Vikan - 07.12.1972, Blaðsíða 7
Létt í spori
Þessi Singer saumavél kostar
aðeins kr. 18.669,00, en hefur
flesta kosti dýrari saumavéla
og þann kost fram yfir að hún
vegur aðeins 6 kíló og er þess
vegna mjög létt í meðförum.
Þegar þér saumið úr hinum
nýju tízkuefnum getið þér valið
úr mörgum teygjusaumum, m.
a. ,,overlock“, svo að engin
hætta er á að þráðurinn slitni
þó að togni á efninu.
Singer 438 hefur einnig: ^ innbyggðan, sjálfvirkan hnappagata-
saum ^ tvöfalda nál, öryggishnapp (gott þar sem börn eru),
^ fjölbreyttan skrautsaum og marg.a fleiri kosti.
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR:
Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugavegi 91, Gefjun, Austurstræti,
Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SlS, Ármúla 3 og Kaupfélögin um land allt.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
^Véladeild
ARMULA 3 REYKJAVIK, SIMI 38900
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar
alltaf að fara í fýlu, svo eftir
mér sé tekið.
En núna stendur mér nærri orð-
ið á sama um þetta allt' saman,
þetta þýðir ekkert. Mér verður
ekki breytt. Það eru nú allir
einu sinni svoleiðis, að þá lang-
ar stundum til að heyra einhver
hrósyrði. Ég er ekki að fara
fram á, að þið hrósið mér, held-
ur bara leita ráða hjá ykkur. Á
ég að leita til sálfræðings?
Hvaða sálfræðings þá helzt? Ég
verð að tala við einhvern,
mamma skilur mig ekki, og vin-
kona mín er farin að vita of
mikið af sér.
Nú ætla ég ekki að þreyta þig
meira. Ef þú hefur pláss, þá
birtirðu þetta kannski, ef það er
þá ekki því vitlausara. Hvað
lestu úr skriftinni? Hvað held-
urðu, að ég sé gömul? Kærar
þakkir og kveðjur. Ljósbjörg.
í fyrsta lagi trúum vi8 því ekki,
að þú sért hræðilega Ijót. í öðru
lagi finnst okkur nafnið þitt
mjög fallegt og sérkennilegt
(Ljósbjörg er ekki rétta nafnið),
og þér á áreiðanlega eftir að
þykja vænt um það siðar meir.
Og í þriðja lagi skaltu ekki öf-
unda vinkonu þína of mikið af
því, hvað hún er sæt. Fallegt
andlit er lítils virði, nema því
meira sé í manneskjuna sjálfa
varið. Þú hefur ekkert að gera
til sálfræðings. Skrifaðu okkur
bara, ef þú ert leið! En langi
þig til að heyra hrósyrði, skaltu
endilega hætta að fara í fýlu.
Það er margt hægt að gera, sem
er vert hrósyrða, standa sig vel
í námi, t. d. einhverri sérstakri
námsgrein, skara fram úr í
íþróttum, vera skemmtileg í
samræðum, dansa vel, vera
glaðlynd oq fjörug o. s. frv. —
Reyndu endilega að finna eitt-
hvað jákvætt við lífið, reyndu
að byggja upp sjálfstraustið, og
mundu, að þú ert ekki eini ung-
lingurinn með minnimáttar-
kennd. Flestallir hinir eru að
deyja úr þessu sama og þú. Og
ákaflega margir lenda í þessum
sömu vandræðum heima hjá sér
og þeim, sem þú lýsir. A þess-
um árum vilja unglingar láta
taka mikið tillit til sín, en for-
eldrum og systkinum finnst þeir
ekkert merkileqri en áður. Af-
leiðingin er ærið oft gagnkvæmt
skilningsleysi. Þetta lagast allt-
af, og foreldrar þínir oq svstk-
ini verða þínir beztu vinir, þeg-
ar þú ert búin að skapa þér þitt
eigið líf, orðin sjálfstæður ein-
staklingur. Taktu á þolinmæð-
inni, og í öllum bænum temdu
þér glaðlyndi og léttlyndi og
jákvæða afstöðu til lífsins, það
er nefnilega svo voðalega gam-
an að lifa! Þú ert sennilega 14
---15 ára, og skriftin sýnir, að
þú sért vandlát og svolítið eig-
ingjörn, og þú þarft talsverða
uppörvun, ef hæfileikar þínir
eiga að fá að njóta sin.
Fljót að gleyma
Komdu sæll, kæri Póstur!
í síðustu Viku las ég, að ein-
hver I.E. óskaði eftir fræðslu í
spila- og lófalestri, einnig las
ég, að þið hefðuð farið yfir
efnisyfirlit síðustu 5 ára og ekki
fundið neitt. En þið hafið leitað
langt yfir skammt og svo ekki
nógu langt, því að í 6. tbl. 1969
er stutt lexía um lófalestur, og
í 48. tbl. 1968 (jólablaði) er
ennfremur kennt að spá í spil
og einnig í 15. tbl. 1965. Ég
vona, að þetta komi I.E. að ein-
hverju gagni, þ. e. a. s. e'f hún
getur nálgazt þessi blöð.
Ég vil svo að síðustu þakka Vik-
unni allt, er hún hefur að flytja,
og er hún lesin hér á mínu
heimili „spjaldanna á milli".
Virðingarfyllst, J.G.S.
Við þökkum J.G.S. kæriega
fyrir hjálpina. Við erum aug-
Ijóslega heldur fljót að gleyma
hér á Vikunni.
JÓLABLAÐ VIKAN 7