Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 32
SIGRÍÐUR JÓNSDÓHIR, BRÚÐUR NÓVEMBERMÁNAÐAR:
VAR HRÆDD UM AD MISSA
BRÚÐGUMANN Á SKYTTIRÍ
Sigríður Jónsdóttir á Ak-
ureyri er brúður nóvem-
bermánaðar. Eiginmað-
ur hennar er Karl Jónsson.
Hún stundar nám við Háskól-
ann á Akureyri, auk þess sem
hún annast hálfs árs gamla
dóttur þeirra hjóna. Karl er
langt kominn með flugnám og
stefnir að því að geta starfað
sem flugmaður nyrðra þegar
hann hefur öðlast tilskilin rétt-
indi. Þau bjuggu f Reykjavík
síðastliðinn vetur á meðan
Karl var f bóklegu námi og að
sögn Sigríðar kunnu þau
ágætlega við það, þó þau vildu
ekki búa í höfuðborginni til
langframa. Hún segist reyndar
aðeins sækja tfma í einni
grein í vetur, efnafræði, en
næsta vetur ætlar hún að hefja
hjúkrunarnám við háskólann.
Hún er Innbæingur, eins og
fram kom í spjallinu við Ás-
grím Ijósmyndara, en byggðin
niðri við sjóinn, í áttina frá flug-
vellinum og inn í miðbæinn, er
kölluð þessu nafni. „Við búum
reyndar uppi á Brekku núna,"
sagði Sigríður, „en eins og
stendur dveljum við hjá for-
eldrum mínum. Við ætlum aö
bíða með að fá okkur eigin
íbúð þangað til Karl er kominn
með fasta vinnu og hefur lokið
öllum prófum.“
Þau Sigríðurog Karl byrjuðu
að vera saman á meðan þau
voru í menntaskóla. „Við vor-
um reyndar saman f bekk öll
Frh. á næstu opnu
32 VIKAN 26. TBL. 1991