Vikan


Vikan - 07.12.1972, Side 38

Vikan - 07.12.1972, Side 38
Þcgar þau hjón hvfla sig frá ritstörfum og heimilisstörfum, þá er gjarnan setzt viö aft spila rommi. ,;Eg hef aldrei öfundað neinn skáldabræöra minna” Stóru hvalina drápu þeir ekki frekar en bóndi kýrnar sinar. Svo var það selaskutlunin, sem ég lýsi nokkuð nákvæmlega i Márus á Valshamri. Það voru ekki nema vissir menn, sem höfðu hæfileika til þessa. En þeir skutluðu á ótrúlega löngu færi. Selaráin var fimm álna löng, og i henni var skutull, sem snæri var fest i. Þegar skutullinn hitti, losnaði ráin úr honum, en Þau eru þrjú f heimili, þau hjón og hundurinn Blundur, fagureyg og gáfuleg skepna, enda skarpur mannþekkjari. skutlarinn hélt i og dró að sér selinn. Þessum afla var yfirleitt ekki skipt nema milli þeirra, sem voru i bátnum. En þennan veiðiskap eyðilögðu selveiðar Norðmanna i norðurhöfum, og sama er að segja um hval- veiðamar, þvi það voru þetta sjö norskar hvalveiðistöðvar á Vest- fjörðum, þegar flést var.” ,,Faðir þinn hefur verið útvegsmaður samhliða bú- skapnum, eins og fleiri þarna?” ,,Þegar ég man fyrst eftir, hafði faðir minn þrjá báta, sem hann gerði út. Hann gerði út tvo að vorinu og einn að sumrinu, en þó var veiðin ekki stunduð fastar en það, að þegar þurrkur var, þá voru allir við landvinnu, en annars reri báturinn. En á haustin reru bátarnir allir þrir, og þá fékk faðir minn menn að, sem voru kallaðir útróðrar- menn. Aflinn var þá svo mikill, að ég man eftir, að faðir minn fékk einu sinni á einum degi ellefu hundruð af stórri ýsu. Hann kom tvisvar með hlaðinn bátinn. Þetta hélt svona áfram, svona til nitján hundruð og sex- sjö-átta, eitthvað þar um bil, en þá voru togararnir búnir að eyðileggja firðina að þvi marki, að ómögulegt var orðið að halda við stóru heimili, sem byggðist aðallega á fiskveiði. Ég man eftir þvi, að togararnir voru svo grunnt, að það heyrðist i vindunum i land, þegar logn var.” „Þeir hafa farið inn um alla firði, inn i botn?” ,,Já. Ég man, að faðir minn frétti eitt sinn af dönsku varð- skipi á Dýrafirði. Hann sendi þeim dönsku þá bréf og þau boð, að þeir kæmu og tækju land- helgisbrjótana, en þá þurftu þeir að sitja veizlu i Framnesi, i hvalveiðistöðinni, offiserarnir á varðskipinu, og þegar varð- skipið kom, voru togararnir famir. Oðru sinni var það - og það er ein min kærasta minning - að faðir minn fréttir að varðskipið Hekla sé statt á ísafirði. Hann sendir hraðboða til ísafjarðar, þótt þetta sé yfir þr já heiðarvegi og tvo firði að fara. Og svo man ég eftir þvi, að ég er háttaður að kvöldinu. Það voru tveir togarar i firðinum. Allt i einu heyri ég að dunar i fjöllunum eins og séu skriður að falla. Ég rýk út i gluggann, og sé þá, að togararnir stýra út úr firði, og reykurinn stendur kafþvkkur upp úr reykháfunum. Svo kemur Hekla i íjós og tók þá þarna. Hún fór með þá til ísafjarðar. En siðan kemur varðskipið eftir nokkra daga og leggst fram af Lokinhömrum. Og það er sendur bátur i land. Þar er foringinn á i 38 VIKAN JÓLABLAÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.