Menntamál - 01.09.1936, Blaðsíða 51
MENNTAMÁL
Skólinn byrjar
129
I.
Þessi grein verður einkum miðuð við unglingaskóla.
En unglingaskólar eru raunar flestir skólar nema barna-
skólar. Börn og unglingar eru meðal annars ólík um það,
að börnin eru meir undir liandleiðslu foreldra, en ungling-
arnir — já, hvað á ég að segja? Þeir eru hvorki börn
né fullorðnir. Þeir eru að stíga fyrstu sjálfstæðu sporin á
lífsins leið. Lítið á fermingarbörn! Þar sést bezt livað
unglingurinn er. Lítil stúlka á síðum kjól, sem liefir sterk-
áhla tilhneigingu til að lyfta upj) kjólnum og taka til
frjálsra fötanna, þegar þú lítur á liana. Ungur drengur
með vatnsskembdan koll, sem ekur sér í herðunum eins
og til að losa um stífan flibbánn. Síði kjólinn og harði
flibbinn eru eins og bnappelda og hálsband, sem skyldur
hins fullorðna manns leggja á barnseðlið. Það er meira
lielsi en frelsi í fyrstu breyfingunum. Unglingurinn er á
leiðinni af barnseðlinu yfir á fullorðinsárin. Og sú leið
er yfirbyggð af skóluni.
Það. er ástæða til að taka vel á móti unglingnum, þeg-
ar bann stigur inn fyrir dyr unglingaskólans. Hann gerir
sér glæstar vonir, en saml er ganga hans erfið. Hann nýt-
ur meira frjálsræðis en barnið, en samt er honum ætlað
að leggja á sig þau höft, sem lífið heimtar. Honum er
ætlað að búa sig undir óljósa framtíð og láta athafnir
sinar og slörf mótast af þörfum ókominnar æfi. Honum
eru fengnar bækur í hendur og stundaskrá. En það er
margs fleira að gæta, sem lionum er ])örf á. Ef hann
er vaxinn upp úr handleiðslu barnsaldursins, þá þarf hann
þó leiðbeining, og slik leiðbeining i uppbafi ferðar er nú
veitt i mörgum góðum skólum. Kennurum er skylt að
stunda uppeldisvísindi til undirbúnings starfi sínu, og í
þeim fræðum er margt, sem unglingurinn befði gott af
9