Vikan


Vikan - 07.12.1972, Page 11

Vikan - 07.12.1972, Page 11
MIG DREYMDI SKRIÐUFALL Kæri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða þennan draum, sem hér fer á eftir: Mér fannst ég búa í litlu, fal- legu þorpi. Það voru há fjöll allt í kringum það. Ég bjó þarna ein í mínu eigin húsi, en þekkti ekki marga. Allt í einu kemur vinkona mín til mín og segir: — Komdu með mér yfir að fjallinu þarna. Það var fjallið, sem var beint á móti húsinu mínu. Mig lang- aði til að fara, en svaraði samt neitandi. í sama bili fer jörðin að titra og úr fjallinu fellur mikil skriða. Ég hugsa með mér: Hvílík heppni, að við skyldum ekki fara! Niður úr fjallinu kemur þá fólk gangandi til mín. Ég ætl- aði varla að trúa mínum eigin augum, því að þarna var kom- inn sonur minn og faðir hans leiðir hann. Sonur minn hafði stækkað mikið. Hann var sum- arklæddur, í stuttbuxum og stutterma peysu. Þegar hann nálgast mig, segir hann: — Ég vissi ekki, að þetta værir þú. Ég tók hann í fangið og segi við hann um leið: — Ég bjóst ekki við því að fá þig svona fljótt. Faðir hans horfir á okkur og ég lít til hans og kyssi hann (þetta er fyrrverandi unnusti minn). En þeir stóðu ekki þarna tveir einir, heldur einn- ig bróðir minn og mágkona og börn þeirra tvö. Við þau sagði ég ekkert og þau heldur ekki neitt við mig. Ég vona að þú komist fram úr þessu hrafnasparki og einn- ig, að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig. Með fyrirfram þakklæti. S.R. Þessi draumur boðar gott. Að sjá fjöll táknar að rofi til í raunum manns. Þér býðst eitt- hvert tækifæri, en sem betur fer hafnarðu því, og það veröur þér til mikillar blessunar. Sam- bandið milli þín, sonar þíns og föður hans batnar stórum frá því sem verið hefur. Þér mun áður en langt um líður takast að lifa þínu eigin lífi, sjálf- stæð og hamingjusöm, og þú munt ekki þurfa að hafa nein- ar áhyggjur af efnahagslegri af- komu þinni. VÍSNAÞÁTTUR VIKUNNAR Alltaf galar ofsahríð yfir bala og hnjótum. Öll er falin fjallsins hlíð fram að dalamótum. Ægishallar út í brún oftast valla rofar. Flóka mjallar hrærir hún hnjúkum fjalla ofar. Nepjan þiljar iðu og ál. Yfir hyljum grænum sópa kyljur svellin hál; svifta byljir snænum. Bylgjan syngur; háreist hrönn hrín á þingi vinda. Kyljan dyngir fyllu af fönn framan í bringu rinda. Strokur gráar húsin hrjá, hrímga skjái sparka; ýlustráin hljóða há, hringi á snjáinn marka. Rjúpan lúrir lögð í fönn 1 þessum þætti birtum viö snilldargóðar hringhendur eftir Guðmund Friðjónsson, skáld á Sandi. Vísurnar birtust upprunalega í Eimreiðinni árið 1901, en hafa verið endurprentaðar síðan nokkrum sinnum: Dauðinn hóar hátt við sjó, hleypur flóann kringum; lætin óa út‘ í mó öllum snjótittlingum. Löngun stúrin líður önn; Ijúfum dúrum hallar. Rjúpan lúrir lögð í fönn, læst í búri mjallar. Bárugangur bítur stein, bjargatanga mótar. Sýldum drang og svalri hlein sær í fangi rótar. Norðri andar kalt í kvöld, kosti stranda grennir. En fyrir handan vetrar völd vorsól gandi rennir. Skemmdir gjólu bætir bezt blær, er rólar suður, þegar að stóli þorra sezt þýður sólmánuður. Roðna hnjótar, blána börð, bleytur móta vegi; belja fljót, en blómguð jörð brosir móti degi. Hreytinn hvarmur hefur brá, er Harpa barminn sýnir. Út i bjarmann eigra þái allir harmar mínir. Lopnir fingur færa sig af fölskvabingnum inni. Ég skal hringa og hjúfra mig, Harpa, að bringu þinni. Kuldagjóstinn keyri ég braut — kólguróstur linna — munargjóst og meginþraut milli brjósta þinna. Að lokum minnum við á fvrri partinn, sem birtur var í síðasta þætti, og vonum að sem flestir hag- yrðingar spreyti sig á að botna hann Skrýðist land þá skyggja fer skjannahvitum feldi. JÓLABLAÐ VIKAN 11
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.