Vikan - 07.12.1972, Blaðsíða 52
„EC SE EKKI EFTIR
ÞEIM TÍMA,
SEM ÉC HEF EYTT
í SKÁKINA"
VIKAN heimsækir Fríðrik ólafsson, stórmeistara,
og konu hans, Auði Júliusdóttur.
Texti: Kristin Iialldórsdóttir
að gæti verið nógu
gaman að kanna, hver
er þekktastur núlifandi
íslendingaí Kristján
Eldjárn? Halldór
Laxness? Eða er það kannski
Friðrik ólafsson? Okkur kæmi
ekki á óvari, þótt hann kæmi
sem sigurvegari úr þeirri
keppni. Hitt er annað mál, hvort
hann væri nokkuð yfir sig hrifinn
af slikri auglýsingu. Stór-
meistarinn okkar þjáist nefni-
lega af öllu öðru frekar en mikil-
mennskuórum.
Við heimsóttum þau hjónin
Auði Júliusdóttur og Friðrik
Ólafsson að Hjarðarhaga 15, þar
sem þau hafa búið sér notalegt
heimili með dætrum sinum
tveimur, Bergljótu 10 ára og
Áslaugu 3 ára. Það er aldrei
auðvelt að lýsa andrúmslofti
staða, en hugsið ykkur bara litla
stofu, sem þó virðist stór, einföld
en þægileg húsgögn, notalega
birtu og létta klassiska tónlist,
og þá eruð þið komin með okkur
heim til Auðar og Friðriks.
Eflaust er það smekkvisi hús-
iljónin Auður Júliusdóttir og Friðrik
ólafsson.
Friðrik er ósköp hógvær
og erfitt að
toga uppúr honum
afrekaskrána.
Hann er mjög rólegur
i fasi, tottar
pipu sina og hlær afsakandi,
þegar honum finnst
orð sin bera vitni
um sjálfshól.
Myndir: Sigurgcir Sigurjónsson.
móðurinnar, sem ræður
heimilisbragnum, en áhugamál
húsbóndans setur lika sinn
sérstaka svip á heimilið. Það
fyrsta sem við rákum augun i
inni i stofunni, var forláta skák-
borð úr mahogny með
marmarareitum, og það stóð þar
ekki bara upp á punt, þvi Friðrik
var i miðri skák. Og borðið á sér
sögu: l
— Þetta er gjöf frá Fidel
Castro, segir Friðrik okkur, og
mér finnst mjög gaman að eiga
þetta til minningar um Ólympiu-
mótið sem haldið var á Kúbu
1966. Okkur gekk vel þar,
íslendingunum, urðum i 11. sæti i
A- flokki. Við þurfum ekki einu
sinni að bregða fyrir okkur
höfðatölureglunni margfrægu til
að sanna það. Eftir mótið
fengum við 1. borðs mennirnir
allir að gjöf þessi borð, sem
notuð voru á mótinu og m.a.s.
stólana lika.
— En mennirnir?
— Ég timi ekki að nota þá,
segir Friðrik og dregur fram
forkunnar finan kassa, sem er
52 VIKAN JÓLABLAÐ