Menntamál - 01.09.1936, Qupperneq 31
MENNTAMÁL
109
miálastjórnarinnar og dugnaði og starfshæfni kennar-
anna. Kennararnir verða að gera sér það 1 jóst þegar i upp-
liafi, að jafnframt því sem hin nýju lög skapa þeim að
ýmsu icyti betri aðstöðu, leggja þau þeim meiri ábyrgð á
herðar en nolckru sinni fyrr og fá þeim ný og aukin við-
fangsefni. Það er t. d. augljóst, að um árangurinn af vor-
og haustkennslu yngri barnanna getur brugðið til heggja
vona. Um það leyti árs á að vera auðvelt að sameina, ann-
arsvegar útivist, náttúruskoðun og hæfilega hreyfingu,
og hinsvegar undirstöðunám í lestri, skrifl og reikningi,
skipt niður í stuttar námsstundir við hæfi ungra barna. Á
þann hátt virðist þetta námstímabil sérstaklega lil þess
fallið að efla likamlega heilhrigði, menningu og þekkingu
barnanna. Á hinn bóginn mvndi einhliða kyrrsetu- og
ílroðningskennsla allan hinn langa skólatíma gela orðið
hörnunum til varanlegs tjóns og kennarastéttinni til
vansæmdar. En sem betur fer er ástæða til að ætla, að ekk-
ert þurfi að óttast í þeim efnum.
Þá vil ég enn minna á heimavistarskólana. Það mun öll-
uin vera Ijóst, að heimavistarskólar gera aðrar og að sumu
leyti ennþá strangari kröfur til kennara en aðrir skólar.
En nú i bili er höfuðvcrkefnið það að vinna að byggingu
þessara skóla, að vinna þjóðina til fvlgis við málið og
að finna ráð lil að afla fjárins, sem til þess þarf. Hér þurfa
allir kennarar að leggja hönd á plóginn, hvar sem þeir eru
húsettir á landinu. Hver nýr heimavistarharnaskóli er nýr
sigur fyrir uppeldi og barnavernd í landinu.
í allmörgum skólum á landinu mun þegar vera byrjað
að framkvæma hin nýju fræðslulög, í Reykjavik, Vest-
mannaeyjum og á fsafirði tóku skólar til starfa 1. sept., í
llafnarfirði 10. sept., á Akureyri, Seyðisfirði og Siglufirði
15. se])t. Annarsstaðar að hafa enn eigi horizt nákvæmar
fregnir, en búizt við, að víða hafi verið byrjað 15. þ. m.
Vitað er um einn sveitaskóla, Reykholt i Biskupstungum,
sem byrjaði 1. sepl.