Vikan


Vikan - 07.12.1972, Page 96

Vikan - 07.12.1972, Page 96
Tómstundahúsð er barnanna ur til hringsins er hann hafði náð um nóttina á hallargólfinu í álfheimum og segir: „Þó ég ætli mér óskylt að sanna draum- sögu með jarteiknum þá vill svo vel til að ég hef hér eigi óljósan vott þess að ég hafi með álfum verið í nótt, eða er þetta ekki fingurgull yðar. Hildur drottning?" Hildur mælti: „Svo er víst og hafðu allra manna heppnastur og sælastur leyst mig úr ánauð þeirri er tengda- móðir mín hefur á mig lagt, og hef ég orðið nauðug að vinna öll þau ódæmi er hún á mig lagði.“ Hefur þá Hildur drottn- ing sögu sína svo látandi: „Ég var álfamey af ótignum ættum, en sá sem nú er kon- ungur yfir álfheimum varð ást- fanginn í mér. Og þótt móður hans væri það alnauðugt gekk hann að eiga mig. Varð tengda- móðir mín þá svo æf, að hún hézt við son sinn að hann skyldi skamma unaðsbót af mér hljóta, en þó skyldum við sjást mega endrum og eins. En á mig lagði hún það að ég skyldi verða ambátt í mann- heimum og fylgdu þar með þau ósköp að ég skyldi verða mannsbani hverja jólanótt á þann hátt að ég skyldi leggja beizli mitt við þá sofandi og ríða þeim sömu leið og er ég reið sauðamanni þessum í nótt til að hitta konunginn; og skyldi þessu svo fram fara þangað til óhæfa þessi sannað- ist á mig og ég yrði drepin nema ég hitti áður svo vaskan mann og hugaðan að hann bæri traust til að fylgja mér í álf- heima og gæti eftir á sannað að hann hefði þangað komið og séð þar athæfi manna. Nú er það bert að allir hinir fyrri sauðamenn bónda síðan ég kom hér hafa bana beðið fyrir mín- ar sakir, og vænti ég að mér verði þó ekki gefin sök á því sem mér varð ósjálfrátt því enginn hefur fyrr til þess orð- ið að kanna hina neðri leið og forvitnast um híbýli álfa en þessi fullhugi sem nú hefur leyst mig úr ánauð minni og álögum, og skal ég að vísu launa honum það þó síðar verði. Nú skal hér og eigi lengri við- dvöl eiga og hafið þér góða þökk er mér hafið vel reynzt, en mig fýsir nú til heimkynna minna.“ Að því mæltu hvarf Hildur drottning og hefur hún aldrei síðan sézt í mannheim- um. En það er frá sauðamanni að segja að hann kvongaðist og reisti bú næsta vor eftir. Var það hvort tveggja að bóndi gjörði vel við hann er hann fór enda setti hann ekki saman af engu. Hann varð hinn nýtasti bóndi í héraðinu og sóttu menn hann jafnan að ráðum og lið- semd, en ástsæld hans og lán var svo mikið að mönnum þótti líkindum meiri og sem tvö höf- uð væri á hverri skepnu, og kvaðst hann allan sinn upp- gang eiga að þakka Hildi álfa- drottningu. (Úr þjóös. Jóns Árnasonar) — Reyndu að stilla þig, María, annars verð ég að hætta að nota þennan rakspira! — Þessar aðskornu skyrtur fara ljómandi vel á bakið! — Ég ætla bara að taka það fram, Jósep, að ef þú vinnur, þá segi ég þér upp! — Það er ég, sem á að vera vond, ég keypti minn hatt fyrir útsöluna! 96 VIKAN JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.