Vikan


Vikan - 07.12.1972, Page 51

Vikan - 07.12.1972, Page 51
JÖLAGJÖFIN Smásaga eftir Egil Jónasson á Húsavik Þegar hér var komið hugsunum hans, þá birtist honum allt i einu áhyggjuefni. Hvar átti hann að geyma gersemina til jólanna? Það var hvergi i bænum sá staður, að hann gæti ekki átt á hættu, að hún rannsakaði. Og i útihúsunum gat verið varasamt að geyma svo vandaðan hlut..... rimur, bóndi i Hólshúsum, var á heimleið úr kaupstað i vikunni fyrir jólin. Hann var i bezta skapi og fór hægt og rólega yfir jörðina. Honum fannst sér ekkert liggja á, þó að komið væri fram yfir háttatima. Dropinn, sem kaupmaðurinn gaf honum eftir reikningsuppgerðina, hafði ylað honum innan við flagbrjóstið og gert hann glaðan. Og þó hann væri að dangla i Rauðku gömlu annað slagið, sem gekk letilega fyrir sleðanum og þræddi slóðina sina frá þvi um morguninn, þá var það ekki af þvi að hann vildi flýta sér, heldur af gömlum vana. Þvi stundum hafði Grimi legið á að komast áfram. En það var eins og Rauðku lægi aldrei á. Hún sló bara stertinum geðvonzkulega til beggja hliða, i hvert sinn og Grimur veifaði kaðalspottanum til höggs. Grimur var einstaklega ánægður með sjálfan sig þetta kvöld og eiginlega alla aðra - og jafnvel Rauðku lika. Hann fór að rifja upp i huganum allan sinn æviferil, og það mátti heita, að allt hefði að óskum gengið frá þvi fyrsta að hann mundi eftir ser. Hann var hjá góðu fólki i uppvéxtinum og afbragðs húsbændum sina vinnumannstið. Þessvegna átti hann lika nitján ær og ýmislegt fleira til búsins, þegar hann gifti sig. Hann stóð á þritugu, þegar konan barst upp i hendurnar á honum, þessi lika ágætis kona.’ hún Abigael. Já, skemmtilegur var sá jóladagur, þegar þau giftu sig, og siðan voru nú tuttugu og fimm ár. Allan þennan tima höfðu þáu búið i Hólshúsum og búnast ágætlega. Það eina sem angraði Abigaei framan af árum var það, að þeim varð ekki barna auðið. Hún talaði oft um það við bónda sinn, hvað heimilið væri ánægju- og glaðværðarsnautt, og mikill munur hefði verið að eignast — þó ekki væri nema — eitt til tvö börn. En Grimur huggaði hana með þvi, að þeirri ánægju fylgdu bæði áhyggjur og hræðsla um börnin, og það mundi nokkuð vega salt hvað á móti öðru. Framhald á bls. 64. JOLABLAÐ VIK/ 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.