Vikan - 17.12.1987, Blaðsíða 52
Hvort lífríki hornsíla
og stokkanda á
Tjörninni í Reykjavík
raskast verulega viö
þaö að ráöhúsið
hans Daviðs verður
byggt eða ekki
verður ekki sannað
eða afsannað nema
að húsið verði reist.
Ráðhúsid og lífkeðja Tjarnarinnar
Mér varð það á að flögra
yflr Tjömina í Reykjavík í
fyrri viku. Það var makalaust
að sjá. Ég grannskoðaði sér-
staklega það hom Tjarnar-
innar sem á að hverfa undir
ráðhús. Ekki gat ég séð að
endurnar kvörtuðu mikið
enda var verið að reyta í þær
hveitibrauði. Davíð ber
ábyrgð á þessum öndum.
Fyrirhuguð ráðhúsbygging
fer fyrir brjóstið á mörgum. Það
skil ég bara ekki því að þennan
forarpoll mætti minnka sem
svarar einu ráðhúsi.
Ég held líka að öndunum og
gæsunum sé alveg skítsama ef
þær fá bara nóg brauð frá gest-
um og gangandi. Hveitibrauðið
viðheldur lifríkinu á Tjörninni.
Margir þeirra sem mótmæla
ráðhúsbyggingunni hans Davíðs
borgarstjóra vilja láta rannsaka
lífríki Tjarnarinnar. Ég bara
spyr, hvers konar lífríki er þar
fyrir hendi? Ef rannsókn fer fram
þá vil ég að hveitibrauðsátið á
öndunum komi skýrt inn í rann-
sóknina á lífkeðjunni. Mér er
ekki ljóst hvar hornsílin koma
inn í myndina en það er fullyrt
að þau séu enn á fífi í Tjöminni
þrátt fyrir allt.
Tjörnin er orðin dálítið
gruggug en hornsíli þurfa ekki
að sjá, sagði vinur minn einn
sem er líflræðingur. Það er
nefnilega talið að hornsílin hafi
innbyggðan radar svo þau geta
synt og lifað í hvaða drullupofli
sem er.
Jæja, það var ekki meiningin
að fara að halda uppi neinum
sérstökmum áróðri fyrir
endurnar og hornsílin. En rann-
sóknin á lífríki Tjarnarinnar
mun vafalaust leiða ýmislegt
fróðlegt í ljós. Það er nefriilega
hægt að ala endur, gæsir og álftir
á hveitibrauði nánast einu
saman. Þetta ætti að verða fróð-
legt fyrir rannsóknarnefiidina
sem vinnur við Mývatn þar sem
menn eru með áhyggjur af anda-
lífinu vegna þess að dælt er upp
botnfallinu til kísilgúrfram-
leiðslu. Það hafa líka margir á
móti kísligúrnum og telja að líf-
ríkinu verði raskað. Líklega er
ljóst að það er ekkert að óttast
ef tekið er upp reglulegt hveiti-
brauðsát hjá öndunum. Þannig
mætti bjarga öndunum við
Mývatn.
Hvort að lífríki hornsíla og
stokkanda á Tjörninni í Reykja-
vík raskast verulega við þáð að
ráðhúsið hans Davíðs verður
byggt eða ekki verður ekki
sannað né afsannað nema að
húsið verði reist. Ég hallast nú
helst að því að bæði endurnar
og hornsílin lifi það af og jaíhvel
Flosi Ólafsson líka.
Ég styð einfaldlega ráðhús-
bygginguna og jafnfram rann-
sóknarverkefhið á lífríkinu í og á
Tjörninni. Lífiræðingum hefur
nelhilega fjölgað eins og öndun-
um á Tjörninni svo að fjölgun
rannsóknarverkefna ætti að
vera kærkomið til að hamla á
móti verkefnaskorti.
Þegar eru komin út merkileg
rit um rannsóknir við Þingvalla-
vatn og Mývatn og þess vegna
er mjög tímabært að vísindalegt
rit um vistkerfi Tjarnarinnar líti
dagsins ljós.
Það er því líklega afar brýnt
að menn haldi áffam ótrauðir
með ráðhúsið og jafnframt með
rannsóknirnar á lífríki Tjarnar-
innar.
Svo má alltaf halda áfram að
rífast eftir á.
Páfi.
■
i’líhafc
UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
52 VIKAN