxcalaborg-
arar með fólk sitt í hátíðabún-
ingi og fátækir Indíánar úr ná-
grannaþorpunum með kynstur
af krökkum, sem gægjast forvitin
fram milli pilsanna á mæðrum
sínum. Allra augu mæna upp að
blómskrýddu forhenginu, sem
hylur höfuðaltarið og á að tákna
fjárhúsið, sem Jesúbarnið fædd-
ist í.
Á sama augnabliki, sem klukk-
an slær tólf, byrja allar klukk-
ur að hringja; forhengið er dreg-
ið til hliðar, altarið er í gulln-
um ljóma hundraða af kertum,
og þar liggur Jesúbarnið í jötu
og uxar, hirðar og svífandi engl-
ar í kring og blikandi jólastjarna
hátt uppi.
Presturinn gengur fyrir altar-
ið í gullbryddum hökli. Hann
lyftir „nino santo“ — Jesúbarn-
inu — upp úr jötunni og fagnað-
arsöngur fyllir kirkjuna og allir
krjúpa á kné, en presturinn ber
barn:ð fram endilanga kirkjuna,
svo að allir geti séð að jólaboð-
skapurinn hafi rætzt.
Indíánabörnin stara hrifin
stórum, svörtum augum á bleik-
rautt amerískt plast-barnið með
bláu augun og gula hárið, sem
á að tákna „nino santo“. Þegar
presturinn kemur aftur upp að
altarinu sézt hann hjá tómri jöt-
unni með barnið í fanginu. Löng
röð af börnum fer nú af stað inn
eftir kirkjugólfinu. Mörg þeirra
eru í dragsíðum kápum og hafa
blómskreytta smalastafi eða
reyrflautur í hendinni. Það eru
hirðarnir, sem eiga að færa Jesú-
barninu gjafir.
Þau staðnæmast hvert eftir
annað við altarið, þylja vers eða
hafa yfir ritningargrein, sum
tafsandi og feimin, önnur hátt
og skýrt svo að heyrist um alla
kirkjuna, og afhenda svo prest-
inum gjafirnar. Flest koma þau
með lifandi fé, svo sem dúfur,
hænsni, endur, gæsir, kalkúna,
smágrísi, geitakiðlinga eða lömb,
prýdd blómum og silkiböndum.
Presturinn tekur alvarlegur móti
gjöfunum fyrir hönd Jesúbarns-
ins og afhendir þær meðhjálpar-
anum, d'grum og feitum presti,
sem líkist meir matglöðum kokk
en herrans þjóni; kringluandlit-
ið á honum ljómar af ánægju í
hvert sinn sem hann ber feita
önd eða gæs i skrúðhúsið, sem
smám saman breytist í dýragarð,
kliðandi af fuglakvaki, jarmi og
snörli.
Eftir að síðustu börnin hafa af-
hent gjafirnar og starað lengi á
„nino santo“, stendur presturinn
upp og byrjar messuna, sem
lýkur með því að hann blessar
söfnuðinn.
Hinir mörgu Mexicanar og
68 VIICAN-JÓLABLAÐ