Vikan - 07.12.1972, Blaðsíða 98
Erum
ffluttir I hús
•lúpiters & Marz
Kirkjusandl
vlð
NÝTT SÍMANÚMER 35005
Sögusaln heimilanna
sendir frá sér eftirtaldar bækur:
ÖRLÖG RÁÐA eftir H. ST. J. Cooper. Þessi
gamla góöa, vinsæla saga í nýrri útgáfu.
Verð kr. 520, — + sölusk.
KROPPINBAKUR eftir Paul Féval. Einhver
vinsælasta skemmtisaga, sem út hefur
komið. Verð kr. 520,-+ sölusk.
ÚR FJÖTRUM FORTÍÐAR eftir Margaret
Summerton, sama höfund og SANDRÖS-
IN. Dularfull og spennandi saga.
Verð kr. 450, — + sölusk.
Sögusafn heimilanna
VIÐ OG BÚRNIN OKKAR
Er barnið
ánægt
á jólunum?
Á jólunum eiga augu barnanna að tindra í
Ijómanum frá upplýstu jólatré meðan þau
opna jólapakkana! En hvernig er þetta í raun-
veruleikanum? Margt barnið verður að bera
öskrandi í rúmið, blóðrjótt og jafnvel með hita.
Hversvegna skeður það? Barnasálfræðingur-
inn Anna Nordlund segir að börnin geti fengið
að njóta jólakvöldsins frameftir og að við get-
um gert hátíðina skemmtilegri fyrir börnin —
og þar af leiðandi fyrir okkur sjálf.
Loksins, loksins er liið
margþráða aðfangadags-
kvöld npprunnið. Mamma,
pabbi, amma, afi og frænka
og auðvitað Stína litla, sem
er þriggja ára, eru búin að
gæða sér á krásnm jóla-
borðsins. Ljósin eru tendr-
uð og allir, nema Stína, eru
mettir og sælir. Stína vildi
ekki borða matinn. Hún er
heit og rjóð og ekur sér í
stólnum. Síðan hverfur afi
um stund og nokkru síðar
er dyrabjöllunni liringt. —
Jólasveinninn er að koma!
Það verður heilmikill
hlátur og læti, pokinn
tæmdur á gólfið og þar
liggja allir þessir spenn-
andi pakkar í hrúgu á gólf-
inu. Slína verður svo æst
að bún hoppar jafnfætis í
kringum hrúguna.
Hún fær nokkra pakka,
rífur utan af þeim bréfin,
en nær þvi varla að skoða
innihaldið, því að bún vill
fá fleiri pakka strax. En
liún verður að bíða — hitt
fólkið á að fá sína pakka.
Stina er orðin löðursveitt
og getur ekki setið á sér.
Hún þrífur stóran, rauðan
pakka, en mamma bennar
á bann. Stína fær ekki að
taka utan af honum, liún
verður að bíða. En Stina
gelur ekki beðið, hún fleyg-
ir sér í gólfið og háorgar
og að lokum öskrar hún.
Hún linnir ekki grátinum
og að lokum verður að bera
bana i rúmið. Þar slokkn-
ar á henni samstundis og
hún fellur í væran svefn.
Þetta voru ljótu vand-
ræðin! Fullorðna fólkið er
vonsvikið, þvi finnst eill-
livað vanta, þegar barnið
cr ekki meðal þess.
Og Stína sjálf sá eigin-
lega ekki jólagjafirnar og
þau eru öll leið yfir því,
98 VIKAN JÓIABLAÐ