Menntamál - 01.09.1936, Blaðsíða 77
MENNTAMÁL
155
ans er því fyrst og fremst fólgið i því, að œfa nákvæmni sjónar
og athygli, handlægni og leiluii lijá barninu. Til þessa þarf að
glæða skapandi orku barnsins og námsvilja. En það er ekki
hægt, ef bókstafirnir eru barninu aðeins dauð og þýðingarlaus
strik. Menn gera sér það yfirleitt ekki ljóst, á hve afar-sérfirrðri
(abstrakt) hugsjón stafrófið byggist. Bókstafirnir, sem sundur-
lausar táknmyndir, eru hinni sérhæfðu (konkret) hugsun barns-
ins algerlega fjarskyld. í stað utangarna eftirlíkinga í skriftar-
námi barna vill kennslufræði núlímans láta stafina vaxa út úr
myndum dýra og hluta, sem barnið þekkir og hefir yndi af.
Þannig verða þeir barninu kunnugir og uákomnir og örfa starfs-
hvöt þess. Flytur bókin góð sýnishorn af þessari aðferð. Einnig
virðist æskilegt, að börnin byrji að skrifa orð, sem þau skilja
og kunna dð nota, svo að skriftarkennslan verði frá upphafi
samfelldur þáttur í kennslu móðurmálsins, eða náminu i heild.
— Ekki er unnt að drepa hér á öll atriði, sem greinin fjallar um,
menn lesi hana sjálfir. Hún er engin frumleg kenning, heldur
vel heppnuð tilraun til að flvtja kennurum brot þeirrar þekk
ingar, sem starf þeirra krefst óhjákvæmilega.
Báðar síðari greinarnar gefa nánar skýringar á ýmsum atrið-
um skriftarkennslu og eru góður viðauki við fyrstu greinina.
Eiga höfundar allir þakkir skildar fyrir bókina, sem vonandi
nær verðskulduðum vinsældum og kcmst i handbókasafn hvers
ken nara.
Dr. Matthías Jónasson.
Bækur.
Iiatrin Árnadóllir: Kátir krakkar. Með myndum eft-
ir Tryggva Magnússon. Reykjavík 1936.
Þetta eru 8 smákvæði, lipurt rýmuð með hressandi veruleika-
blæ. Yrkisefnin tekin úr daglegu lífi smábarna. Málið á kvæð-
unum er ekki lýtalaust, en allt um það mun bókin verða góð-
ur vinur íslenzkra barna, því að þarna er auðsjáanlega höf-
undur, sem bæði hefir vilja og mátt til ]>ess að gleðja þau.
Margit Casscl-Wohlin: Boðorðin 7 um barnauppeldi, Ak-
ureyri 1936. Snorri Sigfússon íslenzkaði.
Árangurinn af starfi barnaskólanna fer mjög eftir þvi, hvernig
heimilin búa i haginn fyrir þá. Kennari, sem útbreiðir uppeldis-