Vikan


Vikan - 07.12.1972, Síða 26

Vikan - 07.12.1972, Síða 26
abaret Örstutt framhaldssaga eftir Volodja Semitjov gerð eftir kvikmynd, sem nú fer sigurför uin heiminn. Iisa Minelli og Michael York leika aðalhlutverkin. Sally vaknaði seint. Hún var þreytt og henni var illt i höfðinu. Það var ekkert óvenjulegt. Þetta kom af þvi að vera i næturklúbbnum á nóttunni og drekka of mikið. Og augu Felix fylgdu henni eftir, köld augu i hvitmáluðu . trúðarandlitinu, rauða munninn og glansandi hárkollu, laus augnahár, — dansandi leikbrúða, sem hvorki var kona né karlmaður. Hún losnaði ekki við þessa sýn . . . Og stúlkurnar i dansflokknum . . . .meðal þeirra var að minnsta kosti ein, sem alls ekki var kven- maður . . .andlitin urðu óljós i sigarettureyknum i þétt setnum salnum . . . .og hún sjálf. Sally Bowles, sem var orðin þekkt i skemmtanaheiminum. Hún fékk mikið klapp og þakkaði fyrir sig. Þetta var i Berlin árið 1932, siðasta árið áður en allt Þýzkaland var orðið brúnt, nasistabrúnt og skreýtt hakakrossfánum. Hvað kom henni þetta við? Einhvem daginn myndi Max Reinhardt birtast i salnum og uppgötva hana, eða þá einhver, sem þekkti leikstjóra við kvikmyndir, einhver sem gæti útvegað henni hlutverk . ..... Dyrabjallan hringdi...... Sally hlustaði eftir fótataki frú Schneider á ganginum i leiguhúsinu, en hún var greinilega ekki heima. Sally vafði að sér þunnan morgunsloppinn og fór fram til að opna. Það var ungur maður, sem stóð við dyrnar. Hann var með þykkt skollitað hár og viðkvæmnislegan munnsvip, barnalegan, en þó munaðarlegan. — Býr frú Schneider hér? sagði hann. — Ég er að leitá að leiguherbergi, ódýru herbergi. — Stórkostlegt, sagði Sally. — Áttu sigarettu, élskan? Ég er alveg i öngum minum. Þetta var talsmáti frá næturklúbbnum og i munni hennar þýddi þetta að henni litizt vel á viðmælanda sinn og gæti hugsað sér að leggjast með honum. . Hann rétti henni sigarettupakka. — Stórkostlegt. — Þér eruð amerisk, er það ekki? Honum iétti greinilega og hann var ekki lengi að skipta frá þýzku yfir i ensku. Þau kynntu sig. Hann hér Brian Roberts og var frá Cambridge. — Hve lengi hefir þú verið hér? spurði hann. Framhald á bls. 44. Karlmennirnir i salnum supu hveljur, þegar hún kom fram á sviðið. Hún lagði sig alla fram til að vekja aðdáun gestanna. Þetta var hennar heimur, þangað til hún hitti Brian, sem var af aUt öðru sauðahúsi 26 VIKAN JÓLABLAÐ rs*,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.