Vikan - 07.12.1972, Page 23
að var heldur
ófriolegt um að
litast i heiminum,
haustið 1956. Dag
eftir dag sögðu
blöðin og útvarpið frá uppreisn i
Ungverjalandi. Þar reyndi ung-
verska þjóðin að hrista af sér
erlenda hersetu og áþján, en
hlaut að lokum að lúta i lægra
haldi fyrir ofureflinu.
Striðið við Súezskurð, þar sem
Bretar og Frakkar komu við
sögu auk ísraelsmanna og
Egypta, hlaut einnig drjúgan
hlut i f jölmiðlum, en hér á landi
hafði vinstri stjórn sezt að
völdum eftir kosningar
sumarsins, og að vanda voru
blöðin ósammála um flest, er til
umræðu var á vettvangi stjórn-
málanna.
Eftir góðviðri sumarsins voru
hausthretin gengin i garð.
Togarárnir voru flestir á heima-
miðum, en frátafir voru tiðar
vegna storma og erfitt að stunda
veiðarnar.
Togarinn Fylkir RE 161 frá
Reykjavik hafði látið úr höfn 5.
nóvember og haldið vestur fyrir
land. Þeir lentu i brælu, en þegar
• veðrið dúraði var allgott fiskiri.
Þeir fengu góðan afla i Þver-
x álnum, voru komnir með 130-140
lestir og afturlestin var orðin
full. Veðri var hiinsvegar þannig
háttað, að Auðunn Auðunsson
►
JÓLABLAÐ VIKAN 23