Vikan - 27.12.1991, Side 66
viðurkenna Michelle sem „al-
vöru“ leikkonu. Hugsanlega er
þaö vegna þess að hún hlaut
ekki hefðbundið leikaranám
heldur komst inn I skemmt-
anaiðnaðinn eftir að hafa unn-
ið fegurðarsamkeppni. Hún
þurfti líka að berjast lengi til að
sanna að hún gæti verið til
annars en skreytingar. Hún
byrjaöi feril sinn í sjónvarps-
þáttum og ódýrum kvikmynd-
um en fyrsta stóra hlutverkið
hennar var söng- og danshlut-
verk í Grease 2 árið 1982.
Hlutverkið varð ekki til þess að
hún næði að slá I gegn eins og
hún hafði vonað. Ári síðarfékk
Gagnrýnendur segja að hún hafi hæfileika til
að grafa sig undir húð þeirrar persónu sem
hún túlkar hverju sinni og virki því ávallt
sönn.
Það tók Michelle Pfeiffer tíma að sanna sig
sem alvöruleikkona. Hún ræður við mismun-
andi hlutverk og hana munar ekkert um að
bregða sér í gervi karlmanns - eða hefðar-
dömu frá fyrri tíð.
hún þó verðugt viðfangsefni
sem ísdrottningin Elvira f
Scarface.
SKAPMIKIL ÞOKKADÍS
Michelle er ekki leikkona sem
kafffærir áhorfendur meö yfir-
Hún er sögð eiga ýmislegt sameiginlegt með
leikkonunni Ritu Hayworth.
þyrmandi tækni eins og Meryl
Streep. Ef bera ætti hana
saman við aðrar leikkonur
þyrfti að fara aftur til fimmta
áratugarins, til hinna kaldheitu
þokkadísa á borð við Lauren
Bacall og Ritu Hayworth. Það
er einmitt sú síðarnefnda sem
kemur upp f hugann þegar
horft er á Michelle ofan á
píanóinu í The Fabulous
Baker Boys. Það sem aðskilur
Michelle frá þessum stórfeng-
legu fyrirrennurum er við-
kvæmni hennar. Ein ástæðan
fyrir því að konur, sem annars
gætu haft tilhneigingu til að
sneiða hjá annarri eins skutlu,
eru jafnhrifnar af henni og karl-
ar er sú að hún hefur hæfileika
til að grafa sig inn undir húð
þeirrar persónu sem hún leikur
hverju sinni og virkar því ávallt
sönn. Áhorfendum finnst aldr-
ei að þeir séu að horfa á leik-
konu selja sig, né heldur aö
hún hafi aðeins komist áfram á
útlitinu.
Leikaðferð Michelle er
hvorki hægt að læra, kenna né
útskýra en innlifun hennar í
hlutverkin veldur því að kvik-
myndahúsagestir hafa samúð
með persónum hennar. Hún
segir að hún og hlutverkið
renni saman í eitt og ef vel
gangi veiti persónan henni
stöðugan innblástur.
Sumum virðist sem óörygg-
ið hvetji hana til dáða og sjálf
segist hún myndi gera hvaö
sem væri til að verða sér ekki
til skammar. Hún leggur mikla
vinnu í hvert hlutverka sinna,
ekki síst í Russla Houseen þar
leikur hún sovéska mennta-
konu sem smyglar út sovésk-
um hernaðarleyndarmálum.
Eftir kvikmyndatökuna í
Moskvu segist hún í fyrsta
sinn á ævinni hafa skilið upp-
gjafartilfinningu hjá fólki.
„Fram aö því hafði ég átt mín-
ar erfiðu stundir en ég gaf aldr-
ei upp vonina. Ég var aðeins í
Rússlandi i sex vikur en bara
það að komast milli staða var
þolraun. Maður varð aö semja
við leigubílstjórann til þess að
komast heim. Það er erfitt aö
hafa þaö á tilfinningunni að
maöur fái engu ráðið.“
f upphafi tökunnar í Moskvu
reyndi Michelle að berjast við
skortinn og reglurnar í sov-
ésku þjóðfélagi. Þegar hún
komst að því að vestrænum
kvikmyndafélögum er meinað
að gefa sovéskum aukaleikur-
um að borða á tökustað varð
hún öskureið, rauk í burtu og
neitaði að koma aftur nema
Rússarnir fengju að borða
með hinum. „í landi þar sem
ekki er hægt að fá mat og ekki
hægt að fá sápu var þetta fólk
að horfa á okkur skófla í okkur
fullum diskum af rjúkandi
spaghettíi."
Til að leysa úr málinu varð
að kalla til embættismenn úr
sovésku kvikmyndanefndinni.
Þeir grátbáöu hana um að
snúa aftur til vinnu sinnar og
útskýrðu að hlutirnir væru ein-
faldlega gerðir svona í henni
Sovét. „Ég svaf ekki mikið þá
nótt,“ segir hún. „Svo hugsaði
ég með mér: Mikið er þetta
amerískt af þér. Það er alltaf
verið aö ásaka okkur fyrir
þetta sem þjóð. Hvort ég hafði
rétt eða rangt fyrir mér er ekki
málið. Málið var: Hef ég rétt til
þess sem utanaðkomandi aðili
að þröngva tilfinningasemi
minni upp á þessa menn-
ingu?“
Næsta dag var hún komin á
tökustað aftur. Þetta atvik átti
þó eftir að hafa það í för með
sér að hún náði að skilja hlut-
verk sitt í Russia House betur.
„Ég komst aö því að sovéska
konan er miklu óvirkari en sú
bandaríska. Feðraveldiö er
enn við lýði í Rússlandi."
„Það skyldi enginn vanmeta
hana,“ segir Steve Kloves,
leikstjóri Baker Boys. „Henni
er mikið I mun að bæta sig
stöðugt og víkka sjóndeildar-
hringinn, enda má ekki minn-
ast svo á bók við hana að hún
kaupi hana ekki - og allar aðr-
ar bækur höfundarins."
SPENNANDI ÖFGAR
Það eru margar mótsagnir í
þessari veikbyggðu, áköfu
konu sem eitt andartakið getur
virst algerlega varnarlaus og
það næsta seigari en leður.
„Ég er óþolinmóð við sjálfa
mig og hef alltaf verið það,“
segir hún. „Ég hef alltaf viljað
fá allt í gær. Það er mikið
myrkur í eðli mínu. Ekki að ég
sé alltaf myrk en ég held alltaf
að ég geti allt og ráði við allt,
geti haldið öllum boltunum á
lofti og skil svo ekki hvers
vegna ég græt móðursýkis-
lega í lok dagsins og get ekki
sofiö. Það er stærsti kostur
minn og mín mesta bölvun -
að vera svona fjári sjálfri mér
nóg.“
Myndin sem hún dregur upp
af sjálfri sér er af öfgafullri
manneskju. „Það er aldrei um
neina hálfvelgju að ræða hjá
mér,“ segir hún. „Væri ég
Sean Penn væri ég búin að
drepa einhvern núna. Hefði ég
árásargirni karlmannsins sæti
ég I fangelsi. Ég hefði til dæm-
is hrint þessum Ijósmyndurum
sem hanga fyrir utan veitinga-
hús. Hrint þeirn."
Eftir stendur aö hún er ein
mest spennandi leikkona tf-
unda áratugarins og þaö verð-
ur áhugavert aö fylgjast með
því hvernig hún beitir því valdi
sem hún hefur öðlast innan
kvikmyndaiðnaðarins. Eins og
margar valdamiklar leikkonur
á undan henni er hún búin að
setja upp sitt eigiö framleiðslu-
fyrirtæki í samvinnu við Orion-
kvikmyndaveriö. Meðal verkefna
á skrá er mynd um leikkonu
sem svikin er af vinkonu
sinni hjá gulu press-
unni, samstarfsverkefni
Michelle og Cher. Þessi
fjölhæfa fegurðardís
hefur hæfileikann til
aö koma á óvart
og er áreiðan-
lega ekki búin
aö segja sitt
síðasta
orð. □
66 VIKAN 26. TBL.1991