Vikan - 27.12.1991, Page 68
STIÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Bjartsýnin fylgir þér út
árið 1991 og þú reynist hug-
myndarík(ur) í upphafi ársins
1992. Þú leggur grunninn að sjálf-
stæðri braut varðandi atvinnumál
þín seinna á árinu. Fátt kemur þér
á óvart en fyrstu vikulok ársins
verða notaleg.
dnpb NAUTIÐ
'íjl 20. apríl - 20. maí
Rómantíkin er líkleg til að
blossa upp um áramótin. Sterkar
tilfinningar og sameiginlegt mat
bjóða upp á traustan grunn fyrir
varanleg tengsl. í ársbyrjun 1992
hefst uppskerutími síðustu tutt-
ugu ára vegna áhrifa Satúrnusar í
tíunda húsi þjóðfélags.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Brugðið gæti til beggja
vona hjá þér um áramótin því að
samskiptakort þitt er fremur erfitt
um þær mundir. Þetta lagast
snemma á nýja árinu og heimilis-
aðstæður batna til muna vegna
jákvæðra áhrifa frá Júpíter.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Flest bendir til að síðustu
dagar ársins verði þér annasamir.
Þú hefur líka nóg að gera eftir
áramót en þá styrkir Júpíter hug-
arorku þína þannig að þér vinnst
betur. Þar að auki kemur Plútó inn
( ánægjuhús þitt og ýtir undir
sköpunargáfuna.
LJÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Eftir aðkenningu aö ein-
manaleika um jólin gægist róm-
antíkin fram um áramótin. Áhrif
Júpíters verða til þess snemma á
nýja árinu aö auðga anda þinn,
jafnvel þannig aö þú færð hug-
myndir til að auðgast efnalega.
Sýndu lipurð í umgengni.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Samskipti við vini og
kunningja verða ánægjuleg um
áramótin og þér er óhætt að tala
út um hlutina. Áhrif Júpíters í
upphafi nýs árs eru þér sérstak-
lega hliðholl. Árið byrjar því vel og
gæti auk þess orðið þér almennt
happaár.
VOGIN
24. september - 23. okt.
Þú átt gott með að hæna
fólk að þér ( árslok og því verða
áramótin þér eftirminnileg. I árs-
byrjun 1992 getur hins vegar
brugðið til beggja vona. Ýmis
teikn í almennu korti Vogarinnar
benda til róttækra breytinga á
næstunni.
SPORÐDREKINN
24. október - 21. nóv.
Seigla og útsjónarsemi
koma þér á réttan kjöl áður en ár-
inu lýkur. Þú reynir líka að halda
góðu sambandi við fólk eftir ára-
mótin, þótt árangurinn geti reynst
misjafn. Getur verið að stjórnsemi
þín eigi þar einhvern hlut að máli?
BOGMAÐURINN
22. nóvember - 21. des.
Síðustu dagar 1991 ein-
kennast af jafnvægi tilfinninga og
skynsemi. Þetta heldur áfram
fyrstu vikur 1992. Sjálfstraust þitt
er með besta mótj.uppúr áramót-
um og vegna áhrifa Júpíters helst
það nokkuð stöðugt þangað til í
október.
STEINGEITIN
22. desember - 19. jan.
Settu þér háleit markmið
strax eftir jólin. Aflaöu þér nýrra
sambanda um áramót. í vændum
er nýtt orkutímabil upp úr áramót-
um og ef rétt er haldið á spilunum
verður þetta mikilvægt fjármálaár
fyrir þig vegna jákvæðrar stöðu
Satúrnusar.
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Áhyggjur skyggja svolítið
á áramótin og í ársbyrjun 1992
verður þú sennilega að takast á
við vandamál sem þú hefur
forðast. Þú ert sem sé í eins kon-
ar lægð en sem betur fer er þetta
aðeins tímabundið ástand. Sýndu
svolitla þolinmæði.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Til árekstra gæti komið
milli þín og þinna nánustu síðustu
daga ársins og þig langar að fara
þínar eigin leiðir um áramót. í árs-
byrjun 1992 hefurðu um margt að
hugsa og finnur andlega leið sem
hentar þér. Vertu vakandi fyrir
tækifærum til að láta drauma þína
rætast.
írinn Pat O’Reily var farinn
að venja komur sínar á krá eina
í London þar sem eingöngu
voru Englendingar fyrir. Fasta-
gestunum var heldur lítið um
hann gefið og voru tveir þar
fremstir í flokki, þeir Charlie og
George.
„Við verðum að reita hann til
reiði,“ sagði George eitt
kvöldið, „svo að hann ráðist á
okkur. Þá verður okkur ekki
skotaskuld úr því að koma
honum fyrir kattarnef. Það er
best að ég tali við kauða.“
Hann gekk að borðinu þar
sem Pat sat og var að drekka
bjórinn sinn.
„Veistu,“ sagði George,
„þessi verndardýrlingur ykkar,
Patrekur eða hvað hann hét,
var ekkert annað en þroska-
heftur grautarhaus?"
„Nú vinur? Grautarhaus,
segirðu? Ja, það var svei mér
fróðlegt að heyra.“
„Ekki nóg með það. Hann var
líka huglaust skítseiði."
„Þú segir ekki? Ja, alltaf
heyrir maður eitthvað nýtt,
vinur.“
Charlie, sem hafði hlustað á
þetta, gekk nú að George og
hvíslaði að honum:
„Þetta gengur ekkert. Ég veit
hvernig á að gera hann alveg
fjúkandi vondan."
Hann sneri sér að Pat og
sagði:
„Svo var ekki írskur blóð-
dropi í þessum þjóðardrýiingi
ykkar. Hvort sem þér líkar bet-
ur eða verr, lagsi, þá var hann
réttur og sléttur Englending-
ur.“
„Já,“ sagði írinn og saup á
bjórnum. „Vinur þinn var ein-
mitt að segja mér það.“
Forstjórarnir tveir hittust yfir há-
degisverði, og voru að bera saman
bækur sínar um stressið sem fylgdi
starfi þeirra.
„Það er svo mikið af vandamálum
og verkefnum sem hvílir á mér, að ef
eitthvað kemur upp á í dag, þá get
ég ekki haft áhyggjur af því fyrr en í
fyrsta lagi eftir tvær vikur,“ stundi
annar þeirra.
Ingi innbrotsþjófur sat og horfði
á sjónvarpið. Evrópulöggur voru
á skerminum, og í einu atriðinu
var maður að brjóta upp peninga-
skáp.
„Kalli litli,“ kallaði Ingi á son
sinn. „Komdu og kíktu aðeins á
skólasjónvarpið."
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
n|ns
-euioiq e u|luo>| je eiue|d ‘e66n|6 \ jbiuba jnQru ‘jsjAnjQO je Qjdde) ‘isAejq
jnjei) sujsuueuj jndwsuunuj ‘iuuiuj js uujdLuei ‘jbqsu ms jnuipjeo
68 VIKAN 26. TBL.1991