Vikan


Vikan - 17.12.1987, Page 46

Vikan - 17.12.1987, Page 46
i Stóri bróðir minn sem heitir Leifur er í sjöunda bekk og hann er bestur í öllu. Það segir hann sjálfur. Hann er betri í reikn- ingi en mamma og pabbi saman, þannig að í hvert sinn sem ég veit ekki eitthvað þá fer ég og spyr Leif. Hann er líka góður í þýsku. Hann getur talið eins hátt og hann nennir. Og enskan! Þegar við horf- um á enska eða ameríska mynd í sjónvarp- inu þá þarf Leifur alis ekki að lesa allan textann. Hann hlustar á talið. Oft situr hann og hristir höfuðið og ef við spyrjum hann af hverju, hvað sé að, þá stynur hann að það sé alveg furðulegt að þeir geti ekki fiindið skárri þýðanda þarna hjá sjón- varpinu. Leifiir er alltaf með Soffiu. Hún er líka í sjöunda bekk. Þau sitja saman. Soffia veit líka næstum allt og það eru alltaf Leifúr og Soffia sem segja mest í tímum þegar verið er að tala um foreldra og vasapeninga og þess háttar. Stundum fæ ég að vera inni í herbergi hjá Leifi. Ef Soffia er í heimsókn þá á ég að banka áður en ég kem inn. Síðan sit ég og hlusta á allt sem þau eru að tala um. Sumt af því sem þau segja skil ég alls ekki af því þau nota orð sem ég er ekki enn búinn að læra. Núna er ég farinn að skilja að góð mynd heitir ekki góð mynd, heldur hörku feitur strimill. Einn daginn í byrjun desember hafði Leifúr læst dyrunum hjá sér og þó ég bankaði hátt og lengi þá fékk ég ekki að koma inn fýrr en ég hafði farið út í sjoppu og keypt tvær stórar kók og borgað fyrir af jólagjafapeningunum mínum. Leifúr og Soffia áttu annríkt þennan dag. Þau voru rjóð og sveitt í framan og þau voru að mála eitthvað á stór pappa- spjöld. Ekki myndir heldur bókstafi. Þau höfðu dregið útlínurnar með blýanti fyrst og voru nú að lita þá með tússi í mörgum litum. Á spjaldinu hjá Leifi stóð „Niður með Þegar Soffía og Leifur voru farin hengdi ég alla pappajólasveinana upp aftur, en ég var í döpru skapi af því Leifur og Soffía vildu jólin burt. jólin“ og á Soffiu spjaldi, sem lá á gólfinu, stóð ,Jól eru £rat“. Bæði Leifúr og Soffia voru alvarleg á svip þarna sem þau lágu og tússuðu svo ískraði í pappírnum. — Til hvers ætlið þið að nota þessi skilti? Spurði ég. Leifúr leit snöggt á mig: — Við ætlum út og mótmæla jólunum. — Af því jól eru ekki annað en svínarí, heyrðist ffá Soffiu. — Jól eru ekki til annars en plokka pen- inga af fólki, sagði Leifúr. — Á jólunum sitjum við og étum og drekkum án þess að hugsa nokkuð um aðra, hélt Soffia áfram. — Það eru peningar í jólunum. - Niður með jólin! — Jól eru frat. Þau ráku bæði stóru pappaskiltin beint upp í fésið á mér. — Hver sagði þetta? Spurði ég varfern- islega. — Stóri bróðir minn, svaraði Soffia, og hann veit það af því hann er sjálfúr að mótmæla í háskólanum. Ég skildi þetta ekki alveg. — Er þetta... er þetta... eitthvað sem þið ... eh ... eruð að leika? — Leika? finæsti Soffia. Nei lilli minn, þetta er alvara. , / Leifúr kinkaði kolli og dró fram spýtur sem hann hafði falið undir rúmi. Soffia var tilbúin með hamar og nagla. Eftir nokkrar mínútur voru plakötin tilbúin. — Komdu þá! sagði Soffia áköf. Við skulum æfa okkur. Þau stilltu sér upp í röð og gengu um alla íbúð með plakötin á lofti og alvarleg- an svip. Þau mótmæltu í anddyrinu, í eld- húsinu, í mínu herbergi og í hjónaher- berginu. Það var gaman að horfa á þau, því þau líktust mótmælalest. Lítilli lest. Inni í stofú stóðu þau á miðju gólfi við hliðina á hvort öðru og störðu út í lofitið. Þó ég plantaði mér fyrir framan þau þá sáu þau mig alls ekki. Allt í einu tók Soffia kipp. Hún hnyklaði brýmar, lyfti þeirri höndinni sem laus var og benti á Borgundarhólmskukkuna okkar, en á henni hékk jólasveinn. — Ég skil ekki hvernig þið þolið að horfa á svona lagað, sagði hún þreytulega. — Og hún sneri sér við og horfði í kring um sig í stofúnni. Á mörgum fleiri stöðum héngu jólasveinar. Leifúr stóribróðir tvísté, eins og honum væri orðið illt í tánum af því að mótmæla. Síðan rétti hann Soffiu skiltið: - Haltu aðeins á þessu! Síðan fór hann að rífa alla jólasveinana okkar niður. — En, þú varst sjálíúr með í aó klippa þá út, mótmælti ég. Leifúr þeytti öllum jólasveinunum á gólfið fyrir framan mig. — Ekki í ár. Það var í fyrra. Ég rótaði í jólasveinabunkanum og fann einn — lítinn, glaðlegan og feitan sem sat á bakinu á svörtum ketti. — Hvað með þennan? Klipptirðu hann kannski ekki? Hrópaði ég. Á sunnudags- kvöldið! Og það varst þú sjálfúr sem hengdir hann efst á bókaskápinn. Leifúr sneri bara við mér bakinu og benti til Soffiu með sínu skilti: — Komdu, við skulum koma okkur og athuga hvað hin eru búin að gera! Þegar Soffia og Leifúr voru farin hengdi ég alla pappajólasveinana upp aftur, en ég var í döpru skapi af því Leifúr og Soffia vildu jólin burt. Þegar ég hef mikið að hugsa þá fel ég mig alltaf einhvers staðar. Maður hugsar betur þegar maður fer í burtu. í þetta sinn skreið ég undir rúmið í herberginu hjá mömmu og pabba. Ég var rétt búinn að koma mér fýrir og var tilbúinn til að fara að hugsa þegar ég heyrði stigið létt á tröppurnar. Mamma. — Halló! Hrópaði hún um leið og hún hafði opnað dyrnar, en ég nennti ekki að vera heima. Mamma labbaði um íbúðina á ullarhos- unum og af og til flautaði hún nokkrar laglínur úr jólalagi. Ekki batnaði skapið hjá mér af því. Allt í einu kom hún inn í svefhherberg- ið og það kom dæld í rúmið, eins og ein- hverju hefði verið fleygt á það. Mamma hélt áfiram að bjástra eitthvað í herberginu. Ég opnaði augun og sá fet- urna á henni þjóta um. Að rúminu — yfir að skápnum. Að rúminu — yfir að skápnum. Ég sneri mér ákaflega varlega þannig að ég gæti séð mömmu alla með öðru aug- anu. Hún stóð uppi á stól fyrir framan skápinn og þar var hún að setja risastóran jólapakka upp á efstu hillu. Hann komst varla fyrir því þar voru svo margir pakkar fyrir. Ég flýtti mér að snúa höfðinu. Ég þoldi ekki að horfa á alla þessa pakka eftir að vera nýbúinn að frétta að stóribróðir manns vildi jólin burt. Stuttu seinna fór mamma ffarn í eldhús og þá skreið ég undan rúminu og læddist fram á baðherbergi. — Hvað, ertu heima! Hrópaði hún upp þegar ég fór loks til hennar. Hvar faldirðu þig eiginlega? — Inni á klói, sagði ég þungur á svip, því þar er ekkert við að vera. Síðan sagði ég mömmu hvernig Leifúr og Soffia og fúllt af öðrum krökkum ætl- uðu að eyðileggja jólin. Við matarborðið rykkti ég stólnum 46 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.