Vikan - 09.04.1970, Blaðsíða 20
Hinir nývígðu kvenprestar eru þvegnir úr vatni, sem blandað er ilmefnum. Þar með eru þær reiðubúnar
til prestsþjónustu fyrir Candomblé-trúarflokkinn.
Þung og tilbreytingalaus trommu-
slögin óma gegnum nóttina á Copaca-
bana-ströndinni. Daufur bjarmi er yfir
fjörunni frá þúsundum logandi kerta,
sem stungið liefur verið niður í sand-
inn. Þar innanum dansa kvenmenn í
siðum, hvítum skikkjum, en hátíða-
klæddir karlmenn klappa hrifnir eftir
hljóðfallinu.
Þegar svo straumur af rakettum
marglitar himininn yfir milljónaborg-
inni Rio de Janeiro til merkis um að
nýtt ár sé gengið i garð, þagnar söngur-
inn, trumbuslátturinn og klappið á
ströndinni. Fjölmörgum litlum skipum
er ýtt út á öldur Atlantsliafsins. Þau eru
hlaðin logandi kertum, dýrlinga- eða
guðamyndum, blómum og kvennær-
fatnaði.
Vindur og straumar mjaka þessum
smábátum smátt og smátt frá landi, og
á eftir þeim veður góðan spöl út í sjó-
inn mergð manna með brennandi kerti
í böndum. Þegar bátarnir fjarlægjast,
upphefur fólkið, sem margt stendur nú
Til undirbúningsatriða vígslunnar heyrir að nauð-
raka stúlkurnar um höfuðin.
MBI
j
■
20 VIKAN 15-tbl-