Vikan


Vikan - 17.12.1987, Page 8

Vikan - 17.12.1987, Page 8
til skoðunar ef þeir koma til íslands, og að stofhunin geti ekki ffekar tekið orð talsmanna ffamleiðanda bíla trúanleg um að nýir bílar séu heilir. Enda tekur eftirlitið alla nýja bíla til skoðunar áður en þeir fá skrán- ingu og eru orð framleiðenda um ágæti þeirra almennt ekki lögð til grundavallar mati eftir- litsins um öryggi bíla. Framleiðandi Subaru, Fuji He- avy Industries Ltd., virðist ekki hafa gert það að kröfu sinni að Store Brand tryggingafélagið ónýtti bílana, heldur var aðeins tekið fram að ekki mætti selja þá innan Skandinavíu og virðast því söluhagsmundir umboð- anna í þessum löndum fyrst og ffemst hafa verið hafðir að leið- arljósi í tjónauppgjörinu. „Ef Fuji verksmiðjurnar telja Subaru bílana gjörónýta og ótt- ast að þeir geti verið hættulegir öryggi notenda, er verksmiðj- unum í lófa lagið að innkalla bíl- ana gegn greiðslu bóta,“ segir einn kaupenda þeirra á íslandi, Margeir Margeirsson í samtali við Vikuna, en slík krafa hefur ekki komið enn frá verksmiðj- unum í Japan, segir hann. Margeir segir íslensku eigendur bílana ekki hafa í huga að selja þá umboðinu í Noregi, þrátt fyr- ir nýju beiðnina þar að lútandi. Athyglisvert er, að Subaru umboðið í Noregi talar ekki um sjóskemmda bíla í kauptilboð- inu, heldur aðeins um bíla úr vatnstjóni, eða „water damaged cars“. Kaupendur að öllum bílunum 235 Margeir Margeirsson segir að þegar séu til kaupendur að öll- um Subaru bílunum 235, ef þeir fást skráðir á götuna hér á landi. „Það hefur ekki stoppað hjá okkur síminn og við erurn þegar með Iangan biðlista af kaupend- um, sem vilja fá bílana, þrátt fyr- ir lygasögur um að þeir hafl ver- ið í sjóbaði," segir Margeir. Eigendur Subaru bílanna um- deildu, segjast álíta að Ingvar Helgason h.f hafi hreinlega kraf- ist þess að umboðsmaður Fuji til- kynnti Biffeiðaeftirliti ríkisins, að hann teldi bílana ónýta, til þess að hagsmunir umboðsins hér yrðu ekki skertir ef bílarnir færu á markað hér. Guðmundur Ingvarsson, ffamkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar h.f. segir fyrirtækið ekki hafa haff nein afskipti af bréfaskriffum umboðsmanns Subaru í N-Evrópu til Bifreiða- eff irlits ríkisins. „Þessi yfirlýsing er upphaflega komin frá fram- leiðendunum í Japan og sendu þeir hana frá sér á meðan á við- 8 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.