Vikan


Vikan - 17.12.1987, Page 55

Vikan - 17.12.1987, Page 55
„Nei, jólasveinar á bamum! Doddi, sjáðu þessa!“ grípur maðurinn með bangsann hér inn í samtalið eftir að hafa aðeins blundað við barinn. „Hvar em hreindýrin, strákar?“ Skál. Sjálfsmorð er göróttur drykkur og óhóf- leg neysla hans getur sett athyglisgáfu mætari manna en mín úr skorðum. Því tek ég ekki eftir með hvaða hætti tveir jóla- sveinar koma að barnum. En þarna standa þeir, í gallanum með gerviskeggin, og hvolfa í sig hverju glasinu á fetur öðru. „Þetta var ljóta klúðrið hjá þér þarna í stórmarkaðinum Nonni. Þú átt að klípa og klappa á kinnar krakkanna en ekki aftur- enda mæðra þeirra," segir annar þeirra um leið og hann klárar úr glasi sínu og biður um annað. „Vertu ekki að þessu væli maður, ég er rétt að byrja í djobbinu. Manni geta orðið á mistök Bubbi. Ég passa mig næst,“ svarar hinn. „Næst? Næst? Við fáum ekki einu sinni að versla þarna í náinni ffamtíð eftir að þessi kerling sló þig utan í sultukrukku- staflann. Hvernig datt þér í hug að káfa á brjósunum á henni?“ spyr Bubbi. „í fyrsta lagi var þetta engin kerling og í öðru lagi kom ég alveg óvart við tútturn- ar á henni þegar hún rétti mér þennan grisling sinn. Þetta var bara óhapp," svarar Nonni. ,Já, en þurfitirðu endilega að segja versl- unarstjóranum að skreppa bara út í bakarí eftir vöfflum... “ „Nei, jólasveinar á barnum. Doddi sjáðu þessa," grípur maðurinn með bangsann hér inn í samtalið eftir að hafa blundað aðeins við barinn: „Hvar eru hreindýrin strákar?" Nonni lítur lauslega í átt til mannsins og segir honum að hreindýrin standi á bílastæðinu fyrir utan. Brosir svo: „Viltu ekki skreppa fýrir okkur út og setja tíkall í stöðumælinn hjá þeim?“ „Allt í lagi strákar en þið verðið þá að passa Dodda á meðan,“ segir maðurinn og réttir þeim ferlíkið. „En ekki gefa honum að drekka," heldur hann áfram og hvíslar svo í eyrað á Bubba: „Hann verður nefnilega brjálaður með víni.“ Svo er hann rokinn út. Skál. Maðurinn kemur fljótlega inn aftur með geggjaðann glampa í augunum, þríf- ur í Nonna og öskrar í andlit hans: ,Af- hverju sagðirðu mér ekki að þau væru villt? Ég ætlaði að klappa þeim og annað þeirra beit mig.“ „Um hvað ertu að röfla rnaður?" spyr Nonni undrandi. „Nú hreindýrin, hreindýrin hérna fýrir utan.“ „Hvaða hreindýr?" „Nú þessi sem þið eruð með. Átti ég ekki að setja tíkall í stöðumælinn fýrir ykkur?“ „Við erum ekki með nein hreindýr. Ertu eitthvað verri?“ segir Nonni og slítur sig lausan frá manninum. „Það standa hérna tvö hreindýr og sleði fyrir utan, ég get svarið það.“ „Maðurinn er blindfúllur,“ segir Bubbi er hann horfir á eftir honum inn í salinn þar sem hann reynir að telja fleirum trú um hreindýrin. Nú er ég búinn að fá nóg af Þorláksbar þetta árið og kem mér út. Eins og vana- lega er búið að næla stöðumælasekt við sleðann minn. O jæja það gerist á hverju ári. Skál. VIKAN 55

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.