Vikan - 07.12.1972, Blaðsíða 59
Heilbrigði Hneinlæti Vellíðan
/
I næsta
hárþvott
Næsta bað
bad.ed.as
Umboðsmenn
H. A. Tulinius heildverzlun
— >aB er ekki rétt hjá þér,
sagöi hún. — Viö verðum bara að
hugsa okkur vel um, áður en við
ákvéðum að eignast hund. Þú ert
svo fljóthuga, Chris. Og þaö var
einmitt það sem ég elskaði mest
hjá föður hans, hugsaöi hún. —
Shand skilur ekki að allir séu ekki
á sama máli og hann. Ég á við
þaö, að fólk eins og Joss, ættu að
vera kyrr í sinu heimalandi, þar
passar hann i umhverfið.
Og i hans eigin landi myröa
inenn imskunnarlaust hugsaði
hún biturlega.
Hún var hjálparvana og hún
var reið út i Alan Shand. Hún
hataði alls ekki þetta fólk, vegna
dauða Andrews. Þaö var ekki
satt.
— Segðu mér eitthvað af Joss, •
sagði hún rólega. Það var
mikið átak fyrir hana að brydda
upp a þessu.
Ég hefi oft sagt þér frá honum.
mamma, hann selur miðana i
strætisvagninum og hann
heldur alltaf eftir plássi fyrir
mig. Hann á heima i Beacon
Road. Konan hans heitir Lallie og
hún ætlaði að fara að eiga barn,
en hún var slegin niöur á götunni
og varð að fara á sjúkrahús ög nú
á hún ekkert barn. Það var maöur
i bil, sem ók á hana og sló hana
niður og svo þaut hann i burtu,
hann stanzaöi ekki.........
Huih mundi eftir þessu Það
hafði verið eitthvað um það
i blööunum. Lallie hafði verið
á leið heim irá klúbbnum, svo
Alan Shand vissi ábyggilega allt
um það.
Það var vopn, sem hann hefði
getað notaö.
,En þótt hann hefði gert það,
hefði það engu breytt, sagði Ruth
þrjózkulega viö sjálfa sig.
Næsta morgun var Joss i
strætisvagninum, eins og venju-
lega. 'En þótt hann væri i
einkennisbúning, myndi hann
'aldrei ve^ða venjulegur i augum
Christophers. Hann sagöi að það
væri skemmtilegt að heyra. Og
þennan morgun sagði hann við
Bill Anstey: — Ég ætla aö fá hjá
þér hvolpinn, en ég get ekki tekiö
hann heim, fyrr en rétt fyrir jól.
Ég skal borga matinn hans, ef þú
vilt hafa hann fyrir mig þangaö
til.
— Hve mikiö viltu borga?
— Hundraö krónur á viku!
Þótt. frú Anstey fyndist þetta
nokkuö einkennilegt fyrirkomu-
lag, sagði hún ekki neitt. Og Ruth
var ánægð yfir þvi að sonur
hennar fór til Bills Anstey á
hverjum degi. Það var miklu
betra að hann fengi Bill fyrir vin
heldur en þennan Joss.
Christöpher var nú búinn að
gera fasta áætlun, sem hann
fylgdi daglega. Fyrst fór hann
með strætisvagninum út i
klúbbinn og hlustaði á allar
æfingarnar. Hann kunni nú öll
hlutverkin utanað, þaö gekk
sérstaklega vel, eftir að Shand
hafði lánað honum bókina meö
öllum textunum. Hann sá aldrei
Shand svo það var ekki liklegt að
hann kæmist aö þessu. Smám
saman hvarf honum sú tilfinning
að hann væri lokaður úti frá öllum
félagsskap. Hann var einn af
þeim, þvi þau brostu öll til hans
.þegar hann kom.
Heima hjá Anstey beið
hvolpurinn hans, hans eiginn
hvolpur, sem hoppaði i kringúm
hann af ánægju, þegar hann kom.
En Christopher var leiöur i hvert
sinn, sem hann varð að yfirgefa
hvolpinn, sem hann kallaði
Tammy. Hann ýlfraöi ámátlega,
þegar Christopher fór, en
drengurinn var lika búinn að fá
þá notalegu tilfinningu, að þarna
væri einhver, sem þarfnaðist
hans.
Áf skyldurækni skreytti móðir
hans heimiliö fyrir jólin. Hún
geröi sitt bezta. Hún hafði jafnvel
sagt syni sinum aðhann myndi fá
jólatré sem hann mætti skreyta
sjálfur. En hún var aldrei
reglulega „með honum”, Hún
var eitthvaö svo fjarræn.
Eitt kvöldiö, þegar Christopher
var úti, kom Alan Shand I
heimsókn.
— Já, hvert er erindi yöar nú?
spurði Ruth stuttaralega.
— Ég kom til að spyrja yöur
hvort þér hefðuð ekki Skipt um
skoöun, hvort tíhristopher mætti
nú ekki vera með i jólaleiknum;
sagði hann. Þetta var aö' visu
erindi hans, en samt spurði hann
sjálfan sig hversvegna hann væri
að skipta sér af þessarri konu,
sem var svo ánægð meö sjálfa sig
og ákveðin i að loka sig inni með
allan sinn einmanaleika og sorg.,
— Hversvegna ætti ég að skipta
um skoðun? spuröi hún.
— Vegna þess að Christopher
ætti að fá að taka þátt i þessu,
ekki aðeins að vera áhorfandi.
— Þetta er fáránlegt. Hún var
ósköp litil og þrjózk. — Hann á
sina vini meðal skóladrengjanna.
Og Andrew hitti sina vini á
furðulegustu stöðum, fcagði ein-
hver, mótnáælarödd i hugskoti
hennar. Var það ekki einmitt þaö,
sem þú dáðist svo að I fari hans?
Hörundslitur skipti hann aldrei
máli.
Hana langaði til að særa Alan.
— Hversvegna eigum við aö
gera svona mikið fyrir þetta fólk?
Það er fullt af fólki i þessu landi,
sem þarf á hjálp aö halda. Til
dæmis gamla fólkiö.
— Ég vissi að þér mynduð segja
þetta, sagði hann og rödd hans
íysti meöaumkun.
— En þér kærið yður kollótta,
þér óskið aðeins staöfestingar á
JÓLABLAÐ VtKAN 50