Vikan - 17.12.1987, Qupperneq 15
,Jólasveinninn kíkir á gluggann," segir Guðmundur Orri og lætur því ekki skóinn í gluggann.
Jólarigningin beit ekki á hann, enda afspymu vel búinn með nýju gulu regnhlífina frá
mömmu.
Jólin eru langt í
sagði Guðmundur Orri Sæv-
arsson, þriggja ára, þegar
hann var spurður: Hvað eru
jólin? Hann vissi þó um
pakkana sem fólk fáer á jól-
unum og sagði að jólasvein-
arnir kæmu labbandi ofan úr
íjöllum með pakkana — og
líka með pakka handa
mömmu. Hann ætlaði að fá
He-Man og sýndi okkur grip-
inn í glugganum á Liverpool.
Aftur á móti vildi hann
ekkert tala um skóinn í
glugganum og sagði mamma
hans að hann neitaði að setja
skóinn í gluggann. — Af
hverju? .Jólasveinninn kíkir
á gluggann,“ sagði Guð-
burtu
mundur, ábúðarfullur á svip
og var auðsjáanlega lítið um
Gluggagægi gefið. Ekki sagð-
ist hann heldur myndi bjóða
aumingja jólasveininum inn,
þó hann væri dauðþreyttur
eftir að hafa komið labbandi
úr fjöllunum með pakkana.
— Af hverju ekki? „Bara.“ Og
ekki orð um það meir.
Eyðum litlu
í jólin sjálf
Það eru fleiri á ferli á
Laugaveginum en börnin.
Þetta unga par var að skoða
listmuni í einni versluninni.
„Við erum að leita að gjöf
handa systur minni og
mági,“ sagði Halldóra Þor-
gilsdóttir, en hún og Heimir
Oskarsson sögðust þurfa að
kaupa jólagjafir handa 19
manns. - Eruð þið að byrja
í jólainnkaupunum? voru þau
spurð, en þau eru í forsjála
hópnum og höfðu byrjað í
nóvember og þar að auki
keypt jólafötin í London í
sumar. Hvað héldu þau að
þau myndu eyða í allt í
jólaundirbúninginn? Það
vissu þau ekki, „en við eyð-
um ekki miklu í jólin sjálf,“
sagði Heimir og átti þá við í
mat og þess háttar því þau
ætla að dvelja hjá ættingjum
fyrir norðan yfir hátíðarnar.
„Við erum að leita að gjöf
fýrir systur mína og mág.“
Garparnir
Bækur og jól eiga saman
og í barnabókabúð hittum
við tvíburana Þorvarð Davíð
og Þórð Daníel Ólafssyni,
ásamt vini þeirra Sverri
Kristjánssyni þar sem þeir
voru niðursokknir í að
skoða teiknimyndabækur.
Tvíburarnir sögðust helst
vilja fá Garpana í jólagjöf.
— Hvaða bók er það?
Strákarnir og ljósmyndar-
inn litu forviða á mig: Hvaða
bók? Þetta eru karlar úr
teiknimyndaseríu í sjón-
Hangikjöt er besti
jólamaturinn!
varpinu! Hvar hefur þú
verið?
Sverrir vildi þó helst fá
tölvu því honum finnst gam-
an í tölvuleikjum. Annars
sögðust þeir vera í bænum
til að skoða jólagjafir sem
þeir ætluðu síðan að kaupa
fyrir peningana sem þeir
höfðu safnað. Það skemmti-
legasta við jólin, fannst
þeim, er að gefa gjafirnar —
að vísu væri líka gaman að fá
pakka.
Allir strákarnir vildu helst
fá hangikjöt í jólamatinn —
það væri svo gott. Tvíbur-
arnir sögðust vera heima hjá
sér á jólunum, en oft væri
farið til afa og ömmu sem
væri mjög gaman.
0 Kröfuharðir kjósa'^>^^^^herrasnyrtivörur |Q
VIKAN 15