Vikan - 27.12.1991, Blaðsíða 76
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON / LJÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON
TVEIR METSÖLUHÖFUNDAR Á FERÐ UM ÍSLAND
„ÞID ERUD SVOUTID
STOLT OG FURDULEG"
Einn víðlesnasti rithöfundur Norðurlanda, Svíinn Maj
Sjövall (sem skrifaði óvenjulegar glæpasögur um lög-
reglumanninn Martin Beck ásamt manni sínum Per
Wahlöö) er farin að skrifa skáldsögur í samvinnu við mesta
metsöluhöfund Hollendinga, Tomas Ross. Fyrsta skáld-
saga þeirra, Konan sem líktist Gretu Garbo, kom út í fyrra,
hefur verið þýdd á íslensku og er komin í bókabúðir hér á
landi. Þau ákváðu á dögunum að taka sér svolítið frí frá rit-
störfum og fara tii íslands. Maj hefur komið hingað áður og
Tomas, sem er mannfræðingur að mennt og ævintýramaður
að upplagi, sló til þegar hún hafði lýst landinu fjálglega fyrir
honum. Hún er 55 ára ekkja en hann er 47 ára, tvíkvæntur og
tók seinni konuna sína, Doreen, með sér hingað. Ég snæddi
með þeim kvöldverð fyrir nokkru og varð margs vísari um
þau. Það eru sjö ár síðan þau Maj og Tomas kynntust og ég
spurði hann hvernig það hefði viljað til.
Tomas: Ég var sendur til
Kaupmannahafnar til að taka
viötal við hana. Þetta var sól-
arhringsferð - ég átti að hitta
hana á ákveðnum staö á
ákveðnum tíma. Ég kom á
undan henni og í hvert skipti
sem ég sá ríkmannlega konu
ganga í salinn, kannski í pels
og með tvo kjölturakka, stóð
ég upp, tilbúinn að kynna mig.
En konurnar strunsuðu allar
framhjá. Svo þegar ósköp al-
þýðleg kona í blússu og galla-
buxum settist hjá mér starði ég
hvumsa á hana þegar hún
kynnti sig sem Maj Sjövall.
Maj: Hann hélt að ég væri
forrík og kannski ætti ég að
vera það. En ég hef aldrei
kunnað að fara með peninga.
Þegar hann komst að því bauð
hann mér heim til sín I Hol-
landi og þar með hófst óslitin
vinátta okkar. Við töluðum um
bókmenntir yfir morgunkaffinu
og það varð til þess að seinna
fórum við að skrifa saman.
Hann er mjög fær í að finna út
söguþráð og fléttur.
- Hvernig færðu hug-
myndirnar?
A Höfund-
ar sögunn-
ar Konan
sem líktist
Gretu
Garbo.
Blaðamað-
ur Vikunnar
átti stutt
viðtal við
þau er þau
voru hér á
ferð fyrir
skemmstu
til að kynna
bók sína,
en hún kom
út í ís-
lenskri þýð-
ingu fyrir
jól.
Tomas: Ég ergamall blaða-
maður og fæ stundum hug-
myndir úr sérkennilegum
fréttum. Tökum til dæmis litla
frétt um konu sem kemst að
því að hún er ættleidd og vill
komast aö því hverjir raun-
verulegir foreldrar hennar eru.
Samkvæmt hollenskum lögum
er það ekki hægt vegna þagn-
arskyldu viðkomandi yfirvalda.
Svo mér dettur í hug stúlka
sem langar að eignast barn.
Hún finnur sér mann til að
gera sig ófríska en vill síðan
ekkert með hana hafa. Barnið
fæðist en deyr skömmu síðar
úr arfgengum blóðsjúkdómi
sem aðeins erfist frá móður-
inni. Þar með finnur hún út að
foreldrar hennar geta ekki ver-
ið raunverulegir foreldrar
76 VIKAN 26. TBL. 1991