Vikan - 27.12.1991, Page 49
örlitlum mismun á loftslagi,
fjölda sólskinsstunda og sam-
setningu jarövegarins. Þekkt-
ustu hlutar svæðisins og jafn-
framt þeir bestu eru Grande
Champagne og Petite Cham-
pagne sem eru i héraðinu
miðju. Samkvæmt frönskum
lögum síðan 1938 má gæða-
stimpillinn „Fine Champagne"
aðeins fylgja því koníaki sem
kemur frá þessum tveimur
vinræktarsvæðum.
Koníakið er framleitt úr vet-
urgömlu, þurru og bragðmiklu
hvítvini. Gerjunin tekur nokk-
urn tíma en þann 31. mars á
henni að vera lokið lögum
samkvæmt og er það þá orðið
7-10 prósent að styrkleika.
Tíminn er svo fastskorðaður
vegna hættu á því að hið rétta
jafnvægi á milli litar og lyktar
spillist þegar hitnar í veðri.
Þá tekur eimingin við. Hún
fer fram í svepplaga pottum
sem hafa verið nákvæmlega
eins að gerð og lögun í meira
en þrjár aldir. Eimingin er hæg
og krefst bæði nákvæmni og
yfirlegu. Nú verður til mjööur
sem Frakkar kalla „brouillis",
með styrkleika sem nemur
27-30 prósentum. Að því
búnu er hann hitaður og þéttur
enn meir eða þangað til styrk-
leikinn er orðinn um 70
prósent. Þessu ferli er þá lokið
og hið síðasta tekur við -
geymslan eða lageringin.
Koníakið er aðeins geymt í
eikartunnum sem smíðaðar
eru eftir ströngum reglum úr
skráfþurri og gamalli eðaleik. I
raun gerist nú þrennt - liturinn
verður gullnari með tímanum,
vínið dregur í sig bragð úr
viðnum og styrkleikinn
minnkar.
UPPRUNI OG ALDUR
Algengt er aö brandíi sé rugl-
að saman við koníak. Þaö
dregur nafn sitt af hollenska
orðasambandinu „Gebrande
Wijn“ sem þýðir brennt vín. í
heiminum eru framleidd
hundruð tegunda brandis. Að
því ber hins vegar að gæta að
Cognac, koníak, má sá einn
brenndur drykkur heita sem
rekur uppruna sinn til Cognac-
héraösins í Frakklandi og
framleiddur er í samræmi viö
þargildandi lög og reglur.
Koníakið er líka mismun-
andi, bæði að eðli og gæðum.
Það er enda svo að því er
skipt niður í nokkra flokka -
eftir því úr hvaða hluta héraðs-
ins það kemur og hversu lengi
það hefur verið geymt í eikar-
tunnunum góðu áður en því
var tappað á flöskur. því eru
þær merktar á mismunandi
hátt og koníakinu jafnvel gefið
mismunandi heiti til aðgrein-
ingar.
Uppruni:
Mest metna koníakið kemur
frá tveimur bestu hlutum hér-
aðsins, eins og áður var
minnst á, Grand Champagne
og Petite Champagne. Þegar
á merkimiðanum stendur:
Grande Fine Champagne
Cognac á koníakið að fullu
uppruna sinn að rekja til
svæðisins sem í mestum met-
um er, það er að segja Grand
Champagne.
Standi á miðanum Fine
Champagne Cognac er að
minnsta kosti helmingur fram-
leiðslunnar frá ofangreinda
svæðinu en hinn helmingurinn
frá Petite Champagne.
Aldur:
3-5 ára - ***, V.S., R.D., St.
Martial, Bras Armé o.fl.:
í raun er yngsta koníakið
ekki yngra en þriggja ára.
Þetta vín er prýðilegt en mörg-
um þykir það of hrátt til þess
að það geti kallast eðalt. Það
er svolítið mismunandi eftir
tegundum enda getur bragðið
breyst mikið á fimm árum.
5-1 Oára- V.S.O.P., Réserve,
Medallion:
Bragðið er orðiö fyllra og
með hverju árinu verður göfgi
þess meiri.
10-35 ára - Napoléon, Extra,
X.O., Pale & Dry, Cordon Bleu
o.fl.:
Á þessum aldri nær koniak-
ið smám saman sínum mesta
þroska. Bragðið er orðið enn
mýkra og þokkafyllra og litur-
inn orðinn gullinbrúnn.
35-55 ára:
Koníakið fer nú að ná fulln-
aðarþroska og sannarlega
ástæðulaust að geyma það
lengur í rykföllnum eikartunn-
unum. Svo gamalt koníak er
ekki á hverju strái. Fram-
leiðendur eins og Remy Martin
setja á markaðinn gamalt kon-
íak sem þeir kenna við sjálfan
Lúðvík konung 13. og kalla
það því Louis XIII. Ekki skal
fullyrt hér hvort það hefur náð
55 ára aldri en býsna gamalt
er það engu að síður.
Til að njóta hins góða
drykkjar er best að hella hon-
um í hæfilegu magni í viðeig-
andi glös. Ekki skal koníakið í
glasinu ná nema vel upp fyr-
ir botninn, þá nýtur það sín
best. Á þann hátt nær ilmur
þess að njóta sín í glasinu og
berst upp að vitum neytand-
ans. í annan stað nær lófinn
að hita sopann sem í glasinu
er og bragðið verður enn
betra. □
LAUGAVEGI 30 - SIMI 624225
SENDUM I POSTKROFU
#
PARÍSARbúðin
AUSTURSTR/ETI 8 - SÍMI 14266