Vikan - 09.04.1970, Síða 16
„Ég vil sýna hinn heiðna anda, áður en
2000 ára kristindómur lagði á okkur skyldu-
kvaðir,“ sagði Fellini. Og fólkið streymdi til
kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, þar sem
átti að frumsýna „Satyricon", Fellini-mynd
um ljúfa lífið á þeim dögum, þegar orðið
„synd“ var ekki til. Það hlaut að vera at-
hyglisvert að sjá hana. Aðsóknin var svo
mikil, að þrjár konur voru troðnar undir, og
urðu að fara á sjúkrahús.
Á eftir var ein ringulreið, áhorfendur voru
utan við sig, gagnrýnendur ráðvana. Hafði
veröldin verið þannig? Fellini, einn mesti
listamaður á sviði kvikmyndanna, hefur gert
úr hinni 2000 ára gömlu sögu Cajusar Perr-
oniusar, lýsingu á helvíti mannað skrímsl-
um, umvafið brennisteinsgufum, þar sem
ekkert er annað en kvöl og dauði, andlitin
afskræmd af girndum og ókennileg af farða.
HNIGNANDI RÓM
Sumir áhorfendur gengu út í miðri sýn-
ingu. Um þá skrifuðu fréttamenn: „Skamm-
izt ykkar, einhvern tíma eigið þið eftir að
gorta af því við bamabörn yðar, að þér
hafið verið viðstödd þennan einstæða lista-
atburð.“ Svo hefur þessi mynd verið kölluð
meistaraverk meistarans, en ennþá er fólk
á ítalíu, sem gengur út í miðri sýningu, og
það á sjálfsagt eftir að endurtaka sig viða
um heim.
Þetta hefur engin áhrif á Fellini. „’Ég
framleiði kvikmyndir til að koma mínum
eigin hugsunum á framfæri,“ segir hann.
Þegar hann er spurður hvort hann haldi að
hann hafi skapað listaverk, sem verði við
lýði árið 2000, þá segir hann: „Síðasti hlut-
inn af Satyricon." Draumurinn um þessa
kvikmynd er gamall. Fellini fékk hugmynd-
ina árið 1939, þegar hann var blaðamaður
og skopteiknari. Þetta er háð og ádeila á
rómverska þjóðfélagið og gúllasbaróna þá-
tíðarinnar. „Ég segi frá hinni hnignandi
Rómaborg," segir Fellini, „borginni þar sem
Encolpe og Alcyste, aðalpersónurnar í „Satyricon“, —
tveir strákar, sem verða báðir hrifnir af sama —
stráknum.
Sú mynd, sem Fellini gerir sér í hugarlund „Ég vil sýna hinn heiðna anda, áður en kristnin kom
af fortíðinni er engan veginn glæsileg. til,“ segir Fellini, frægasti leikstjóri okkar tfma.