Vikan - 07.12.1972, Blaðsíða 51
JÖLAGJÖFIN
Smásaga eftir Egil Jónasson á Húsavik
Þegar hér var komið hugsunum hans,
þá birtist honum allt i einu áhyggjuefni.
Hvar átti hann að geyma
gersemina til jólanna? Það var hvergi
i bænum sá staður, að hann gæti ekki
átt á hættu, að hún rannsakaði.
Og i útihúsunum gat verið varasamt að
geyma svo vandaðan hlut.....
rimur, bóndi i
Hólshúsum, var á
heimleið úr kaupstað i
vikunni fyrir jólin.
Hann var i bezta skapi
og fór hægt og rólega yfir
jörðina.
Honum fannst sér ekkert
liggja á, þó að komið væri fram
yfir háttatima. Dropinn, sem
kaupmaðurinn gaf honum eftir
reikningsuppgerðina, hafði ylað
honum innan við flagbrjóstið og
gert hann glaðan.
Og þó hann væri að dangla i
Rauðku gömlu annað slagið,
sem gekk letilega fyrir
sleðanum og þræddi slóðina sina
frá þvi um morguninn, þá var
það ekki af þvi að hann vildi
flýta sér, heldur af gömlum
vana. Þvi stundum hafði Grimi
legið á að komast áfram.
En það var eins og Rauðku
lægi aldrei á. Hún sló bara
stertinum geðvonzkulega til
beggja hliða, i hvert sinn og
Grimur veifaði kaðalspottanum
til höggs.
Grimur var einstaklega
ánægður með sjálfan sig þetta
kvöld og eiginlega alla aðra - og
jafnvel Rauðku lika.
Hann fór að rifja upp i
huganum allan sinn æviferil, og
það mátti heita, að allt hefði að
óskum gengið frá þvi fyrsta að
hann mundi eftir ser. Hann var
hjá góðu fólki i uppvéxtinum og
afbragðs húsbændum sina
vinnumannstið. Þessvegna átti
hann lika nitján ær og ýmislegt
fleira til búsins, þegar hann gifti
sig. Hann stóð á þritugu, þegar
konan barst upp i hendurnar á
honum, þessi lika ágætis kona.’
hún Abigael. Já, skemmtilegur
var sá jóladagur, þegar þau
giftu sig, og siðan voru nú
tuttugu og fimm ár.
Allan þennan tima höfðu þáu
búið i Hólshúsum og búnast
ágætlega. Það eina sem angraði
Abigaei framan af árum var
það, að þeim varð ekki barna
auðið. Hún talaði oft um það við
bónda sinn, hvað heimilið væri
ánægju- og glaðværðarsnautt, og
mikill munur hefði verið að
eignast — þó ekki væri nema —
eitt til tvö börn. En Grimur
huggaði hana með þvi, að þeirri
ánægju fylgdu bæði áhyggjur og
hræðsla um börnin, og það
mundi nokkuð vega salt hvað á
móti öðru.
Framhald á bls. 64.
JOLABLAÐ VIK/ 51