Vikan


Vikan - 17.12.1987, Side 7

Vikan - 17.12.1987, Side 7
Bílahöfnin við bakka Drammenfljóts. Rúmlega 1700 japanskir bilar voru geymdir við árbakkann þegar flaeddi.. hverfismálaskrifstofunnar, sem segir að meðalsaltefhainnihald vatnsins frá bílaplaninu hafi ver- ið um 60 mg/1, en skv. upplýs- ingum Orkustofnunar íslands mælist saltinnihald venjulegs sjávarvatns um 19000 mg/1. Miklir hagsmunir í húfi Bílarnir á hafnarbakkanum voru tryggðir fyrir hundruðir milljóna króna og var því trygg- ingafélögunum mikið í mun að dregið yrði úr tjóninu eftir mætti. Samkvæmt mati trygg- ingafélaganna skemmdust flestir bílanna lítið, en vegna þess að tollareglur í Noregi eru mjög strangar, taldi umboðsmaður Subaru sér óhagstætt að fá tjóna- bílana inn á niarkað þar og féllst tryggingafélagið á að greiða þá að fullu gegn því að mega endurselja þá til annars lands. Norska Subaru-umboðið Auto- industri a/s krafðist samt að bíl- arnir yrðu ekki seldir innan Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar eða Finnlands. Hins vegar gleymdist að nefna ísland í skilmálunum. Bílarnir voru að lokum seldir til bandarísks aðila, sem síðan seldi 235 þeirra til fjögurra ein- staklinga á íslandi. Lögmaður í Noregi, Tore Aas, sem haiði milligöngu um við- skiptin á milli hins bandaríska aðila og trygginafélagsins, segir í bréfi til Vikunnar, að 32 af þeim 331 Subaru bílum sem lentu í tjóninu, hafi verið innleystir af norska umboðinu til sölu í Nor- egi. Lögmaðurinn segir tjóna- mat staðfesta, að sá tæknilegi skaði sem bílarnir hafi orðið fyrir, jafhist á við þær skemmdir sem bílar verða fyrir við að aka nokkra tugi kílómetra eftir blautum vegi. „Ef framleiðandi Subaru telur bílana ónýta eftir slíka meðferð, eru Subaru bílar almennt ekki hæfir fyrir akstur í Noregi,“ segir lögmaðurinn. Tjónaskýrslum ber ekki saman Eins og kunnugt er, hefur Hekla h.f. keypt nokkur hundr- uð Mitsubishi bíla til íslands, frá umræddu tjóni. Samkvæmt upp- lýsingum sem Vikan aflaði sér í Noregi féllst Mitsubishiumboð- ið í Noregi á að lækka bótakröfu sína til trygginafélagsins gegn {iví að fá að selja bílana til slands. Framleiðandi þessara bíla hefur ekki gert neinar at- hugasemdir við þau viðskipti, þar sem bílarnir voru aðeins taldir hafa orðið fyrir óverulegu tjóni. Samkvæmt bréfi Tore Aas, sem vitnar í tjónaskýrslu Store Brand tryggingafélagsins voru skemmdirnar á Subaru bílunum af sama toga og Mitsubishi bíl- unum, eða óverulegar. Hins vegar voru bílarnir keyptir til ís- lands af aðilum sem hafa engin tengsl við Subaru umboðið hér á landi. Fréttir um að Subaru bifreið- arnar hafi líka verið seldar til íslands, hljóta því að hafa valdið umboðsmanni bifreiðanna, Ingvari Helgasyni talsverðum áhyggjum, þar sem sala á þeim hér ógnar tvímælalaust hags- munum fyrirtækis hans. Fljótlega eftir að fféttist um kaup íslendinga á Subaru bílun- um, barst Biffeiðaeftirliti ríkis- ins í hendur bréf frá umdæmis- fulltrúa framleiðanda Subaru, Fuji Heavy Industries Ltd. í Norður-Evrópu, þess eðlis, að bifreiðarnar frá Drammen, væru gjörónýtar og ætti því alls ekki að leyfa skráningu á þeim hér á landi. Bréfið er dagsett þann 4. des- ember, en norski lögmaðurinn Tore Aas segir í bréfi sínu til Vikunnar, að hvorki framleið- andi Subaru, né bifreiðaeffirlitið í Noregi hafi rannsakað bílana þegar hér var komið sögu. Tjónamat tryggingafélagsins stangast því greinilega á við full- yrðingar í bréfinu til Bifreiðaeft- irlitsins á íslandi. Þáttur Bifreiðaeftirlitsins? Bifreiðaeftirlit ríkisins kemst í erfiða aðstöðu, þegar fúllyrt er af talsmanni framleiðanda Sub- aru bifreiðanna, að umræddir bílar frá Drammen-flóðinu séu stórhættulegir og því sé ráðlegt að hafna þeim algjörlega til skráningar. Staða eftirlitsins er því verri, þar sem það hefur leyft innflutning á Mitsubishi bílunum ffá sama flóði. Bílarnir stóðu á sama plani og sam- kvæmt tjónaskýrslum urðu þeir fýrir sambærilegu tjóni. Lög- maður kaupenda Subaru bílanna telur að Bifreiðaeftirlitið geti ekki vikist undan að taka bílana VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.